Fréttablaðið - 02.03.2013, Blaðsíða 54
| ATVINNA |
Sviðsstjóri Prenttæknisviðs
Hæfniskröfur:
Menntun á sviði upplýsinga- eða
fjölmiðlagreina og/eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Umtalsverð þekking og áhugi á prent- og
upplýsingaiðnaði.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu
og riti.
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
Framúrskarandi samskiptafærni,
frumkvæði og árangursdrifni.
IÐAN fræðslusetur ehf. varð til við
samruna fimm fræðslumiðstöðva í
iðnaði og ferðaþjónustu árið 2006.
Eigendur IÐUNNAR eru: Samtök
iðnaðarins, Samiðn, MATVÍS,Félag
bókagerðarmanna,FIT,VM,Bílgreina-
sambandið, Samtök
ferðaþjónustunnar og Meistarafélag
húsasmiða
www.idan.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars nk. Ráðið verður í starfið sem fyrst. Umsjón með starfinu hefur Hildur Erla
Björgvinsdóttir (hildur@radum.is) hjá Ráðum atvinnustofu. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á
heimasíðu Ráðum www.radum.is. Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.
Sviðsstjóri ber ábyrgð á árangri og framþróun sviðsins sem hefur það meginhlutverk að þjóna
prentiðnaði varðandi menntunarmál, hvort heldur er á sviði sí- og endurmenntunar eða
grunnmenntunar.
Helstu verkefni:
Skipulagning á fræðslustarfi fyrir prentiðnaðinn.
Samstarf við lykilfólk í prentiðnaði, innlendar og
erlendar menntastofnanir og systurfélög vegna sí-
og endurmenntunaráætlana.
Ráðgjöf til prentiðnaðarins varðandi
kennslufræðilegan þátt sí- og endurmenntunar.
Stefnumótun fyrir sviðið auk rekstrar- og
fjárhagsáætlunargerðar.
Verkefni á vegum starfsgreinaráðs í upplýsinga- og
fjölmiðlagreinum.
Ritstjórn og umsjón með fréttabréfi.
Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra
IÐUNNAR.
www.skra.is
www.island.is
Hæfniskröfur:
• Menntun á sviði byggingafræði, tæknifræði, verkfræði
eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af matsstörfum eða fasteignasölu er kostur
• Reynsla af útreikningi byggingarkostnaðar er æskileg
• Reynsla af vinnslu stórra tölvukerfa
• Góð kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði og æskilegt
er að kunna eitt Norðurlandamál
• Góðir skipulagshæfileikar
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
• Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
Þjóðskrá Íslands óskar eftir að ráða sérfræðinga á sviði skráningar og
mats fasteigna á starfsstöðvar sínar í Reykjavík og á Akureyri.
Helstu verkefni eru yfirferð á skráningu fasteigna, skoðun mannvirkja, útreikningur fasteignamats og
brunabótamats, vinnsla í sérhæfðum tölvukerfum og samskipti við fasteignaeigendur og sveitarfélög
auk gæða- og þróunarstarfs.
Sérfræðingar hjá Þjóðskrá Íslands
Leitað er að einstaklingi sem sýnir frumkvæði, nákvæmni
og hraða í vinnubrögðum og hefur ríka þjónustulund.
Um er að ræða full störf á starfsstöðvum stofnunarinnar
í Reykjavík annars vegar og Akureyri hins vegar og þurfa
umsækjendur að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör
eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurbjörg J.
Helgadóttir mannauðsstjóri hjá Þjóðskrá Íslands á
netfanginu sjh@skra.is.
Hjá Þjóðskrá Íslands starfa yfir 100 starfsmenn. Verkefni stofnunarinnar eru mjög fjölbreytt og heldur stofnunin m.a. fasteignaskrá og þjóðskrá, gefur út
fasteignamat og brunabótamat, rekur vefinn island.is og sér um útgáfu vegabréfa. Þjóðskrá Íslands leggur metnað sinn í að sinna verkefnum sínum af
fagmennsku og áreiðanleika. Stofnunin hefur það að leiðarljósi að starfsmönnum líði vel í starfi og leggur áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn.
Gildi stofnunarinnar eru virðing, sköpunargleði og áreiðanleiki.
Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2013. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf
þar sem fram kemur ástæða umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið og hvort sótt er um starf á
Akureyri eða í Reykjavík. Umsóknir óskast sendar á netfangið sjh@skra.is.
Staða skólastjóra við Lundarskóla á Akureyri er laus til
umsóknar.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt
hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á
vellíðan og árangur nemenda í góðu samstarfi við aðra
starfsmenn skólans.
Lundarskóli er heildstæður grunnskóli sem hóf
starfsemi árið 1974 en í dag eru þar 465 nemendur og
tæplega 80 starfsmenn. Lundarskóli vinnur samkvæmt
hugmyndafræði SMT- skólafærni en þar er lögð áhersla
á jákvæðan stuðning við hegðun nemenda. Áhersla
er á samræmd viðbrögð alls starfsfólks til að stuðla
að jákvæðu andrúmslofti í skólanum. Lundarskóli
er teymisskóli og nýtir teymiskennsluna sem leið til
að mæta ólíkum þörfum nemenda. Teymiskennslan
eykur sveigjanleika skólastarfsins og gefur tækifæri
til fjölbreyttari félagatengsla. Litið er á hvern árgang
sem eina heild með fjölbreyttum námshópum í stað
hefðbundinna bekkja. Skólasýn Lundarskóla byggir á
einkunnarorðunum: Þar sem okkur líður vel.
Aðstaða í skólanum er mjög góð og í ytra mati
mennta- menningarmálaráðuneytisins vorið 2012 fékk
skólastarfið mjög góða umsögn.
Frekari upplýsingar má sjá á heimasíðu skólans
http://www.lundarskoli.akureyri.is/
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2013.
Allar nánari upplýsingar veitir Karl Frímannsson,
fræðslustjóri, í síma 460 1456 og 862 8754
Vísað er til ítarlegri auglýsingar á www.akureyri.is.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á
heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Umsóknarfrestur er til
og með 18. mars 2013.
Skólastjóri Lundarskóla
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
www.hagvangur.is
2. mars 2013 LAUGARDAGUR4