Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 34
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Hér eru konur á öllum aldri, allt frá 16-17 ára stúlkum upp í áttræðar konur. Slík blanda skapar gott andrúmsloft. Ró og
þroski þeirra eldri smitast til
stelpnanna og þær yngri hafa
líka miklu að miðla,“ segir Aldís
Höskuldsdóttir um lífið í Dyngju,
heimili fyrir konur sem lokið hafa
áfengis- eða vímuefnameðferð.
Þar er hún í hlutverki forstöðu-
konu um þessar mundir og dag-
skráin er þétt.
Edrú milli funda
Þegar Aldís kom fyrst í Dyngju
kveðst hún hafa verið að ljúka
áfengismeðferð númer tvö, án
þess þó að hafa smakkað dropa frá
meðferð númer eitt. „Ég fór fyrst
í meðferð hjá SÁÁ árið 1984, þrí-
tug manneskja. Kom frá Ísafirði
og var á Vogi í tíu daga og síðan
á Sogni í tuttugu og átta daga. Fór
svo bara heim aftur að vinna og
vann mikið, því ég átti fimm börn
á þessum tíma sem ég þurfti að
koma á legg. Auk þess fór ég eftir
þeim leiðbeiningum sem ég hafði
fengið í meðferðinni, að stunda
AA-fundi og vera edrú milli funda.
En mér leið ekki vel og þegar fimm
og hálft ár höfðu liðið ákvað ég að
fara aftur í fulla meðferð. Þegar
henni var að ljúka spurði Þórar-
inn Tyrfingsson yfirlæknir: „Hvað
ertu svo tilbúin að gera til að halda
þér við?“ „Allt,“ sagði ég kok-
hraust. „Þá ætla ég að senda þig
í Dyngju,“ sagði hann. Það fannst
mér nú ekki alveg viðeigandi að
ég með þessa edrúmennsku í far-
teskinu færi að mynstra mig í
Dyngju, setti í mig þrjósku og fór
heim að sinna mínum börnum. En
þessi orð, „Hvað ertu tilbúin til
að gera?“ fylgdu mér og líka svar
mitt: „Allt.“ Svo ég pakkaði niður
aftur, flaug suður og var komin
inn í Dyngju daginn eftir. Hér var
ég frá því í janúar fram í maí 1990.
Það breytti mér mikið. Hér þurfti
ég að taka leiðsögn, fara eftir hús-
reglum og upplifa ákveðna festu,
borða á réttum tíma og sofa á rétt-
um tíma, gera grein fyrir því hvert
ég færi og hvenær ég kæmi til
baka. Þetta voru viðbrigði. En svo
vandist ég þessu lífi og allt í einu
fór mér að líða vel í þessu mynstri
og upplifa tíma sem ég hafði farið
á mis við sem ung stúlka. Þennan
vetur fór ég í nám í Tölvuskóla
Reykjavíkur og nýtti tímann vel.
Mætti á fundi hér í húsinu og tók
þátt í öllu eins og við átti. Hér voru
konur með alls konar bakgrunn
en milli okkar mynduðust sterk
og góð tengsl, ég hef samband við
þessar meðferðarsystur mínar
enn og allt þetta hvatti mig áfram
í minni edrúmennsku.“
Rótlaus og tætt
Aldís kveðst hafa farið beint úr
foreldrahúsum í hjónaband og
barneignir. Sorgin kvaddi dyra
eina nótt í nóvember haustið 1977
þegar maðurinn hennar fórst í
sjóslysi við Grundarfjörð, þar
sem þau bjuggu. Hann var ásamt
öðrum manni á rækjubáti á leið
í land þegar skall á vonskuveð-
ur og klukkan sex um morgun-
inn stóðu læknir, hjúkrunarfræð-
ingur og prestur á tröppunum hjá
Aldísi með harmafregn. Þá gekk
hún með þriðja barn þeirra hjóna.
Síðar eignaðist hún tvíbura og
þeir voru þriggja ára þegar hún
ákvað að fara í fyrri meðferðina.
Hún kveðst hafa verið rótlaus og
tilfinningalega tætt. „Ég hafði
aldrei talað um dauða mannsins
míns. Ég fékk bara að heyra: „Þú
ert svo dugleg,“ og keyrði á því en
leið ofsalega illa og hélt ég ætti
að vera svona. Þegar börnin voru
sofnuð á kvöldin dró ég bara fyrir
gluggana og fékk mér í glas. Ég
var komin algerlega út í horn með
sjálfa mig og meikaði ekki að lifa
lífinu eins og ég gerði.
Mamma hafði verið með þeim
fyrstu sem fóru á Vog og hún
hvatti mig til að fara þangað, bara
í sjö daga. Ef hún hefði sagt tíu
daga og svo 28 á eftir þá hefði ég
aldrei farið. Mamma vissi hvernig
mér leið. Ég átti hana alltaf að.
Það besta sem gat komið fyrir
mig var að fara á Vog. Samt var ég
voða ráðvillt í fyrri meðferðinni,
athyglisbresturinn var svo mikill.
