Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 118
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 86
„Stundum rífst maður
við fólkið sem maður
elskar mest, vondir hlutir
fá að flakka í hita leiksins.
Atburðir þessa kvölds eru
mín mesta eftirsjá í lífinu.
En hvað get ég sagt? Hún
elskar mig og hefur fyrir-
gefið mér, en já, ég þurfti
að vinna mikið fyrir þeirri
fyrirgefningu.“
TÓNLISTARMAÐURINN CHRIS
BROWN Í VIÐTALI VIÐ MIRROR
UM LÍKAMSÁRÁSINA Á RIHÖNNU
EN PARIÐ TÓK NÝLEGA SAMAN
AFTUR.
DANÍEL Á BBC
Daníel Óliver hefur slegið í gegn eftir
að hann gaf út lag sitt DJ Blow My
Speaker undir lok síðasta árs. Næst-
komandi mánudagskvöld á söngvarinn
stefnumót við frétta-
mann útvarpsrásar BBC
í Bretlandi til að ræða
um tónlistina sína. Í
framhaldi verður viðtalið
spilað á útvarpsstöðinni
og svo skrifuð grein
um Daníel á vefsíðu
BBC, sem er ein sú
stærsta og virtasta
í heimi. Daníel tók
nýverið upp lag
sem er væntanlegt
á næstunni. - trs
Viðræður hafa átt sér stað um að
halda tónlistarhátíðina þekktu All
Tomorrow´s Parties á varnarliðs-
svæðinu í Reykjanesbæ í lok júní.
Skipulagning hátíðarinnar hér á
landi hefur staðið yfir frá árinu
2011.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins myndu sex til sjö erlendar
hljómsveitir spila á hátíðinni, þar á
meðal hin bandaríska Deerhoof, og
yrðu um fimm þúsund miðar í boði.
Einnig kæmu íslenskar hljómsveit-
ir fram. Fréttablaðið hefur heim-
ildir fyrir því að hinar erlendu
sveitirnar sem myndu á hátíðinni
séu margar hverjar heimsfrægar.
All Tomorrow´s Parties var fyrst
haldin í Englandi árið 1999 sem
mótvægi við stærri tónlistarhátíð-
ir á borð við Reading. Oftast er það
ein hljómsveit sem fær að stjórna
dagskrá hátíðarinnar en sú verður
ekki raunin hér á landi. Þegar All
Tomorrow´s Parties verður hald-
in í Englandi í maí næstkomandi
stjórnar bandaríska hljómsveit-
in TV On The Radio dagskránni.
Hátíðin fór fram í Ástralíu
helgina 16. og 17. febrúar. Þar
stigu á svið My Bloody Val-
entine, Godspeed You! Black
Emperor, Swans og fleiri bönd.
Það yrði þá skammt stórra högga á
milli í Reykjanesbæ í sumar því í
byrjun júní verður tónlistarhátíð-
in Keflavík Music Festival haldin
í annað sinn. Þar koma tíu erlendir
og 140 innlendir flytjendur fram.
Stærstu nöfnin verða rappararnir
DMX og Tinie Tempah, auk hljóm-
sveitarinnar Far East Movement.
Á meðal íslensku flytjendanna
verða Sóley, Skálmöld, Valdimar,
Jón Jónsson, Bubbi Morthens og
Blazroca.
freyr@frettabladid.is
Viðræður um aðra
stóra hátíð í Kefl avík
Samningar um að halda tónlistarhátíðina All Tomorrow’s Parties á varnarliðs-
svæðinu í Reykjanesbæ hafa verið í bígerð síðan á árinu 2011.
TIL ÍSLANDS? Hljómsveitin Deerhoof spilaði á Airwaves-hátíðinni 2007.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Varnarliðið hvarf á brott árið 2006
Bandaríska varnarliðið
yfirgaf Miðnesheiði árið
2006 og skildi eftir sig
mannlausa húsabyggð.
