Fréttablaðið - 09.02.2013, Side 72

Fréttablaðið - 09.02.2013, Side 72
6 menningu eru ótvíræð. Kína er ekki lengur mjög jarlægt eða er tt að n lga t það. Kína er í bakgarðinum hjá okkur og með aukinni hnattvæðingu ha a áhri n orðið meiri,” segir Geir Sigurðsson námsgreinastjóri kínverskra fræða við Háskóla Íslands og forstöðumaður Asíuseturs Íslands. Geir kennir sögu Kína, menningu og samfélagsþróun. Kínversk fræði er tiltölulega nýtt nám í Háskóla Íslands. Það hófst haustið 2007 og hefur vaxið og dafnað síðan þá. Námið er byggt upp á svipaðan hátt og önnur menningarfræði, segir Geir. „Tungumálið er fyrirferðamikið, ef til vill enn fyrirferðameira en í öðrum tungumálagreinum sem kenndar eru við Háskólann. Ástæðan fyrir því er að ekki eru gerðar forkröfur um grunnþekkingu nemenda. Það er ekki hægt að ætlast til þess að nemendur séu komnir áleiðis með tungumálið. Samtímis er ekki síður mikilvægt að læra um menningu og samfélagsþróun Kína,“ segir hann. Þess vegna séu í boði námskeið í kínverskum stjórnmálum, efnahagsmálum, heimspeki, trúarbrögðum, kvikmyndum og bókmenntum svo eitthvað sé nefnt. Einnig er lögð mikil áhersla á að nemendur fari til Kína og taki hluta af námi sínu þar. Geir segir að það sé gert bæði með tungumálið fyrir augum en ekki síður til nemendur að öðlist dýpri skilning á menningunni og samfélaginu. Mandarín útbreiddust Kínverska mállýskan mandarín er kennd við HÍ en hún er opinbert ríkismál landsins og jafnframt útbreiddust. „Mandarín er tiltölulega ókið mál en málfræðilega frekar einfalt. Það eru aðrar víddir sem eru er ðar, sérstaklega er er tt að tileinka sér góðan framburð og átta sig á tónunum. Þegar það er komið er auðvelt að byggja ofan á það,“ segir Geir. Hann segir að uppbygging málsins sé töluvert ólík því sem Íslendingar eigi að venjast og spila táknin þar stórt hlutverk. Margir hafa haldið því fram að þau muni víkja fyrir hinu staðlaða stafró en Geir er ekki sammála því. Að hans mati er næstum ógerlegt að skipta táknunum út fyrir hið staðlaða stafróf, til þess séu of fá atkvæði í tungumálinu og einnig sé talmálið margræðara en ritmálið. Geir segir að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir þjóð eins og Ísland að eiga fólk sem þekki kínverskt samfélag, skilji tungumálið, menninguna og viðskiptin. Óvenjulegir tímar „Við erum að upplifa óvenjulega tíma í heiminum. Á undanförnum 30 árum hefur Kína verið að feta sig aftur inn í alþjóðasamfélagið frá því að vera í mikilli einangrun. Vöxturinn og breytingarnar sem hafa átt sér stað í Kína eru algjörlega fordæmalausar. Í dag er Kína orðið annað stærsta efnahagsker í heiminum og bendir ekkert til að áhrif Kína fari þverrandi í komandi framtíð. Annað sem ekki er síður mikilvægt að hafa í huga er að Vesturlöndin eru líka að kínavæðast. Áhri n af kínverskri menningu eru orðin sýnilegri en fyrir nokkrum áratugum,“ segir hann og nefnir sem dæmi kínverska matseld, kvikmyndir, tísku og bókmenntir. Frelsi takmarkað Geir segir að það sem sé er ðast fyrir Vesturlandabúa að skilja í kínverskri menningu séu tvímælalaust stjórnmálin. Í Kína sé alræðisstjórn við völd og þar ráði kommúnista okkurinn för. Engir aðrir okkar hafa áhrif á mikilvægar ákvarðanir. relsi ha vissulega aukist töluvert síðustu 30 árin en þróunin ha mátt vera hraðari. “Tjáningarfrelsi og prentfrelsi er skorið við nögl,” segir Geir. Stjórnvöld í Kína treysti almenningi lítt til að taka ákvarðanir og lýðræðishefð þekkist varla þar eystra. Frelsi einstaklingsins sé látið víkja fyrir hagsmunum heildarinnar, sem skýrist ef til vill af íbúafjöldanum en Kínverjar eru tæplega einn og hálfur milljarður. Aðsókn í kínversk fræði í HÍ hefur aukist töluvert frá ári til árs og aldrei hafa eiri skráð sig en síðasta haust eða 20 nemendur. Viðskiptahluti námsins hefur vaxið ört síðustu ár og í fyrra var í fyrsta sinn boðið upp á viðskiptatengda kínversku sem kjörsvið. Geir segir það hafa verið spennandi verkefni og gefandi að byggja námsgreinina upp. „Ég var réttur maður á réttum stað,” segir Geir og brosir hæverskur. -Pála Hallgrímsdóttir Kína er ekki lengur fjarlægt okkur Aðsókn í kínversk fræði í HÍ hefur aukist töluvert undanfarin ár og aldrei hafa eiri skráð sig en síðasta haust. Mynd: Hrafnhildur Jóhannesdóttir Stöðupróf í kínversku 24. mars 2013 Stöðupróf í kínversku (HSK-próf) verður haldið við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós sunnudaginn 24. mars nk. í Nýja Garði við Háskóla Íslands. Þátttakendur skulu skrá sig rafrænt á netfanginu http://www. hinesetest. n/index.do. Síðasti skráningardagur er 2 . febrúar nk. HSK-próf skulu þeir taka sem: - Hyggjast sækja um styrk til náms í Kína. - Hyggjast sækja um nám í kínversku eða sambærilegum greinum við kínverskan háskóla. Allar nánari upplýsingar um umsóknarferlið eða pró ð sjálft veitir Kailiang iu í síma 2 422 og kailiang hi.is. Geir Sigurðsson námsgreinastjóri kínverskra fræða. Mynd: Hrafnhildur Jóhannesdóttir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.