Hrund - 01.06.1967, Blaðsíða 44

Hrund - 01.06.1967, Blaðsíða 44
Axminster annaó ekki Gerið íbúðina að hlýlegu heimili Það getur reynzt vandasamt að búa heimilið, hvort sem það er nýtt eða stendur á gömlum merg og þarfnast endurnýjuhar. En ef þér þurfið að fá yður gólfteppi, er valið vandalaust. Það er reynsla þúsunda um land allt, að ullarteppin frá Axminster eru heimilisprýði. Þau ráða úr- slitum um það, hvort íbúð verður bara íbúð eða hlýlegt heimili. Á íslandi ætti að vera ó- þarfi að minna á kosti íslenzkrar ullar, enda hefur hún reynzt bezta fáanlega hráefnið til gólfteppagerðar. Um aldir hefur ullin verið unnin á íslandi með hinum ófullkomnu verk- færum fortíðarinnar, en hér eru það Axminster- vefstólarnir, sem gera úr henni teppi, sem gæða hvert heimili í senn. hlýju og fegurð, þeim tveim kostum, sem eru frumskilyrði þess, að íbúðin verði ekki aðeins íbúð, heldur einnig heimili, sem íbúarnir geta verið stoltir af. Munið, að á gólfunum eiga að vera alullarteppin frá Axminster.annað ekki. Axminster GÓLITEPPAVERKSMIÐJA GRENSÁSVEGI 8 SlMI 30676

x

Hrund

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.