Fréttablaðið - 09.02.2013, Síða 96

Fréttablaðið - 09.02.2013, Síða 96
9. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 68 Vöðvabúntin og testósteróntröll- in Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone virðast eiga níu líf í kvikmyndabransanum. Þrátt fyrir að vera komnir vel á sjötugs- aldurinn leika þeir báðir í nýjum hasarmyndum sem eru komnar í bíó hérlendis. Schwarzenegger í The Last Stand og Stallone í Bullet to the Head. Hér áður fyrr voru þeir tvær af heitustu hasarmyndhetjum heimsins eftir að hafa túlkað Rocky, Rambó, Tortímandann og villimanninn Conan eins og þeim einum er lagið. Núna, rúmum fjörutíu árum eftir að þeir hófu feril sinn, eru þeir enn að og virð- ast ekkert ætla að slaka á í bráð. Báðir gengu þeir í gegnum þurrkatímabil. Hjá Stallone stóð það yfir í rúman áratug, eða til ársins 2006 þegar hann ákvað að draga upp boxhanskana að nýju í sjöttu myndinni um Rocky. Síðan þá hefur honum geng- ið allt í haginn. Endur- koma Rambo 2008 gekk vel og The Expenda- bles-mynd- irnar hans tvær hafa báðar hitt í mark. Sú þr iðja er ei nmit t í undirbúningi en Schwarzenegger lék einmitt nokkuð stórt hlutverk í henni. Schwarzenegger átti erfið ár frá 1997 þegar hann lék í hinni misheppnuðu Batman & Robin þangað til árið 2003 er hann lék Tortímandann í þriðja sinn við góðar undirtektir. Eftir að hafa tekið sér hlé frá kvikmynda- leik til að sinna starfi ríkisstjóra Kaliforníu sneri Schwarzenegger aftur. Að sjálfsögðu eru gamlir kunningjar handan við hornið hjá honum því The Legend of Conan á að koma út á næsta ári, auk þess sem hann hefur verið orðaður við hlutverk í Terminator 5. Vinsæl vöðvabúnt Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone eru báðir komnir vel yfi r sextugt. Þrátt fyrir það eru þeir báðir í sviðsljósinu í tveimur nýjum hasarmyndum. FYRIR TUTTUGU ÁRUM Stallone og Schwarzenegger bitust um bíógestina hér á landi fyrir tuttugu árum þegar Cliffhanger og The Last Action Hero voru samtímis í bíó. Stallone Fæddur: 1946 í New York Hæð: 177 cm Fyrsta mynd: The Party at Kitty and Stud‘s (1970) Sló í gegn: Rocky (1976) Mesta klúðrið: Oscar (1991) Schwarzenegger Fæddur: 1947 í Austurríki Hæð: 188 cm Fyrsta mynd: Hercules In New York (1970) Sló í gegn: Conan the Barbarian (1982) Mesta klúðrið: Last Action Hero (1993) SAMHERJAR Vel fór á með Stallone og Schwarzenegger á frum- sýningu The Expendables 2 í fyrra. NORDICPHOTOS/GETTY BÍÓ ★★★★ ★ The Last Stand Leikstjórn: Kim Ji-woon. Leikarar: Arnold Schwarzenegger, Forest Whitaker, Johnny Knoxville, Luis Guzmán, Jaimie Alexander, Edu- ardo Noriega, Peter Stormare, Génesis Rodríguez. Það eru liðin tíu ár síðan Arnold Schwarzenegger var síðast í stóru hlutverki í kvikmynd, en hann eyddi megninu af síðasta áratug í að safna spiki í ríkisstjórastól Kaliforníufylkis Bandaríkjanna. En kjörtímabilinu er lokið og þessi gamli harðjaxl er mættur aftur á hvíta tjaldið í kvikmyndinni The Last Stand. Segir hún frá lögreglustjóra í smábæ einum, rétt norðan við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó, sem þarf að taka á honum stóra sínum þegar lífshættuleg- ur eiturlyfjabarón er væntanleg- ur í gegnum bæinn. Sá er á flótta undan lögreglu og freistar þess að komast yfir landamærin. Skerfar- inn er ekki með marga lögreglu- menn á sínum snærum og þarf hann því að grípa til ýmissa óhefð- bundinna ráða til þess að eiga roð í skúrkinn. Myndin er þrælskemmtileg og sérstaklega vel sniðin að þörfum hinnar öldnu hasarhetju. Það er töggur í gamla þó skrokkurinn sé farinn að láta á sjá og fimmaura- brandarar um elli Arnolds undir- strika það að hann gerir sér fulla grein fyrir því að hans bestu ár eru að baki. Leikhópurinn virðist skemmta sér vel og það er kær- komið að sjá hinn frábæra Luis Guzmán í nokkuð stóru hlutverki, aldrei þessu vant. Það verður þó að segjast að Forest Whitaker er lítið sannfærandi sem FBI-hörkutól. The Last Stand mun seint teljast til lykilmynda Svaka naggsins en er eldhress endurkomumynd og stendur undir öllum þeim vænt ingum sem til hennar eru gerðar. Bílaeltingarleikirnir, handalög málin og blóðugir byssu- bardagarnir standast ströngustu gæðakröfur hasarhundsins og ljóst er að Arnold kann þetta enn þá. Haukur Viðar Alfreðsson NIÐURSTAÐA: Schwarze negger stenst endurtökuprófið með glæsibrag. Eldhress endurkoma THE LAST STAND „Það er töggur í gamla þó skrokkurinn sé farinn að láta á sjá …“ Það eru ótal bækur sem hafa breytt lífi mínu en kannski eru fáar sem skiptu jafn miklum sköpum og ljóðasafnið Glímuskjálfti, ritsafn Dags Sigurðarsonar. Ég vissi ekki hvað ljóð gætu verið fyrr en ég las Dag– vissi ekki að orð gætu orðið neitt í líkingu við Kvíabryggjukantötuna, að þessi leikur, þessi gleði og þessi gredda gæti verið uppistaðan og undirstaðan í bókmenntum. Í Glímuskjálfta er líka að finna þýðingar, meðal annars á Ameríku eftir Allen Ginsberg, sem ég þýddi svo aftur sjálfur seinna (og fannst og finnst enn vera hálfgerð helgispjöll að þýða það upp á nýtt). Ginsberg opnaði síðan dyrnar að enn fleiri og magnaðri bókmenntum– ég held áfram að fleyta kerlingar skáld af skáldi, þetta er keðju- verkun sem sér ekki enn fyrir endann á. Það er verst að ég man ekkert hvernig ég komst yfir þessa bók, kannski ég hafi keypt hana á bókamarkaði í Hnífsdal í misgripum fyrir einhverjar kommúnista- bókmenntir (sem voru mínar ær og kýr á fyrstu menntaskólaárunum). Glímuskjálft i eft ir Dag Sigurðarson BÓKIN SEM BREYTTI LÍFI MÍNU Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI - NÚ Í BÍÓ MYND EFTIR STEVEN SPIELBERG -Empire -Roger Ebert-R.P., MBL
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.