Þegar ég kom aftur í seinna skipt-
ið heyrði ég fyrst hvað sagt var í
fyrir lestrunum og þegar ég kom
heim eftir dvölina í Dyngju hafði
opnast fyrir mér ný vídd. Ég var
með allt annað viðhorf til sjálfr-
ar mín og þess sem í kringum
mig var. Síðan hef ég þroskast og
reynt að vera öðrum til leiðbein-
ingar sem hafa leitað til mín vegna
eigin erfiðu aðstæðna. Ég hef átt
góðan mann í 20 ár sem er fjög-
urra barna faðir og er líka edrú
og börnunum okkar hefur öllum
vegnað vel.“
Aldís flutti suður fyrir tíu árum.
„Þá langaði mig að gera eitthvað
nýtt, fór í Ráðgjafaskóla Íslands
og lærði áfengis-og vímuefnaráð-
gjöf og hef unnið bæði á Vogi og
Staðar felli. „Það er yndislegt að
vinna á stað þar sem maður fær
að gefa af sér innan um gott fólk.
Síðan er ég í stjórn Dyngjunnar og
hér eru vaktir sem ég leysi af á.
Mér finnst yndislegt að vera ein af
konunum í Dyngjunni. Hér erum
við allar jafnar.“
Fylgjast með kúlunum stækka
Í Dyngju koma konurnar frá með-
ferðarstofnunum SÁÁ, Hlaðgerðar-
koti, Landspítalanum og Krýsuvík.
Ef einhver verður uppvís að neyslu
er henni vísað á dyr samdægurs,
að sögn Aldísar, sem aldrei kveðst
hafa lent í því að þurfa að henda
konu út.
Ef um veikindi er að ræða eða
einhver þarf að fara aftur á Vog
vegna slæmrar líðanar bíður rúmið
og dótið eftir henni á Dyngjunni.
„Konurnar eru bara hluti af þjóð-
félaginu þó þær búi hér og þær
sækja sína heilbrigðisþjónustu utan
heimilisins,“ tekur Aldís fram.
Dyngjan áfangaheimili hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins árið 2012.
Dyngjan hefur starfað síðan 1988. Hlutverk heimilisins er að veita konum
sem koma úr áfengis- og vímuefnameðferð samastað meðan þær koma
undir sig fótum í nýju lífi. Dyngjan hefur reynst mörgum konum mikil-
vægur áfangastaður en á dvalartíma sínum fá þær svigrúm til að breyta
og byggja upp allsgáðan og ábyrgan lífsstíl. Að jafnaði dvelja um fjórtán
konur í Dyngjunni og sumar þeirra með börn.
Edda Guðmundsdóttir veitir Dyngjunni forstöðu. Hún tók við einnar
milljónar króna verðlaunafé úr hendi Ara Edwald, forstjóra 365.
➜ Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 2012
SAMFÉLAGSVERÐLAUN Dyngjan hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í fyrra.
Dvöl í Dyngju opnaði nýja vídd
Á áfangaheimilinu Dyngju við Snekkjuvog dvelja konur sem eru á leið út í lífið eftir áfengismeðferð. Þar er pláss fyrir
fjórtán í einu og fjölmargar hafa átt þar tímabundið athvarf á þeim 25 árum sem heimilið hefur verið starfrækt. Þeirra á
meðal er Aldís Höskuldsdóttir sem bjó þar í nokkra mánuði árið 1990. Nú leysir hún forstöðukonuna af þegar með þarf.
ALDÍS HÖSKULDS-
DÓTTIR Mér finnst
yndislegt að vera
ein af konunum
í Dyngjunni. Hér
erum við allar
jafnar,“ segir hún
FRÉTTABLAÐIÐ
/DANÍEL RÚNARSSON
Dagskráin í Dyngjunni byrjar
klukkan níu á morgnana. Tvisvar í
viku hefst hún á húsfundi þar sem
farið er yfir plön hverrar og einnar
konu sem þar dvelur og fylgst með
líðan þeirra. Svo er einn síðdegis-
fundur í viku og þá mætir ráðgjafi
frá SÁÁ líka. Konurnar eru í skóla,
vinnu eða einhverju prógrammi
yfir daginn úti í bæ og skiptast á
um að sinna daglegum störfum í
Dyngju. Ein sér um að ræsa hinar,
aðrar þrífa og einhver þarf að elda
matinn. „Konurnar prjóna líka
mikið og vinna fleira í höndunum
sér til yndisauka og dægrastytting-
ar,“ segir Aldís. „Hver kennir ann-
arri og áhuginn smitast á milli.“
Húsreglur Dyngju kveða á um
að konurnar eigi að vera komnar
inn fyrir klukkan hálf tólf á kvöld-
in og eftir sex vikna dvöl fá þær
fyrsta helgarleyfið. Þá geta þær
farið heim eða til einhverra ætt-
ingja. Foreldrar, eiginmenn og
börn mega koma hvenær sem er
í heimsókn og aðrar heimsóknir
eru leyfðar um helgar. „Hér eru
oft lítil börn og stundum eru hér
óléttar konur. Þá fylgjast allar með
kúlunni stækka. Það er bara yndis-
legt,“ segir Aldís og bætir við að
lokum. „Konurnar hvetja hver aðra
í að standa sig í edrúmennskunni
og þannig myndast samstaða og
vellíðan í hópnum.“