Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 42
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 Kristján Freyr er ekki hinn dæmi-gerði stjórnandi lokaður inn á skrifstofu aðskilinn frá starfs-fólkinu. Hann situr sjálfur bak við búðarborðið, afgreiðir bækur, spjallar við kúnna og gefur góð ráð. Góð samskipti við viðskiptavini skipta hann höfuðmáli enda segist hann hafa í heiðri það samskiptaform sem hann vandist í uppvextinum í Hnífsdal. „Ég held að vera mín í Hnífsdal fyrstu fimmtán ár ævinnar hafi mótað mig töluvert. Þetta var svo fal- legt samfélag. Maður var að leika sér með krökkum sem voru kannski tíu árum eldri og yngri og engum þótti neitt athugavert við það. Kynslóðabil var ekki til, allir þekktu alla og samkenndin var ótrúleg. Ísland er náttúrulega bara eitt stórt sjávarþorp og ég vildi óska þess að við finndum fyrir þess- ari samkennd í þjóðfélaginu í dag. Tækjum bölvað karpið úr jöfnunni og færum að haga okkur eins og ein stór fjölskylda.“ Var mikill tónlistaráhugi í Hnífsdal á þessum árum, er ekki Bragi Valdimar líka þaðan? „Jú, jú, við Bragi erum æskuvinir og stofnuðum okkar fyrstu hljómsveit saman. Við vorum óskaplega pólitískir á þessum tíma þannig að hljómsveitin hét Níkaragva Group, sem ég veit reyndar ekkert hvaðan kom. Þar tókum við bæði lög og texta úr söngvasöfnum og sömdum sjálfir. Ég hafði samt ekkert lært á hljóðfæri og fékk ekk- ert sérstaklega tónlistarlegt uppeldi. Eða þó, pabbi og mamma keyptu reyndar Bítla- safnið á vínyl einhvern tíma og ég lagðist í að hlusta á það. Þegar ég kom í gaggó voru allir vinir mínir komnir saman í hljómsveit þannig að ég mætti eiginlega alltaf á æfing- ar með þeim eins og auli. Ég held að það hafi bara kennt mér á hljóðfæri.“ Teikaði eldri menn Þú hefur spilað á trommur í fjölmörgum hljómsveitum, hvernig byrjaði það? „Ég byrjaði í Geirfuglunum og lærði mikið á því að teika mér eldri menn uppi á sviði. Þannig að ég byrjaði á öfugum enda í músík- inni. Byrjaði uppi á sviði en er núna kominn í bílskúrinn. Ég syng m.a.s. vinsælasta lag Geirfugla hingað til, lagið Byrjaðu í dag að elska. Úr Geirfuglunum fór ég að spila með Doktor Gunna, sem ég spila stundum enn þá með og við erum jafnvel að fara að taka upp barnaplötu seinna á þessu ári. Síðan geng ég í þessa hljómsveit sem heitir Reykjavík! og er skipuð eintómum Vestfirðingum fyrir utan söngvarann sem er að austan. Það er svona meira einhvers konar bræðralag, þetta eru allt bestu vinir mínir. Svo er ég einnig meðlimur í Prinspóló sem góðvinur minn Svavar Pétur rekur áfram af einstakri snilli. Það má nefnilega alls ekki gera lítið úr þeirri reynslu að vera í hljómsveit og ég hvet alla, stelpur og stráka, til að stofna hljóm- sveitir og gera eitthvað kreatívt. Það hefur gefið mér ofsalega mikið, hefur verið nokk- urs konar þungamiðja í lífi mínu og drifið mig áfram í hinu og þessu. Þetta stúss mitt hefur jafnvel breytt öllum plönum fjölskyld- unnar á stundum, þó ég viti að fjölskylda og vinir eiga að vera í fyrstu sætum.“ Hvað fórstu svo að læra? „Þegar ég var búinn að þjösna mér í gegnum Menntaskól- ann á Ísafirði með tilheyrandi látum fórum við í framboð með Fönklistann og ég endaði sem bæjarfulltrúi Ísafjarðarbæjar í tvö ár. Síðan fór ég suður og byrjaði að lesa ensku og íslensku við H.