Fréttablaðið - 09.02.2013, Page 10

Fréttablaðið - 09.02.2013, Page 10
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Magnús Jóhannesson hefur sagt skilið við umhverfisráðuneytið sem hefur verið starfsvettvangur hans í tvo áratugi, en hann tekur við framkvæmdastjórastöðu fasta- skrifstofu Norðurskautsráðsins á næstu dögum. Skrifstofan verður formlega opnuð eftir ráðherrafund ráðsins í vor og er henni ætlað að styrkja starf ráðsins og upplýsinga- gjöf um málefni norðurslóða. „Ég er fyrsti starfsmaður skrif- stofunnar og á næstu vikum mun ég vinna að því að setja skrif stofuna á fót, ráða starfsfólk. Það þarf að hafa hraðar hendur því skrifstofan þarf að vera orðin starfshæf um miðjan maí þegar Kanadamenn taka við formennsku í ráðinu af Svíum,“ segir Magnús. Magnús útskýrir að verkefni næstu missera og ára sé að styðja við starfsemi ráðsins sem er best lýst sem þrískiptu. Efsta lagið eru ráðherrafundirnir sem haldn- ir eru á tveggja ára fresti, en þar eiga aðild utanríkisráðherrar land- anna átta. Sendiherrar ríkjanna, auk fulltrúa frumbyggja, skipa embættis mannanefnd sem undir- býr ráðherrafundina. Síðan fjalla sex vinnunefndir um hin ýmsu mál og koma sínum niðurstöðum til embættismannanefndarinnar og endanlegar ákvarðanir eru teknar á fundum ráðherranefndarinnar. Aukið mikilvægið Á ráðstefnu um málefni norður- slóða í Tromsö á dögunum, Arctic Frontiers 2013, kom skýrt fram að mikilvægi svæðisins í alþjóðlegu tilliti hefur snarvaxið á undan- förnum árum. Þungavigtarmenn í heimi stjórnmála og vísinda undir- strikuðu þetta og mikilvægi fasta- skrifstofunnar í því tilliti. Undir þetta tekur Magnús. „Norður- skautsráðið fjallar um umhverf- ismál, sjálfbæra þróun og þró- unarmál almennt. Allt er þetta að taka á sig skýrari mynd vegna vaxandi athafna manna á svæðinu, og er rétt að nefna siglingar og vaxandi ferðamennsku á svæðinu með opnun siglingaleiða. Það er mikið að gerast og umræður um nýtingu auðlinda og breyting- ar vegna síminnk- andi íshellu eru áber- andi,“ segir Magnús og bætir við að stór þáttur í starfi skrif- stofunnar verði að upp- lýsa almenning á norð- urskautssvæðinu; hvaða breytingar eru að verða og hvað ráðið er að gera til að bregðast við þess- um breytingum. „Eins mun starfið snúast um að upp- lýsa heiminn því þetta er ekki einkamál þeirra sem búa á norð- urslóðum,“ segir Magnús. Fjórar milljónir manna Svæðið sem Norðurskautsráðið tekur til er mjög stórt. Þar búa um fjórar milljónir manna og miklir hagsmunir eru þar fyrir marga; siglingar, námavinnsla, olía og gas, svo fátt eitt sé nefnt. Þessir hags- munir ná til landa sem eiga landa- mæri langt frá norðurslóðum og því er áhugi mikill á að öðlast áheyrnar- aðild að ráðinu. Spurður um þetta tekur Magnús dæmi. „Siglingar eru alþjóðleg starfsemi og Alþjóða- siglingamálastofnunin (IMO) setur reglur um öryggi siglinga. Norður- skautsríkin leggja mikla áherslu á að IMO setji sérstakar reglur um byggingu og búnað skipa sem sigla um norður slóðir. Vilji er til þess að í gildi verði sérstakar norður- skautsreglur um siglingar um svæðið og þá er mikilvægt að hafa stuðning annarra ríkja, og margir eru þeirrar skoðunar að það muni styrkja ráðið að löndum fjölgi sem hafa áheyrnaraðild að ráðinu, enda styðji þau við starfsemi og markmið ráðsins.“ Stakkaskipti Þegar Magnús er spurður um helstu álitaefni á vettvangi Norðurskauts- ráðsins segir hann að hafa beri hugfast að á síðustu fimmtán árum hafi vitneskja um norðurslóðir tekið stakkaskiptum. „Það er búið að byggja upp mikinn þekkingar- grunn. Við stofnun ráðsins þekktu menn lítið til náttúru svæðisins, svo tekið sé nærtækt dæmi. Nú er þetta gjörbreytt og að tryggja sjálfbæra þróun er eitt af meginmarkmiðum ráðsins. Ríkin eru því í mun betri aðstöðu til að taka ákvarðanir til framtíðar, og tryggja betur sjálf- bærni í þróun svæðisins.“ Magnús segir að norður slóðir beri oft á góma í sambandi við loftslagsbreytingar. Skýrsla sem var unnin á vegum ráðsins 2004 um loftslagsbreytingar á svæðinu vakti mikla athygli. Þar var dregið fram að breytingarnar væru mun meiri en almennt var talið. Niður- stöðu skýrsluhöfunda var tekið með nokkrum efa, enda var þar reikn- að með að breytingarnar væru Nú í vor er væntan- leg ný skýrsla, sem kynnt verður á ráðherrafund- inum í Kiruna í Svíþjóð, frá einum af undirhópum Norðurskautsráðsins þar sem staðfest er að breyt- ingarnar hafa orðið enn meiri en menn gerðu ráð fyrir í skýrslunni 2004, sem þá þótti nokkuð brött.“ Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Mikilvægi norðurslóða eykst sífellt Áhugi alþjóðasamfélagsins á norðurslóðum eykst ár frá ári. Norðurskautsráðið er í miðri hringiðunni en nýstofnaðri fastaskrifstofu ráðsins verður stýrt næstu árin af Magnúsi Jóhannessyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Hann kannast ekki við kapphlaup þjóða um auðlindir eða spennu landa á milli á hinu pólitíska sviði. Staða Íslands innan ráðsins er sterk. MAGNÚS JÓHANNESSON hefur starfað sem ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins frá árinu 1992 og var áður siglingamála- stjóri frá árinu 1985. Næstu fjögur árin, hið minnsta, mun hann gegna stöðu framkvæmdastjóra fastaskrifstofu Norðurskauts- ráðsins í Tromsö. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Norðurskautsráðið (Arctic Council) er alþjóðleg stofnun og á upphaf sitt að rekja til Ottawa-yfir- lýsingarinnar frá 1996, en Kanadamenn fóru með formennsku ráðsins í byrjun. Ráðið er samstarfsvettvangur þeirra ríkja sem liggja að norðurheimskautssvæðinu. Stofnríkin eru sjö auk Íslands; Bandaríkin (Alaska), Danmörk (Færeyjar og Grænland), Finnland, Ísland, Kanada, Noregur, Rússland og Svíþjóð. Í ráðinu sitja einnig fastafulltrúar sex frum- byggjasamtaka á svæðinu og áheyrnarfulltrúar nokkurra ríkja utan norðurslóða (Bretlands, Frakklands, Hollands, Póllands, Spánar og Þýskalands), auk full- trúa ýmissa samtaka. Aðildarríki ráðsins skiptast á að gegna formennsku. meiri en vísinda nefnd Sameinuðu þjóðanna hafði spáð fyrir um. „Í vor er væntanleg ný skýrsla, sem kynnt verður á ráðherrafundinum í Kiruna í Svíþjóð, frá einum af und- irhópum Norðurskautsráðsins þar sem staðfest er að breytingarnar hafa orðið enn meiri en menn gerðu ráð fyrir í skýrslunni 2004, sem þá þótti nokkuð brött,“ segir Magnús. Merkilegt samstarf Að ráðinu standa átta ólíkar þjóðir, en Magnús telur enga ástæðu til að halda að það valdi árekstrum í framtíðinni frekar en á undanförnum árum. „Ég tel samstarf ríkjanna innan Norður- skautsráðsins afar merkilegt. Fyrir ekki svo löngu ríkti kalda stríðið, meðal annars á þessu svæði og þá var samstarf af þessu tagi óhugsandi. Auðvitað eru ríkin mismunandi og hafa eitthvað mis- munandi áherslur, en þetta er sam- starfsvettvangur og mér finnst mjög merkilegt hvernig starf ráðs- ins hefur þróast og hversu vel það hefur gengið. Ég lít á það sem meginverkefni skrifstofunnar að styrkja þetta samstarf enn frekar. Ég hef ekki áhyggjur af þessum þætti og held að starfið verði vanda- laust áfram.“ Kapphlaup – eða ekki Kapphlaup um auðlindir ber oft á góma í umræðu um norðurslóð- ir. Haldið er fram að áhuga stórra þjóða, og er Kína oft nefnt í þeirri andrá, megi skýra með ávinningi af nýtingu náttúruauðlinda sem svæð- ið hefur að geyma. „Ég hef ekki orðið var við þessa meintu spennu. Hagsmunir ríkjanna fara saman. Umhverfisvernd hefur borið hæst í þessu starfi og það liggur fyrir býsna góð kortlagning af náttúru svæðisins og þeim auðlindum sem þar kunna að leynast. En auðvitað má auka við þá þekkingu með aukn- um rannsóknum og kortlagningu.“ Sterk staða Íslands Almennt eru málsmetandi menn sammála um að mikilvægi norður- slóða eigi eftir að aukast; stofnun fastaskrifstofunnar er höfð til marks um það. Spurður um hlut- verk Íslands og hagsmuni Íslend- inga, svarar Magnús að Ísland hafi verið virkt í starfi ráðsins frá upp- hafi og hafi sett sér metnaðarfulla stefnu í norðurskautsmálum. „Það er undir íslenskum stjórnvöldum komið hvernig því verður fylgt eftir, en í dag met ég stöðu lands- ins í samstarfinu sterka. Ég held að svo verði áfram og að Ísland standi jafnfætis öðrum þjóðum innan ráðs- ins.“ Norðurskautsráðið (Arctic Council) 90°N Norðurleiðin Norðvesturleiðin Finnland Rússland Svíþjóð Noregur Ísland Grænland Kanada Bandaríkin Alaska Íshellan 16. september 2012 Íshellan 18. september 2007 Íshellan meðaltal 1979-2000 Norðurheimskautsbaugur Í GEGNUM ÍSINN Siglingar á norðurslóðum eru sífellt að aukast, skipin eru stór og aðstæður hættulegar. MYND/RANNÍS VIÐ AL | 10 MAGNÚS JÓHANNESSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI NORÐURSKAUTSRÁÐSINS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.