Fréttablaðið - 02.03.2013, Page 4

Fréttablaðið - 02.03.2013, Page 4
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 SLYS Einn lést þegar bíll fór út af veginum við Norðurárdal í Skagafirði um miðjan dag í gær. Þrír til viðbótar voru í bílnum og voru allir fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar á Landspít- alann. Einn var alvarlega slasað- ur en tveir voru með meðvitund þegar komið var að slysinu. Ekki fengust nánari upplýs- ingar um líðan þeirra áður en Fréttablaðið fór í prentun. - þeb Óku út af í Norðurárdal: Lést í bílslysi í Skagafirði 23.02.2013 ➜ 01.03.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is 400 GRÖMM af gulli eru í hverju tonni af jarðvegi í Þormóðsdal, hundraðfalt það magn sem þarf til að vinna gullið. 454 MILLJARÐAR Áætlað er að krónueignir þrotabúa Kaup- þings og Glitnis nemi að minnsta kosti 454 milljörðum króna. 23 2,5 KÍLÓMETRAR Sérfræðingar dönsku straumfræðistofn- unarinnar vilja færa ós Markarfl jóts til austurs til að bjarga Landeyjahöfn. 26,1% aðspurðra styður Framsóknarfl okk- inn í nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 20 ÍSLENSKIR TÓNLISTARMENN og hljómsveitir eru með plötusamninga í útlöndum. eru í landsliðshópi kvenna í fótbolta fyrir Algarve- mótið í næsta mánuði. EKKERT NAUTAKJÖT fannst í nautaböku Gæðakokka. 10.000 KINDAHRÆ eru látin rotna á fj öllum eft ir óveðrið sem gekk yfi r Norðausturland í september. Tekið skal fram að Kristján Þór Júlíusson hefur aðeins einu sinni boðið sig fram í embætti formanns Sjálf- stæðisflokksins, ólíkt því sem skilja mátti á skrifum í dálkinum Frá degi til dags í blaðinu í gær. LEIÐRÉTT Rangt var farið með nafn framboðs Alþýðufylkingarinnar í frétt um fylgi flokka í blaðinu í gær. Framboðið nefnist ekki Alþýðuhreyfingin, heldur Alþýðufylkingin. Veðurspá Mánudagur 18-23 m/s V-og N-lands. AFTUR VETUR eftir hlýindi undanfarinna daga. Frost NA-til í dag og kólnar enn til morguns. Vaxandi NA-átt á morgun NV-til með snjókomu og harðnandi frosti. NA-hvassviðri og snjókoma um mest allt land á mánudag. 3° 7 m/s 4° 6 m/s 4° 4 m/s 6° 4 m/s Á morgun Víða 3-10 m/s, vaxandi NA-átt NV-til. Gildistími korta er um hádegi -3° -5° -2° -3° -7° Alicante Basel Berlín 15° 11° 6° Billund Frankfurt Friedrichshafen 6° 7° 4° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 4° 4° 22° London Mallorca New York 8° 11° 7° Orlando Ósló París 17° 3° 8° San Francisco Stokkhólmur 17° 2° 3° 3 m/s 5° 3 m/s 1° 2 m/s -2° 2 m/s 1° 5 m/s 3° 7 m/s -4° 6 m/s 2° -3° 4° 3° 0° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður BANDARÍKIN „Rístu upp, ó Guð, og bjarga okkur frá sjálfum okkur,“ sagði Barry Black, þingprestur öldungadeildar Bandaríkjaþings, við upphaf þingfundar á fimmtu- dag. Þar vísaði hann til þess að þing- menn beggja flokka, demókratar jafnt sem repúblikanar, eru það fastir í skotgröfum sínum að þeir sáu engan möguleika á samkomu- lagi um fjárútgjöld ríkisins. Enda fór svo að þingfundi lauk án þess að nokkurt samkomulag tækist, þrátt fyrir að þar með væri runninn út sá tveggja ára frestur sem þingið hafði haft til að bjarga sér úr klípunni. Nú fer af stað sjálfkrafa nið- urskurður á fjárlögum upp á 85 milljarða dala, eða ríflega tíu þúsund milljarða króna. Sá nið- urskurður