Alls bjuggu um 2.500
manns á svæðinu. Síðan
þá hefur uppbygging starf-
semi á svæðinu átt sér
stað í gegnum Þróunar-
félag Keflavíkurflugvallar.
Stærsti samningurinn
sem félagið hefur gert er
sala á 96 byggingum til
Háskólavalla ætlaðar stúdentum. Um var að ræða 1.660 íbúðir, auk frekara
húsnæðis, og var söluverðið um fjórtán milljarðar króna.
NÍU MILLJÓNIR Í STYRK
Fyrirtækið Sena hefur ákveðið að
styrkja tónlistarkeppnina Músík-
tilraunir um níu milljónir á þremur
árum. Sigurvegarar keppninnar fá
250 þúsund í verðlaun frá Senu ár
hvert næstu þrjú árin. Sena vill með
framtakinu styðja við þá öflugu grósku
sem er í tónlistarlífi ungs
fólks á Íslandi. Einnig bindur
fyrirtækið vonir við að með
styrknum verði mögulegt að
leggja aukinn kraft í fram-
kvæmd og kynningu
á keppninni. Hljóm-
sveitin Retrobot vann
Músíktilraunir í fyrra.
Næsta keppni verður
haldin 17. til 23. mars
í Hörpu. - fb
Spænskir fjölmiðlar hafa verið
duglegir að fjalla um Sónar-
hátíðina sem var haldin í fyrsta
sinn á Íslandi um miðjan febrú-
ar. Ríkissjónvarpið, RTVE, var
með rúmlega tveggja mínútna
innslag um hátíðina og ræddi
bæði við Enric Palaou, einn af
stjórnendum aðalhátíðarinnar
í Barselóna, og tvo af þremur
meðlimum tríósins Samaris sem
spilaði á hátíðinni. Spænska
ríkisútvarpið fjallaði einnig um
hátíðina og sagði m.a. frá Ólafi
Arnalds og einnig Mugison og
hljóðfæri hans, Mirstrument.
Blaðið El Mundo hrósaði
íslensku flytjendunum Sin Fang,
Óla Ofur, Mugison og Ólafi Arn-
alds fyrir frammistöðu sína.
El País var sömuleiðis jákvætt
í garð hátíðarinnar og sagði
blaðamaður þess í fyrirsögn að
Ísland færi dansandi í gegn-
um hrunið. Í grein sinni segir
hann Samaris hafa verið besta
á öðrum degi hátíðarinnar og
að söngkona hljómsveitarinnar
væri frábær. - fb
Spænskir fj ölmiðlar ánægðir
Fjallað hefur verið um tónlistarhátíðina Sónar í Reykjavík í spænskum miðlum.
SAMARIS Hljómsveitin Samaris var í viðtali hjá spænska ríkissjónvarpinu.
MYND/ANÍTA ELDJÁRN
SELJA SPJARIRNAR Í
KOLAPORTINU
Sjónvarpskonurnar Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir og Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir eiga báðar von á öðru
barni sínu og á morgun ætla þær að
standa vaktina saman í Kolaportinu.
Þar ætla þær að selja af sér föt og
lofa því að
flíkurnar
verði með
eindæmum
ódýrar. Því
geta áhuga-
samir drifið sig
og freistað þess
að eignast föt
sjónvarps-
stjarnanna.
- þeb
helgi á Korputorgi, 1.–3. mars.
helgi á Korputor
gi, 1.–3. mars.
helgi á Korputorgi, 1. – 3. mars.
helgi á Korputor
gi, 1. – 3. mars.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
30
59
0
Tax Free gildir ekki í Bón
us og ekki af gæludýrafó
ðri í Gæludýr.is. Tax Free
gildir aðeins af smávöru
hjá Útilegumanninum. T
oys R Us býður tax free 2
. og 3. mars.
Tax Free jafngildir 20,3%
afslætti nema annað sé
tekið fram. Allar verslan
ir greiða virðisaukaskatt
, en bjóða afslátt sem þv
í nemur.