Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 18
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Tökum á skulda- og
greiðsluvanda heimilanna
Í þágu heimilanna
› Verðtrygging á húsnæðis- og
neytendalánum verði ekki
almenn regla
› Auðveldum afborganir af húsnæðis-
lánum með skattaafslætti
› Fellum niður skatt þegar greitt er inn
á höfuðstól húsnæðislána í stað þess
að greiða í séreignarsjóð
› Leyfum skuldsettum íbúðareigendum
að hefja nýtt líf án gjaldþrots
› Afnemum stimpilgjöld
Markvissar og raunhæfar aðgerðir
í þágu heimilanna sem má koma
í framkvæmd án tafar.
Skoðun visir.is
Frá því ég tók við utan-
ríkismálum Íslands fyrir
fjórum árum hef ég fylgt
stefnu, þar sem þrjár
megin gáttir eru þróaðar
til umheimsins til að efla
viðskipti og útflutning.
Þessar þrjár gáttir eru
Evrópuleiðin, norðurslóð-
ir og Asíugáttin.
Evrópuleiðin
Aðildarumsóknin var
þýðingarmesta skrefið í
þróun Evrópuleiðarinnar. Hún
afnemur endanlega alla tolla á
500 milljóna manna heimamark-
aði. Í því felast m.a. veruleg út-
flutningsfæri fyrir fullvinnslu í
sjávarútvegi, og fyrir hágæða-
vörur í landbúnaði.
Evrópuleiðin gerir Ísland hluta
af stærri og sterkari efnahags-
heild. Hún tryggir efnahags-
legan stöðugleika með upptöku
evru í stað krónu, sem lækkar
vexti og verðbólgu, tryggir lágt
verðlag og gerir verðtryggingu
óþarfa. Aðild stóreykur erlendar
fjárfestingar, sem skapar auk-
inn útflutning, aukinn hagvöxt,
og fleiri og fjölbreyttari störf.
Hún er sú gáttanna þriggja sem
getur bætt lífskjör á Íslandi mest
og fljótast og tryggt samkeppnis-
hæfni Íslands.
Nú þegar hefur umsóknarferl-
ið skipt sköpum. Staða okkar sem
umsóknarríkis var mikilvægur
skjöldur á þyngsta skeiði Ice-
save-málsins þegar einstök ríki
hótuðu refsiaðgerðum. Hún á
líka mikilvægan þátt í að Íslend-
ingum hefur tekist að koma í veg
fyrir harðar viðskiptaþvinganir
vegna makríldeilunnar. Óefað
hefur hún því reynst einhver
besta fjárfesting Íslendinga.
Ný gátt – norðurslóðir
Önnur gáttin var opnuð til norð-
urs. Hugsanleg tækifæri þar eru
að minnsta kosti ferns konar.
Þau mestu felast í mögulegum
olíu- og gaslindum á Dreka-
svæðinu. Beinn hagnaður ríkis-
ins gæti þó orðið mestur vegna
sögulegs samnings frá 1981 sem
veitir því fjórðungshlut í olíulind-
um Noregsmegin miðlínunnar –
eftir að byrjað er að draga upp
olíu. Áhættan yrði því hverfandi.
Til lengri tíma gætu skap-
ast tækifæri í fiskveiðum á
miðum sem verða til við bráðn-
un ís þekjunnar. Sömuleiðis eru
gríðar legir hagsmunir, pólitísk-
ir og efnahagslegir, í hugsanlegri
siglingaleið beint yfir pólinn,
sem kallar á alþjóðlega umskip-
unarhöfn á Norðausturlandi.
Fyrsta tækifærið er þó þjónustu-
starfsemi við „orkuþríhyrning-
inn“ sem ég hef skilgreint sem
svæðið frá NA-Grænlandi til
Jan Mayen, og suður til Íslands.
Markmið mitt er að tryggja að
þjónusta við rannsóknir, tilrauna-
boranir og vinnslu innan orkuþrí-
hyrningsins verði á Íslandi.
Asíugáttin
Þriðja gáttin er svo til Asíu með
áherslu á viðskipti og fríverslun,
en ekki síður á norðursigling-
arnar. Hagspár sýna að til 2030
verði 80% af aukningu heimsvið-
skipta í Asíu, þar sem gríðarlega
fjölmenn og öflug millistétt er að
myndast. Þarna liggja nýræktir
framtíðarinnar, og mikilvægt að
tryggja hlut Íslands. Að því hefur
ráðuneytið unnið kappsamlega.
Fríverslunarsamningi við Kína
er efnislega lokið. Stefnt er að
undirritun hans í apríl í Peking.
Það yrði fyrsti fríverslunar-
samningur Kína við nokkurt Evr-
ópuríki. Hann skapar Íslandi ein-
stakt forskot. Ísland er líka langt
komið með fríverslunarsamning
við Indland gegnum EFTA, og
áleiðis við sólrisuríki í Suðaust-
ur-Asíu eins og Malasíu og Víet-
nam.
Það er þó ekki síður mikil-
vægt að lönd eins og Singapore,
en ekki síst Kína, hafa sömu
hugmyndir og Íslendingar um að
heppilegasta braut norðursigl-
inga liggi beint yfir pólinn. Sú
leið gæti aukið gríðarlega póli-
tískt vægi Íslands gagnvart bæði
Evrópu, Ameríku og Asíu, fyrir
utan veruleg efnahagsleg áhrif á
Íslandi.
Hver gáttanna þriggja styrk-
ir hinar – þær útiloka ekki hver
aðra. Þó ein lokist eru hinar
opnar. Kjarni þessarar utanríkis-
stefnu er því að veðja ekki öllu á
einn framtíðarkost, heldur þróa
marga.
Evrópuleiðin, norðurslóðir og
Asíugáttin
UTANRÍKISMÁL
Össur
Skarphéðinsson
utanríkisráðherra
➜ Þriðja gáttin er
svo til Asíu með
áherslu á viðskipti
og fríverslun, en
ekki síður á norður-
siglingarnar.
1.677
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR
Stoppað í miðjum klíðum
Charlotte Böving pistlahöfundur
1.320
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR
Mannvonska dulin sem mannúð
Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur
438
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR
Opið bréf til borgarstjóra og
menntamálaráðherra
Sigríður Hallsteinsdóttir kennari
437
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR
Að trúa á netið
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
391
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR
Lækningar og golf– er munur?
Kristófer Sigurðsson unglæknir
343
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR
Fegurstu leiðarljósin
Guðmundur Andri Thorsson pistlahöfundur
274
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR
Stúdentar auglýsa eft ir norrænu
velferðinni
Davíð Ingi Magnússon hagsmuna- og
lánasjóðsfulltrúi SHÍ
225
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR
Mamma og afb itna eyrað
Svavar Hávarðsson pistlahöfundur