Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 48
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4
KASTALINN.
COM
Á vefsíðunni www.
kastalinn.com má
fá upplýsingar um
heimildarmyndar-
gerðina. Þar getur
fólk einnig haft
samband við Tinnu
og Brynju.
Ég hef keyrt ótal ferðir um Ísafjarðardjúp og húsið á Arngerðareyri vakti alltaf áhuga minn líkt og fjölda annarra sem hafa átt leið hjá,“
segir Tinna Magnúsdóttir dagskrárgerðarkona. Hún
vinnur, í samstarfi við Brynju Dögg Friðriksdóttur, að
gerð heimildarmyndar um Gamla kastalann, en svo
er gamla íbúðarhúsið á Arngerðareyri í Ísafirði kallað
í daglegu tali. „Mér fannst spennandi að vita hvernig
lífið hefði verið í kastalanum og hvaða leyndarmál
húsið hefði að geyma,“ segir hún.
GRAFAST FYRIR UM SÖGU HÚSSINS
Íbúðarhúsið sem eitt stendur eftir á Arngerðareyri
var byggt árið 1928 af Sigurði Þórðarsyni sem þá var
kaupfélagsstjóri. Á þeim tíma var mikið líf á Arn-
gerðareyri. Þar hélt verslun Á. Ásgeirssonar á Ísafirði
úti þjónustu og Kaupfélag Nauteyrarhrepps rak þar
sláturhús. Húsið var teiknað af Jóhanni Kristjánssyni
byggingameistara í Reykjavík og haft í kastalastíl en
þaðan er gælunafn hússins komið. „Húsið hefur verið
glæsilegt á sínum tíma og ekkert til sparað. Þar var
til dæmis marmari á stiga sem var sérpantaður frá
Ítalíu,“ upplýsir Tinna. Þegar Kaupfélagið fór á haus-
inn keyptu synir Halldórs Jónssonar, óðalsbónda
og stöðvarstjóra Landsímans, húsið sem Halldór og
fjölskylda fluttu inn í og bjuggu í allt fram til 1957.
„Húsið leggst svo í eyði árið 1966. Sagan segir að öllu
hafi verið stolið steini léttara úr því. Meira að segja
marmaranum af stiganum,“ segir Tinna.
FYLGJAST MEÐ ENDURBÓTUM
Tinna og Brynja Dögg höfðu velt hugmyndinni að
heimildarmyndinni fyrir sér í nokkurn tíma þegar
þær fengu fregnir af því að þýsk hjón hefðu fest kaup
á húsinu og ætluðu að ráðast í endurbætur á því
síðastliðið sumar. „Þá fórum við af stað, höfðum sam-
band við hjónin Claudiu og Matthias sem tóku okkur
afar vel,“ segir Tinna og ber þýsku hjónunum vel sög-
una. „Þau voru frábær, við fengum að fylgjast með
þeim og urðum hálfpartinn hluti af fjölskyldunni,“
segir hún en síðasta sumar voru settir nýir gluggar
og hurðir í húsið.
Stefnan er að heimildarmyndin verði fullgerð vorið
2014. Tinna segir það þó ráðast af því hvernig fram-
kvæmdunum vindi fram en fjölskyldan frá Þýska-
landi ætlar að halda uppbyggingunni áfram í sumar.
Þangað til grafast þær Tinna og Brynja fyrir um sögu
hússins. Í því augnamiði hafa þær stofnað vefsíðuna
www.kastalinn.com. Þar kynna þær verkefnið og aug-
lýsa jafnframt eftir viðmælendum sem geta varpað
ljósi á söguna, eða fólki sem á einfaldlega góðar
minningar frá húsinu hvort sem er frá þeim tíma sem
það var í byggð eða eftir að það fór í eyði.
■ solveig@365.is
SKRÁ SÖGU GAMLA KASTALANS
HEIMILDARMYND Tinna Magnúsdóttir og Brynja Dögg Friðriksdóttir vinna að gerð heimildarmyndar um húsið á Arngerðareyri í
Ísafjarðardjúpi. Þær hafa stofnað vefsíðuna kastalinn.com og leita eftir fólki sem á minningar um húsið eða þekkir til sögu þess.
SAMAN Tinna og
Brynja Dögg með
hjónunum Claudiu og
Matthiasi og dóttur
þeirra Lydiu. Hér er búið
að setja nýja útidyra-
hurð og fallegan glugga
í húsið.
GAMLI KASTALINN
Húsið hefur verið afar
glæsilegt þegar það var
byggt árið 1928. Ekkert
var til sparað við bygg-
ingu þess, til dæmis var
notaður marmari í stiga
hússins.
BAKSVIÐS Í HÖRPU
■ FRÓÐLEIKUR
Nú hafa 1,7 milljónir gesta komið í Hörpu. Það er þó ýmislegt sem
fólk sér ekki og veit ekki um húsið þegar það kemur á tónleika eða
aðra viðburði. Þess vegna er einkar áhugavert að fara í skoðunarferð
um Hörpu þar sem fræðst er um hönnun hússins og alla þá tækni
sem húsið býr yfir. Slíkar skoðunarferðir eru í boði daglega og kosta
1.500 krónur. Leiðsögumaður fylgir gestum um húsið kl. 15.30 á
virkum dögum en kl. 11.00 og 15.30 um helgar. Skoðunarferðin tekur
45 mínútur og hægt er að mæta í Hörpu rétt áður en dagskráin hefst.
Hópar geta fengið sérferðir með því að bóka á tours@harpa.is.
■ HOLLT OG SAÐSAMT
Um helgar fer meiri óhollusta ofan í flesta en alla jafna á virkum
dögum. Hægt er að vinna á móti því með því að byrja helgarmorgna á
hressandi og næringarríkri bombu. Þá er hægt að leyfa sér hitt og þetta
yfir daginn með betri samvisku. Hér er bragðgóður og staðgóður þeyt-
ingur sem hressir og rífur í.
1 epli
1 banani
2 litlar lárperur eða 1 stór
safi úr 1 sítrónu
2 cm rifin engiferrót
klakar
smá ískalt vatn
Setjið allt í blandara og þeytið þar til
blandan verður flauelsmjúk. Kælið í ís-
skáp um stund ef blandan er ekki alveg
köld. Smakkast best ískalt.
MORGUNSÆLA
Hér er uppskrift að hressandi þeytingi sem rífur í.