bitnar meðal annars á útgjöldum til hernaðarmála, menntamála, matvælaeftirlits og bitna með ýmsum hætti á almenningi. Nákvæmlega hvern- ig kemur þó varla í ljós fyrr en eftir helgi, því demókratar og repúblikanar hafa talað sitt á hvað um afleiðingar niðurskurð- arins og hversu alvarlegur hann yrði. Barack Obama forseti segir niðurskurðinn bitna á börnum, öldruðum, sjúklingum og her- mönnum auk þess sem hann geti kostað hundruð þúsunda Banda- ríkjamanna atvinnuna. Obama kennir óbilgirni repú- blikana alfarið um og segir að úr því sem komið sé geti það tekið nokkra mánuði að finna lausn á þessari deilu. Hann segir þennan niðurskurð vera bæði heimskulegan og handahófskenndan, en það verði þó enginn heimsendir: „Við skul- um hafa það á hreinu að ekkert af þessu er nauðsynlegt. Þetta er að gerast vegna ákvörðunar sem repúblikanar á þingi hafa tekið.“ Forsagan er sú að árið 2011 setti Bandaríkjaþing sér það markmið að minnka fjárlaga- hallann um 4.000 milljarða dala. Gefinn var til þess ákveðinn frestur, og samþykkt að næðist þetta metnaðarfulla markmið ekki áður en fresturinn rynni út, þá færi fyrrgreindur sjálfkrafa niðurskurður af stað. Þetta sagði hann eftir að leið- togar beggja flokka á þingi komu á fund hans í Hvíta húsinu í gær. gudsteinn@frettabladid.is Gátu ekki komist að neinu samkomulagi Sjálfvirkur niðurskurður á bandarísku fjárlögunum upp á 85 milljarða dala hófst um mánaðamótin, þar sem þingmönnum tókst ekki að koma sér saman um annað fyrirkomulag. Bitnar á öldruðum, börnum, sjúklingum og hermönnum. UPPGJÖF Í ÖLDUNGADEILD Öldungadeildarþingmennirnir Richard Durbin, Charles Schumin, Harry Reid og Patty Murray ganga af blaðamannafundi, þar sem þeir svöruðu spurningum um niðurskurðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP PÁFAGARÐUR, AP Páfalaust er í Róm eftir að Benedikt XVI hætti klukkan átta á fimmtu- dagskvöld. Þangað til nýr páfi verður kosinn taka nokkrir hátt- settir kirkjunnar menn við dag- legri stjórn hennar. Rúmlega hundrað kardínálar koma saman á mánudag til að ákveða hvenær páfakjör hefst, sem verður í síðasta lagi tuttugu dögum eftir að Benedikt hætti. Að öllum líkindum verður það þó fyrr, jafnvel strax í næstu viku. Íbúð páfa í Vatíkaninu var inn- sigluð þegar á fimmtudagskvöld, og verður hún ekki opnuð aftur fyrr en nýr páfi er fundinn. - gb Páfalaust í Róm: Undirbúningur páfakjörs hefst TARCISIO BERTONE KARDÍNÁLI Fær það hlutverk að stjórna páfakjöri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FASTEIGNIR Félagið Drómi, sem á húsið í Vesturvör 27 þar sem íbúum hefur verið sagt upp leigu- samningum og gert að yfirgefa bygginguna, undirstrikar, vegna fréttar í Fréttablaðinu í gær um „hremmingar íbúanna“, að félagið sé ekki leigusali fólksins. Drómi kveðst enn ekki hafa fengið húsið afhent „vegna erfið- leika leigusalans við að rýma umrædda eign“. Vesturvör 27 sé iðnaðarhúsnæði í mjög bágu ásigkomulagi og óhæft til útleigu, meðal annars vegna skorts á flóttaleiðum við eldsvoða. „Drómi hefur ítrekað krafist þess gagn- vart leigutaka að húsnæðið verði rýmt af þessum sökum.“ - gar Vesturvör 27 er brunagildra: Leigusala gert að rýma húsið Í VESTURVÖR Íbúarnir óttast að verða bornir út.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.