Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2013, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 09.02.2013, Qupperneq 8
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 N N E M M / S ÍA / N M 5 BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 SHIFT_ ELDSNEYTI MINNA NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR SUBARU XV – 4x4 Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla: 4,2 l/100 km* Eyðsla: 4,6 l/100 km* Eyðsla: 6,6 l/100 km* RENAULT MEGANE II SPORT TOURER 1.5 dísil, sjálfskiptur. Verð 3.890 þús. kr. Á laugardögum er skemmtilegt að kíkja í heimsókn, skoða bíla og fá að reynsluaka þeim nýjustu úr salnum. Allt að 80% fjármögnun til 84 mánaða frá Ergo. Verið velkomin til okkar, við tökum vel á móti ykkur með kaffi og meðlæti. Velkomin í laugardagskaffi! Reynsluakstur í dag frá kl. 12–16. u rr NISSAN QASHQAI – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. E FER 1.428 KM Á EINUM TANKI M.v. blandaðan ak stur VINSÆLASTI SPORTJEPPINN Samkv. Umferðars tofu 2012 SPARNEYTINN SUBARU Ný vél, aukinn ben sínsparnaður DÓMSMÁL Sérstakur sak sóknari hefur gefið út ákæru á hendur Gunnlaugi Briem, fyrrverandi starfsmanni Lífeyrissjóðs verzlun- armanna, fyrir að telja ekki fram til skatts tæplega 600 milljóna hagnað sinn af framvirkum gjaldeyris- samningum og svíkja þannig undan tæplega sextíu milljóna króna fjár- magnstekjuskatt. Langflestir samningarnir, sem alls voru 584, voru með krónur, en nokkrir með evrur. Þeir voru gerðir við Glitni og Landsbank- ann. Samningarnir voru yfirleitt til skamms tíma – nokkurra daga í einu – og Gunnlaugur veðjaði sitt á hvað á styrkingu og veikingu krónunnar. Ákæran, sem gefin var út af Ólafi Þór Haukssyni var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær- morgun. - sh Fyrrverandi starfsmaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ákærður: Veðjaði með og gegn krónunni Lífeyrissjóður verzlunarmanna sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna málsins, þar sem segir að sjóðurinn, stjórnendur hans eða starfsmenn eigi enga aðild að málinu, Gunnlaugur hafi ekki notað eignir sjóðsins sér til fjárhagslegs ábata og athæfi hans hafi ekki rýrt eignir sjóðsins. Hins vegar hafi viðskiptunum verið haldið leyndum frá stjórnendum og öðrum starfsmönnum, þau séu brot á verklagsreglum, litin mjög alvarlegum augum og hefðu leitt til uppsagnar hans hefðu þau uppgötvast. Gunnlaugur hætti hjá sjóðnum sumarið 2009. Litið mjög alvarlegum augum RÚSSLAND, AP Dmitrí Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, er andvígur áformum Vladimírs Pútín forseta um að hætta við að hafa sumartíma allt árið, en það var Medvedev sem tók ákvörðun um það árið 2011 meðan hann var forseti. Harðar deilur hafa verið í Rúss- landi undanfarið um sumartím- ann. Fjölmargar óánægjuraddir segja ófært að láta þjóðina búa við myrkur langt fram eftir morgni á veturna. Í desember sagði Pútín að með því að halda fast í sumartímann gerðu Rússar sjónvarpsáhorfend- um í Evrópuríkjum það erfitt að fylgjast með Vetrarólympíuleik- unum í Rússlandi árið 2014. Pútín segir að ríkisstjórnin hafi þegar tekið ákvörðun um að breyta klukkunni aftur, þannig að sum- artími verði aðeins á sumrin. Til- skipun um það verði gefin út innan tíðar. Pútín tók við forsetaembættinu á ný í maí síðastliðnum eftir að hafa verið forsætisráðherra í eitt kjörtímabil. Medvedev gegndi for- setaembættinu á meðan. - gb Pútín Rússlandsforseti vill hverfa frá því að hafa sumartíma allt árið: Rússar hringla með tímann DMITRÍ MEDVEDEV Breytti klukkunni fyrir tveimur árum og stendur gegn því að breyta aftur. NORDICPHOTOS/AFP FRÉTTASKÝRING Hver