Fréttablaðið - 12.02.2013, Síða 6
12. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Númer hvað er þrettánda hæðin á
Höfðatorgi?
2. Hvar vill starfshópur á vegum
Reykjavíkurborgar láta gera nýjar
sundlaugar?
3. Hvað heitir formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga?
SVÖR
1. Hún er númer fjórtán. 2. Í Fossvogi og
Vatnsmýri. 3. Elsa B. Friðfi nnsdóttir.
LÖGREGLUMÁL Tveir piltar, sautján til átján
ára, lentu í átökum í miðbæ Vestmannaeyja
á öðrum tímanum aðfaranótt sunnudags sem
lyktaði með því að annar þeirra stakk hinn
með vasahníf.
Sá stungni fékk sár við olnbogabótina og
missti talsvert blóð, að sögn lögreglu. Hann
fékk aðhlynningu og var saumaður á sjúkra-
húsi.
Sá sem mundaði hnífinn gaf sig fram við
lögreglu, var yfirheyrður og sleppt í kjöl-
farið. Ekki þótti ástæða til að vista hann í
fangageymslum um nóttina, en það hefði auk
þess kostað útkall á lögreglumanni þar sem
lögreglustöðin er lokuð frá því klukkan þrjú á
nóttunni.
„Við höfum þurft að skera mikið niður eins
og aðrar stofnanir og það er engin vakt eftir
þrjú,“ segir Jóhannes Ólafsson, yfirlögreglu-
þjónn í Eyjum. „Ef það þarf að setja einhvern
inn þá þarf að hafa menn á aukavakt til þess –
og auðvitað gerum við það ef á þarf að halda.“
Ólafur er hins vegar ekki sáttur við ástand-
ið. „Það er verið að fara nánast hundrað ár
aftur í tímann. Það er ótækt í bæjarfélagi sem
telur nánast fimmtán þúsund manns að það sé
ekki full vakt alla nóttina. Ég tala nú ekki um
á sumrin þegar fjölgar um tugi þúsunda.“ - sh
Yfirlögregluþjónn í Eyjum segir ótækt og forneskjulegt að hafa lögreglustöðina ekki opna alla nóttina:
Stakk mann og var sleppt eftir játningu
ÚTI Í EYJUM Það kostar tilstand að vista mann í fanga-
klefa eftir klukkan þrjú að nóttu í Vestmannaeyjum.
MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
SPILAR
ÞÚ STYRKIR OKKUR
ÞEGAR ÞÚ
Þegar þú spilar í kössunum okkar
styrkir þú Rauða krossinn, SÁÁ og
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
HEILBRIGÐISMÁL Slímhúðarskemmd-
ir í munni og önnur mein af völdum
tóbaks sem sett er í munn getur
komið af stað ferli sem endar með
krabbameini. Þetta segir Agnes
Smáradóttir, krabbameinslæknir á
Landspítalanum. Hún segir tann-
lækna hafa orðið vara við slíkar
skemmdir og kveðst óttast að
munntóbaksnotkun ungmenna nú
eigi eftir að koma fram í holskeflu
krabbameins í munnholi og hálsi
eftir um tuttugu ár eða svo.
„Ef skemmdir sjást í fólki á tví-
tugsaldri þá verður það um fertugt
eftir tuttugu ár, og það er heldur
ungt til að fá krabbamein.“
Hingað til segir Agnes mjög erfitt
hafa verið að meðhöndla krabba-
mein í munnholi og hálsi. „Þau
dreifa sér ekki mikið, en vaxa mjög
aggressívt, þannig að kannski þarf
að taka kjálkann eða tunguna. Það
er meiriháttar mál að fá þessa teg-
und krabbameins.“
Agnes varar við fullyrðingum,
sér í lagi í tengslum við frumvarp
til breytinga á lögum um tóbaks-
varnir, um að munntóbak sé skað-
lítið, eða góður kostur fyrir fólk sem
vilji hætta að reykja.