Í og þótti það ótrúlega skemmtilegt og spennandi. Ég hafði komist í álnir verandi bæjarfulltrúi og sitjandi í alls konar nefndum, auk þess rekið plötubúð- ina Hljóma á Ísafirði og búið frítt heima hjá mömmu, þannig að ég var ekki tilbúinn til að fara að lifa einhverju hungurlífi á námslán- um og var opinn fyrir því að vinna með skól- anum. Þá var ég sjanghæjaður í Geirfuglana, spilaði nánast um hverja einustu helgi og gat fleytt mér áfram í náminu. Á síðasta árinu í íslenskunni dró úr spilamennskunni og ég sá fram á erfiðari tíma. Þar sem ég bjó á Klapparstígnum og labbaði í skólann kom ég mjög oft við hérna í Máli og menningu. Það er einhver sogkraftur í þessari búð. Þegar ég var kominn hér inn vissi ég ekki af mér fyrr en ég var kominn á kaf ofan í einhverja bók eða tímarit og gleymdi mér tímunum saman. Það endaði með því að Anna Einarsdóttir sem var verslunarstjóri spurði hvort ég vildi ekki bara koma að vinna hérna, ég væri alltaf hérna hvort eð væri. Ég hélt nú það, vippaði mér úr jakkanum, byrjaði að vinna og hef eiginlega verið hérna síðan. Þetta var árið 2000 og ég fór aðeins frá árið 2006 í önnur störf en kom til baka 2011 og hef verið verslunarstjóri hér síðan.“ Útungunarstöð fyrir pólitíkusa Þessi búð og þetta hús eiga sér mikla sögu, er ekkert ógnvænlegt að standa í sporum frumkvöðlanna? „Þetta er vissulega ábyrgð en ég get ekki séð neitt ógnvænlegt við það. Það er frábært að þessi búð skuli enn vera við lýði og í dag er hún einkarekin. Talandi um Mál og menningu og kalda stríðið þá finnst mér mjög fyndið að það virðist enn vera til staðar í hugum margra. Sumir sem koma hingað inn eru enn þann dag í dag að tala um komma og slíkt, en við viljum ekk- ert kannast við það. Það eina sem ég tel að gæti verið ógnvænlegt fyrir mig per se er að einhver nái að draga mig í pólitík. Það hefur verið reynt mjög mikið. Sagan af Magn- úsi Torfa Ólafssyni sem vann hér í erlendu deildinni og endaði sem menntamálaráð- herra finnst mér reyndar mjög skemmtileg og sama gildir um kollega minn hér lengi, Óttarr Proppé sem var dreginn í borgar- stjórn og er nú á leið á þing. Þetta virðist vera útungunarstöð fyrir pólitíkusa svo hver veit hvar ég lendi í framtíðinni.“ Reynslan af bæjarfulltrúastarfinu heillar þig ekki nóg til að fara út í pólitík? „Nei, mér finnst pólitík bara svo rotin orðin, því miður. En varðandi þetta hús og þessa verslun þá eiga þau vissulega mjög merkilega sögu sem mér hefur oft dottið í hug að maður ætti kannski að skrá. “ Ertu með rithöfund í maganum? „Ég er oft að skrifa hitt og þetta, já. En lít ekki svo stórt á mig að ég ætli að ráðast inn á ritvöll- inn með sögu Máls og menningar sem fyrstu bók. Ég get hins vegar alveg séð það fyrir mér að fara að skrifa meira. Mér finnst gott að hafa eitthvað fyrir stafni og þrífst illa ef ég er ekki að takast á við ögrandi verkefni.“ Hræddir um að brenna inni Eitt af þeim ögrandi verkefnum er væntan- lega tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, hver er þín aðkoma að henni? „Ég hef verið með í AFÉS frá byrjun sem einn af undir- búningsaðilunum. Það er ekki stór hópur sem stendur að hátíðinni og við höfum aldrei þegið neina peninga fyrir okkar vinnu. Hátíðin stendur auðvitað og fellur með velvild tónlistarmanna sem er stór- kostlega fallegt um leið og það er skrítið. Ég er tónlistarmaður og finnst auðvitað að þeir eigi að fá borgað fyrir sína vinnu eins og aðrir, þannig að það skýtur skökku við og við erum meðvitaðir um það. En við, og þeir um leið, erum að bjóða upp á ókeypis tón- leika fyrir alla og þannig gengur þetta upp. Við erum alltaf hræddir um að við brennum inni en það gerist ekki og fólk er rosalega spennt fyrir hátíðinni. Það kemur þarna fólk sem hefur aldrei farið út á land og það er tilbúið til þess að koma til Ísafjarð- ar um miðjan vetur til að hlusta á tónlist. Það er stórkostlegt. Við erum að stuðla að jákvæðri byggðarþróun, það keyrir okkur áfram.