Hrund - 01.07.1967, Qupperneq 17
neyzlu þess í hóf, þegar á ungl-
ingsárunum?
Hvað kynferðismál snertir vil
ég segja, að unglingar fá varla
nokkra tilsögn eða kennslu í
þeim málum, nema þá helzt á
götunni. Þess vegna ættu for
eldrar að fræða þau um þessi
mál feimnislaust, en ekki fara
undan í flæmingi, ef ungling-
arnir koma inn á þessi mál við
þau. Einnig er mjög æskilegt að
taka upp ítarlega kennslu í þess-
um málum þegar í gagnfræða-
skóla. Unglingur, sem lítið eða
ekkert veit um kynferðismál, þor-
ir ekki að spyrja pabba og mömmu
eða fær ekki svör við spurningum
sínum, og fer að fikta við þetta
sjálfur, en gerir sér ekki grein
fyrir afleiðingunum fyrr en um
seinan.
Að öðru leyti finnst mér, að
foreldrar ættu sem minnst að
blanda sér I mál unglinganna.
Þeir eru orðnir nógu þroskaðir og
sjálfstæðir á þessum aldri, og
i það er tími til kominn, að þeir
taki eigin ákvarðanir. Til dæmis
í sambandi við skólagöngu, hvort
þeir vilja halda menntaveginn
eða fara aðrar brautir. Þótt það
sé annars æskilegt, að foreldrar
hvetji þau til að læra eitthvað.
Með því að fara eigin leiðir,
þroska unglingarnir fyrst ein-
staklingshyggju sína, og þegar
út í lífið kemur, eiga þeir auð-
veldara með að taka mikilvægar
ákvarðanir og bjarga sér á allan
hátt betur, en ef þeir hefðu sí-
fellt farið að óskum foreldranna.
foreldra og barna er undirstaðan.
Unglingar gera það, sem þau
ætla sér. Margir þeirra reykja til
dæmis |n þess að foreldrarnir
hafi hugmynd um. En.þessi ó-
hóflega peningaeyðsla þéirra er
fullorðna fólkinu og þjóðfélag-
inu að kenna. Hér eyða aliir pen-
ingum í ergi og gríð og ekki
nema von, að börnin taki eftir
fyrirmyndinni.
Það er staðreynd, að félag-
arnir hafa meiri uppeldisáhrif en
foreldrarnir, allt frá því er börnin
fara fyrst út að leika sér, og það
er afar erfitt vegna tíðarandans
að ala börn upp á fslandi nú á
dögum. Foreldrar ættu að taka
sig saman í götum og hverfum
bæjarins um að láta börnin fara
snemma inn á kvöldin. Það þarf
að koma réttum anda inn hjá
islendingum, þeir eiga að hætta
að gagnrýna skólana og ásaka
foreldrana þess í stað. Almenn-
ingsálitið er ekki nógu strangt.
Við höfum vín um hönd frjáls-
lega á heimilinu og reynum að
kenna krökkunum að bera virð-
ingu fyrir því — óttablandna
virðingu.
i sambandi við kynferðismál
finnst mér sjálfsagt að auka
kennslu verulega í gagnfræða-
skólum. Það er oft betra að láta
óviðkomandi aðila segja frá þessu.
Þau spurðu ung krakkarnir og
var þá sagt í líkingum — lítill
munur á mönnum og dýrum og
þess háttar. En börnin inniloka
sig með aldrinum og það verður
erfiðara að tala við þau.
Foreldrar gefa sér ekki nægan
tíma til að sinna börnunum. Þau
eru sjálfstæðir einstaklingar, sem
eiga sín vandamál ekki síður en
hinir. Það vantar ömmur og afa,
sem höfðu betri tíma og gátu haft
mikil og góð áhrif á börnin. Nú
eru ömmur og afar yngri, ennþá
fullir starfskraftar.
Foreldrar eiga að tala við börn-
in og reyna að komast að áhuga-
málum þeirra. Ýta undir áhugann
og beina honum inn á réttar
brautir. Stuðla síðan að því, að
þau geti notið áhugamála sinna.
Það er ótrúlega mikilvægt fyrir
börn að hafa mark að keppa að.
Foreldrar eiga að komast I ná-
ið samband við börn sín. Svæfa
þau meðan þau eru ung og fara
með Faðirvorið með þeim. Það
veitir barninu öryggi, og trúar-
þörf er til í hverjum manni. Mað-
urinn er hugsanavera — og því
meir sem hann hugsar því sann-
færðari verður hann.
ÁRNI WAAG,
mjólkurf ræðingur:
Mér hefur ekki gengið vel að
ná trúnaði barnanna — konunni
gengur betur. Kannski gef ég
mér ekki nægan tima til að tala
við þau. En þetta er undirstöðu-
atriði — gagnkvæmur skilningur
17