Fréttablaðið - 12.02.2013, Qupperneq 20
Bílar ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 20132
Einn af stærri jepplingum sem bjóðast hér á landi er Kia Sorento. Sorento hefur
selst vel hér á landi undanfarin ár
og 115 ný eintök komu á götuna í
fyrra og 94 árið 2011. Í fyrra var því
einn af hverjum 69 nýju bílum sem
komu á götuna af gerðinni Kia So-
rento. Kia Sorento á systurbíl í Hy-
undai Santa Fe og deila þeir fleiru
en vélbúnaði. Nýjasta árgerð So-
rento er talsvert breytt frá fyrri
gerð og munar vel um þær breyt-
ingar. Þessi breyting telst þó ekki
til nýrrar kynslóðar bílsins, en
hann kom fyrst með þessu útliti af
2010 árgerð. Bíllinn fær nú alger-
lega nýjan og betri undirvagn, en
dulitlar útlitsbreytingar hafa einn-
ig orðið á honum sem og jákvæð-
ar breytingar í innanrými. Að utan
munar mestu á fram- og afturenda
bílsins og hann hefur nú fengið
lóðrétt þokuljós sem setja nokkuð
nýjan svip á laglegan bílinn.
Léttari, stífari og betri
Kia Sorento var bæði prófaður í
nágrenni Barcelona sem og við
erfiðari vetraraðstæður hérlend-
is. Sorento hefur fengið alveg nýja
fjöðrun sem gert hefur hann að
mun betri akstursbíl. Í hann er
nú notað mun meira hástyrktar-
stál en áður sem gert hefur hann
bæði léttari og stífari. Sorento er
þó áfram jepplingur af stærri gerð-
inni og fyrir þyngd hans og stærð
finnst og allar hreyfingar hans
minna enn þá meira á jeppa en
fólksbíl. Á móti kemur að hann er
einstaklega rúmur og mikill bíll
sem tekur marga farþega og mik-
inn farangur. Engin breyting hefur
orðið á vélinni sem í boði er, hún
er áfram 2,2 lítra dísilvél, 197 hest-
afla og togar 422 Nm. Sorento er
aðeins í boði hér á landi með þess-
ari vél, enda lítil ástæða til annars.
Í fyrsta lagi er þetta afar góð vél
og öflug og hún er sparneytin að
auki og eyðir aðeins 6,7 lítrum í
blönduðum akstri. Með henni er
þessi tæplega 1.900 kg jepplingur
10,7 sekúndur í hundraðið og ein-
hvern veginn skortir hann aldrei
afl. Fyrir vikið verður Sorento ári
skemmtilegur bíll að leika sér á
ef sá gállinn er á manni. Hann á
þó nokkuð mikið í land að jafna
akstursánægju úrvalsjeppa eins
og Porsche Cayenne eða BMW
X5, en hafa verður í huga að þar er
um að ræða helmingi dýrari bíla
og því er sá samanburður allt að
því ósanngjarn. Margir aðrir jepp-
lingar sem bjóðast eru með mun
aflminni vélar svo það verður að
teljast með einum stærsta kosti
Sorento hversu öflugur hann er.
Með þessa sterku vél getur hann
að auki tekið í tog tveggja tonna
aftanívagn. Það eykur sannarlega
notagildi hans. Sorento er með
6 gíra sjálfskiptingu sem vinnur
vinnuna sína rétt, lítið finnst fyrir
Flottur jepplingur
af stærri gerðinni
Með miklu innanrými og stórri og öflugri dísilvél er Sorento meiri bíll en
margur annar jepplingurinn.
2,2 dísilvél – 197 hestöfl
Fjórhjóladrif
Eyðsla: 6,7 l./100 km í
blönduðum akstri
Mengun: 175 g/km CO2
Hröðun: 10,7 sek.
Hámarkshraði: 190 Km/klst
Verð: frá 7.760.777 kr.
Umboð: Askja
Kia Sorento
Nýr Sorento fær alveg nýjan og betri undirvagn og fjöðrun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Reynsluakstur Kia Sorento
Öflug 197 hestafla vél
sem eyðir samt aðeins
6,7 lítrum á hundraði.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Boltinn á Xinu 977
– alla virka daga kl. 11 - 12