„Ég veit nú samt ekki til þess
að gerðar hafi verið rannsóknir á
íslensku tóbaki, en geri ekki ráð
fyrir að það sé bráðhollt í saman-
burði við erlent munntóbak, þótt
vissulega geti það verið misjafnt.“
Margbúið er að sýna fram á skað-
semi munntóbaks í erlendum rann-
sóknum, þar á meðal nýjum rann-
sóknum á „sænsku snusi“ sem bendi
til að notkun þess leiði til aukinnar
hættu á krabbameini í munnholi
og hálsi. „Og maður hefur af þessu
verulegar áhyggjur því markhópur-
inn sem er að nota þetta eru ungir
íþróttamenn.“
Agnes segir umræðuna nú minna
á umræðu um reykingar fyrir um
þrjátíu árum. „Þá hafði enginn trú
á því að þetta gæti haft einhvern
skaða í för með sér. En svo kemur
í ljós að í heiminum deyja hundruð
milljóna manna af völdum reyk-
inga.“ olikr@frettabladid.is
Munntóbakið valdi
hrinu krabbameina
Krabbameinslæknir óttast að afleiðingar munntóbaksnotkunar ungmenna muni
koma fram síðar í aukinni tíðni alvarlegra krabbameina hjá fólki á besta aldri.
Umræðan nú sé eins og tíðkaðist um sígarettur fyrir þrjátíu árum.
HEFUR ÁHYGGJUR Agnes Smáradóttir, krabbameinslæknir á Landspítalanum,
óttast að aukin notkun munntóbaks eigi eftir að skila sér í holskeflu krabbameins-
tilvika hjá fólki á besta aldri þegar fram líða stundir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TÓBAK Ungir íþróttamenn eru meðal þeirra sem líklegastir eru til að nota munn-
tóbak. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMFÉLAGSMÁL Kvennaathvarfið
flutti í nýtt hús um síðustu helgi.
Húsið var keypt og endurbætt
fyrir gjafa- og söfnunarfé.
„Í nýja húsinu eru fleiri svefn-
herbergi, fleiri baðherbergi og
almennt betri aðstaða svo meira
næði verður innanhúss, auk þess
sem næturlíf miðborgarinnar
mun ekki halda vöku fyrir íbúum
hússins,“ segir í tilkynningu frá
athvarfinu. Aðgengi fyrir hreyfi-
hamlaða er betra og börn fá sitt
pláss bæði inni og úti. - þeb
Fluttu um helgina:
Kvennaathvarf í
nýtt húsnæði
PERSÓNUVERND Fjölskylduhjálp
Íslands er heimilt að krefja
þá sem leita matarstoðar hjá
félaginu um afrit af skattfram-
tali. Persónuvernd hefur úrskurð-
að að vinnsla Fjölskylduhjálpar-
innar á framtölunum sé í þágu
líknarsamtaka og teljist liður
í lögmætri starfsemi þeirra.
Félagið sagði þessa kröfu hafa
verið gerða í kjölfar mikill-
ar aukningar á umsóknum um
aðstoð.
Það var kona ein sem leitaði
aðstoðar hjá Fjölskylduhjálpinni
í fyrravor sem óskaði eftir áliti
Persónuverndar á málinu. Sagði
konan meðal annars að hvorki
væri gefin kvittun fyrir móttöku
framtalsins né trúnaði heitið.
Fjölskylduhjálpin í rétti:
Má krefjast
skattframtals
FJÖLSKYLDUHJÁLPIN Vilja kanna þörf
umsækjenda.
VINNUMARKAÐUR
Atvinnuátaksverkefnið Liðs-
styrkur hefur farið afar vel
af stað, segir á vef Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Um 600
störf hafa nú þegar verið skráð
í starfabankann, þar af hefur
Reykjavíkurborg skráð um 150
störf, Kópavogur um 100 og sveit-
arfélög á Suðurnesjum um 50.
Liðsstyrkur er átaksverkefni
sem hóf göngu sína í janúar 2013.
Markmiðið með verkefninu er að
virkja atvinnuleitendur sem hafa
fullnýtt rétt sinn innan atvinnu-
leysistryggingakerfisins til þátt-
töku að nýju á vinnumarkaði.
Auk Vinnumálastofnunar
standa að verkefninu fjölmarg-
ir aðilar; ríkið, aðilar vinnu-
markaðarins og sveitarfélög.
Stefnt er að því að skapa allt að
2.200 sex mánaða starfstengd
vinnumarkaðs úrræði á árinu
2013. - shá
Átaksverkefnið Liðsstyrkur:
Um 600 störf
þegar skráð
Í VINNU Ætlunin er að skapa 2.200
tækifæri fyrir langtímaatvinnulausa.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
RÚSSLAND
18 fórust í kolanámu
Átján námuverkamenn fórust þegar
sprenging varð í kolanámu í norður-
hluta Rússlands í gærmorgun. 240
manns voru að störfum þegar spreng-
ingin varð, en talið er að metangas hafi
safnast þar fyrir.
VEISTU SVARIÐ?