Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 45
Bio-Kult Candéa er öflug blanda af vinveittum gerlum, hvítlauk og þrúgukjarna-
þykkni (e. grape seed extract).
Það virkar sem öflug vörn gegn
candida-sveppasýkingu í melting-
arvegi kvenna og karla. Sveppa-
sýking getur lýst sér á mismunandi
hátt og komið fram með ólíkum
hætti. Einkenni sveppasýkingar
geta meðal annars verið munn-
angur, fæðuóþol, pirringur, skap-
sveiflur, þreyta, meltingartruflanir,
brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni
og alls kyns húðvandamál. Bio-
Kult Candéa er öflug vörn gegn
sveppasýkingu á viðkvæmum
svæðum hjá konum.
Silja Ívarsdóttir mælir hiklaust
með Bio-Kult Candéa-hylkjunum
og segir þau hafa gjörbreytt lífi
sínu til hins betra. „Ég hef þjáðst
af kláða á kynfærasvæði svo lengi
sem ég man eftir mér,“ segir Silja.
„Fyrir um sex árum fór kláðinn að
versna og mér leið alveg rosa-
lega illa. Ég var búin að ganga
milli lækna bæði hér heima og
erlendis þar sem ég bjó í tvö ár en
án árangurs. Kláðinn jókst mjög
þegar ég var að fara að sofa svo
þetta hafði þau áhrif að svefninn
versnaði og ég svaf lítið og slitrótt.
Það að fá ekki nægan svefn hafði
mjög slæm áhrif á mig. Ég breyttist
í gangandi stressbolta og var alltaf
þreytt og kvíðin og með miklar
skapsveiflur. Það leiddi til þess að
meltingin fór í klessu og ég hafði
hægðir um það bil einu sinni í
viku, ef ég var heppin. Í vor fór ég
í viðtal hjá konu sem mælir ph-
gildi líkamans og í ljós kom að ég
var með candida-sveppasýkingu
í meltingarvegi. Ég hafði lesið um
Bio-Kult og strax eftir viðtalið fór
ég og keypti hylki og fann sam-
stundis breytingu. Ég vil eigin-
lega orða það þannig að Bio-Kult
Candéa-hylkin hafi bjargað lífi
mínu.“
Í dag líður Silju mun betur og er
að mestu laus við kláða, stress og
skapsveiflur og meltingin er komin
í gott lag. „Með inntöku hylkj-
anna tók ég svo augljóslega eftir
breytingum stig frá stigi. Hjá mér
snarminnkaði kláðinn sem varð til
þess að svefninn lagaðist sem varð
svo til þess að stressið og kvíðinn
minnkaði og skapsveiflurnar einnig
sem leiddi til betri meltingar sem
varð til þess að húðin fór hægt og
rólega að lagast. Ég vona að sem
flestir heyri mína sögu þar sem
Bio-Kult Candéa er búið að gefa
mér nýtt líf,“ segir Silja.
Bio-Kult Candéa-hylkin henta
öllum vel, einnig barnshafandi
konum, mjólkandi mæðrum og
börnum. Þau fást í öllum apótek-
um, heilsuverslunum og heilsuhill-
um stórmarkaðanna.
Hægt er að nálgast ítarlegar
upplýsingar í íslenskum bæklingi
á heimasíðu Icecare, icecare.is og
heimsækja Facebook-síðu Bio-Kult
Candéa til að taka þátt í léttum
leik.
ÖFLUG VÖRN GEGN
SVEPPASÝKINGUM
ICECARE KYNNIR Silja Ívarsdóttir segir Bio-Kult Candéa hylkin hafa breytt
lífi sínu. Hún er nú að mestu laus við sveppasýkingar sem hrjáðu hana lengi.
„Ég vil eiginlega orða það þannig að Bio-Kult Candéa-hylkin hafi bjargað lífi
mínu,“ segir Silja Ívarsdóttir.
LISTASMIÐJA
Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni Borgarbókasafns
Reykjavíkur og Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Í
Söguhringnum hittast skapandi konur frá ýmsum löndum til
að skiptast á sögum og skapa saman. Á morgun kl. 14 verða
mismunandi handverks- og listasmiðjur í boði í Söguhringn-
um sem haldinn er í aðalsafni Borgabókasafns í Tryggvagötu.
FRÁBÆR LAUSN
Silja Ívarsdóttir segir að Bio-Kult
Candéa hylkin hafi breytt líðan sinni til
mikilla muna.
MYND/ANTON
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
1.250 kr
1.350 kr
HOLLT
OG GOTT
PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868 - www.pho.is
1.250 kr
Opið:
mán - föst Kl. 11 - 21
lau - sun Kl. 12 - 21
BJÓÐUM UPP Á
HEIMSENDINGU
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vertu vinur
á Facebook
www.laxdal.is
Save the Children á Íslandi