“ Alltaf úti að leika Þú ert annar umsjónarmaður útvarps- þáttarins Albúmið, hvað geturðu sagt mér um það? „Ég er mikill grúskari og finnst gaman að skoða söguna í gegnum tónlist og var svo heppinn að fá þetta verkefni upp í hendurnar. Við Jón Ólafsson tónlistarmað- ur setjumst því niður einu sinni í viku og ræðum um eitthvert eitt albúm frá öllum hliðum. Fólk hefur kunnað vel að meta þetta spjall okkar og við erum mjög þakk- látir og stundum furðu lostnir yfir góðum viðtökum þessa litla útvarpsþáttar á Rás 1.“ En þínir persónulegu hagir? Ertu fjöl- skyldumaður? „Já, þótt ég furði mig mjög oft á því að yndislega konan mín nenni að hanga með mér. Þetta myndi náttúrulega ekkert ganga nema vegna einstaks umburð- arlyndis hennar og það er ekkert sjálfgef- ið. Hún er kennari og við eigum tvö börn, annað á leikskóla- og hitt á grunnskólaaldri. En ég geri mér alveg grein fyrir því að ég þarf að sinna fjölskyldunni frekar en að fara út að leika með krökkunum endalaust.“ Ef þú þyrftir að minnka við þig og velja annað hvort bækurnar eða tónlistina sem lífsstarf en sleppa hinu hvort myndirðu velja? „Þetta er mjög ósanngjörn spurning. Þetta er eins og velja á milli tómatsósu eða sinneps á pylsuna! Ég bara get ekki svarað þessu. Ég hef náttúrulega verið lengur í tónlist en innan um bækur en mér líður svo ótrúlega vel í kringum bækur, þykir afskap- lega vænt um þessa bókabúð og lít ekki á starf mitt hér sem kaldan bissness. Ég ber nánast óttablandna virðingu fyrir bókum og finnst þær alls ekki vera eins og brauð og mjólk, með fullri virðingu fyrir þeirri ágætu tvennu. Ég mun kappkosta að reyna að sameina bóksalann og tónlistarmanninn eins lengi og ég get. Kannski enda ég bara á því ásamt fjölskyldunni að reka litla bóka- búð og kaffihús með lifandi tónlist í Hnífs- dal, treð sjálfur upp og les upp úr bókinni minni. Það þætti mér rosalega huggulegt.“ Óttast að vera dreginn í pólitík Kristján Freyr Halldórsson lætur sér ekki nægja að stjórna hinni sögufrægu Bókabúð Máls og menningar, hann er líka trommari í fleiri en einni hljómsveit, einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður og stjórnar vikulegum útvarpsþætti. Auk þess er hann eiginmaður og tveggja barna faðir. Hvernig fer hann að þessu? Ég lít ekki svo stórt á mig að ég ætli að ráðast inn á ritvöllinn með sögu Máls og menningar sem fyrstu bók. Ég get hins vegar alveg séð það fyrir mér að fara að skrifa meira. Mér finnst gott að hafa eitthvað fyrir stafni og þrífst illa ef ég er ekki að takast á við ögrandi verkefni. VERSLUNARSTJÓRINN „Sumir sem koma hingað inn eru enn þann dag í dag að tala um komma og slíkt, en við viljum ekkert kannast við það.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bóksalinn Bókabúð Máls og menningar. Afgreiðslumaður 2000-2006. Verslunarstjóri frá 2011. Trommarinn Kristján Freyr hefur verið í þessum hljómsveitum: ■ Miðnes, með Frey Eyjólfssyni og Stefáni Magnússyni (Eiríkssonar). ■ Geirfuglunum, þar voru Freyr, Stebbi og Halldór Gylfason leikari meðal annarra. ■ Dr. Gunni, með Gunna, Guðmundi Birgi og Grími Atlasyni. ■ Reykjavík!, með bestu vinum sínum frá Ísafirði og Bóasi Hallgrímssyni frá Reyðarfirði. ■ Abbababb, með Dr. Gunna og vinum hans að spila fyrir börnin. ■ Prinspóló, með Svavari Pétri og Berglindi Häsler, Loga, Bjössa og Benna Hemm Hemm. Bæjarfulltrúinn Sat í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar á árunum 1996-1998 fyrir Fönklistann. Tónleikahaldarinn Einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður frá upphafi árið 2004 til dagsins í dag. Útvarpsmaðurinn Annar stjórnenda útvarpsþáttarins Albúmið á Rás 1 frá því sumarið 2012. Maðurinn með mörgu andlitin Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.