er staða Bjarna Benediktssonar fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins? Flest bendir til þess að Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir muni standa í fylkingar brjósti Sjálfstæðisflokks- ins í komandi alþingiskosningum, en Hanna Birna tilkynnti í gær að hún hygðist bjóða sig fram til embættis varaformanns flokksins á landsfundinum sem verður hald- inn í lok mánaðarins. Tilkynning Hönnu Birnu kom sama dag og fjölmiðlar greindu frá skoðanakönnun sem sýndi að rúm 80 prósent svarenda telja Hönnu Birnu sterkari formann fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, en tæp tíu prósent nefndu Bjarna. Capacent Gallup gerði könnunina fyrir félagsskap að nafni Samtök áhugafólks um stjórnmál, en ekki er vitað hverjir standa að honum. Sérstaka athygli vekur að þrír af hverjum fjórum svarendum sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðis- flokkinn, eru á því að Hanna Birna yrði sterkari formaður fyrir flokk- inn en sautján prósent þeirra töldu Bjarna verða sterkari formann. Bjarni og Hanna Birna buðu sig bæði fram til formanns á lands- fundi flokksins haustið 2011, og hlaut Bjarni þar um 55 prósent atkvæða. Eftir sterka útkomu í prófkjöri flokksins í haust, þar sem hún hlaut örugga kosningu í leiðtoga- sæti í Reykjavík fyrir þingkosn- ingarnar, tók Hanna Birna nokkuð afdráttarlaust fyrir að hún myndi bjóða sig fram til formanns á næsta landsfundi. Staða Bjarna þykir þó hafa veikst eftir niðurstöðu Icesave- málsins, sökum stuðnings hans við Buchheit-samninginn í þinginu, en ólíklegt má þó telja úr þessu að hann fái mótframboð sem ógni stöðu hans. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir í sam- tali við Fréttablaðið að könnunin sé varla til þess að styrkja stöðu Bjarna í formannsstóli. „Eðlilegast er að lesa þessa könnun sem tilraun einhvers hóps til að stefna Hönnu Birnu í for- mannsframboð. Könnuninni er beint gegn Bjarna að einhverju leyti og styrkir allavega ekki hans stöðu. Þarna hljóta að vera að verki einhverjir sem vilja sjá formannsskipti, en Hanna Birna hefur nú, með framboði til vara- formanns, stöðvað þá atburðarás og umræðu sem hefði annars getað farið af stað.“ thorgils@frettabladid.is Þykir varla styrkja stöðu formannsins Könnun sýnir mikinn stuðning við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í formanns- embætti Sjálfstæðisflokkins. Hún stefnir þó á varaformannsembættið. Stjórnmála- fræðingur segir stöðu Bjarna Benediktssonar varla hafa styrkst við þessa könnun. FORYSTA FLOKKSINS Hanna Birna Kristjánsdóttir tók í gær af öll tvímæli um fyrirætlanir sínar þegar hún lýsti því yfir að hún hygðist sækjast eftir embætti varaformanns á komandi landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hanna Birna tilkynnti í gær að hún gæfi kost á sér í embætti varafor- manns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. „Með framboði mínu vil ég styrkja þá öflugu forystusveit sem Sjálfstæðis- flokkurinn býr að um land allt, fá tækifæri til að vinna frekar að þeim breytingum sem þurfa að verða í stjórnmálum og leggja góðum verkum lið – í þágu hugsjóna Sjálfstæðisflokksins og hag alls almennings á Íslandi. Í komandi kosningum skiptir miklu að Sjálfstæðisflokkurinn nái góðum árangri og stuðli að nauðsynlegum breytingum til að binda enda á þá kyrrstöðu sem hér hefur hamlað uppbyggingu, framförum og lífskjörum á síðustu árum. Aðeins með því að koma núverandi ríkisstjórn frá getum við vænst þess að skattar og skuldir lækki, atvinna aukist og Ísland verði land tækifæra, lífsgæða og farsælla lausna.“ Í þágu flokksins og almennings
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.