Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 70
| ATVINNA |
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í maí og
júní ef næg þátttaka fæst:
Í matvælagreinum í maí. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í byggingagreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í prentgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í bílgreinum í maí-júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í hönnunar- og handverksgreinum í maí - júní.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í snyrtigreinum í maí-júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Í málmiðngreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur til 1. maí.
Í vélvirkjun í september. Umsóknarfrestur til 1. júní.
Í ljósmyndun í september – október. Umsóknarfrestur til 1. júlí.
Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um
leið og þær liggja fyrir.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi,
lífeyris sjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða
staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2013.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir
iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang:
www.idan.is og á skrifstofunni.
Styrkir til safna
skv. safnalögum nr. 141/2011
Safnaráð auglýsir eftir umsóknum frá
menningarminjasöfnum, náttúru minja-
söfnum og listasöfnum, um styrki úr
safnasjóði á árinu 2013.
Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem
falla undir safnalög nr. 141/2011. Safnaráð úthlutar úr sjóð-
num samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsins
frá 19. júlí 2010. Upphæð og fjöldi veittra styrkja fer eftir
fjárveitingu á fjárlögum og umsóknum.
Til þess að geta sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði þarf
safn að uppfylla skilyrði skv. ákvæðum 10. gr. safnalaga
m.a. um að safn skuli hafa tryggðan fjárhagsgrundvöll.
Söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum munu ekki hljóta
rekstrarstyrk úr safnasjóði sama ár, en geta sótt um verk-
efnastyrki.
Tekið verður tillit til samningsbundinna samstarfsverkefna
við söfn/setur/sýningar/aðra starfsemi á sviði safnastarfs
við ákvörðun rekstrarstyrkja.
Áhersla verður lögð á úthlutun verkefnastyrkja.
Umsóknarfrestur er til 26. mars 2013. Umsóknum skal skila
með því að fylla út umsóknareyðublað á vefsíðu safnaráðs:
www.safnarad.is. Öllum fylgigögnum með umsókn skal
skila áður en umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýs-
ingar á skrifstofu safnaráðs.
Safnaráð • Suðurgötu 41 • 101 Reykjavík
safnarad@safnarad.is • S: 530 2216
Grandatröð - Hf.
- Matvæla/Fiskvinnsluhús
Nýkomið sérlega gott 825 fm atvinnuhúsnæði, matvæla/
fiskvinnsluhúsnæði á sérlóð 2400 fm. Byggingaréttur.
Öll leyfi til staðar, Fullbúin eign. Laust fljótlega.
Upplýsingar gefur Helgi Jón sölustjóri s. 893-2233.
Magnús Emilsson Löggiltur fasteignasali.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
Klapparstígur
Glæsileg útsýnisíbúð á tveimur efstum hæðum
Glæsileg 176,2 fm. útsýnisíbúð á tveimur efstu hæðum í vönduðu
fjölbýlishúsi á sjávarkambinum við Klapparstíg auk sér stæðis í
bílageymslu. Þrennar svalir eru á eigninni, til norðurs, austurs og
suðurs, sem allar eru flísalagðar. Glæsilegar samliggjandi stofur,
sjónvarpsstofa með gólfsíðum gluggum, eldhús með hvítum innrét-
tingum, tvö svefnherbergi og stórt baðherbergi auk gestasnyrtingar.
Mikil lofthæð er á efri hæð íbúðarinnar. Stórkostlegt útsýni út á
sundin, að höfninni, Esjunni og yfir austurborgina.
ÓSKAST TIL LEIGU
15417 - Fullbúið skólahúsnæði óskast á
leigu fyrir Menntaskólann við Sund
Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu húsnæði, tíma-
bundið, til kennslu fyrir Menntskólann við Sund. Miðað
er við að húsnæðið verði tekið á leigu í tvö ár, frá 1. ágúst
2013, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar.
Gerð er krafa um staðsetningu í göngufjarlægð (hámark
um 1 km) frá skólanum sem staðsettur er á horni
Gnoðarvogs og Skeiðarvogs, 104 Reykjavík.
Húsrýmisþörf skólans er áætluð um 600 fermetrar, þar sem
gert er ráð fyrir að verði 7 góðar kennslustofur, snyrtingar
og kaffihorn.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður
að uppfylla verða aðgengi-legar á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is frá kl. 13:00, mánudaginn, 4. mars 2013.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 15417 (verkefnisnúmer
Ríkiskaupa) skulu sendar á netfangið utbod@rikiskaup.is
og verða svör birt á vef Ríkiskaupa.
Fyrir¬spurnar¬frestur rennur út 12. mars en svarfrestur er
til og með föstudeginum, 15. mars 2013.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og
staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til
Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en
kl. 16.00 þriðjudaginn, 19. mars 2013.
Minningarsjóður
Guðjóns Samúelssonar
Minningarsjóður dr. phil. húsameistara Guðjóns Samúels-
sonar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrkveitingar
úr sjóðnum. Styrkir eru veittir annað hvert ár og fer
styrkveiting fram í tíunda sinn þann 15. apríl 2013.
Tilgangur sjóðsins skv. skipulagsskrá er „að útbreiða
þekkingu á húsagerðarlist í íslenskum anda“.
Heildarstyrkveitingar munu að þessu sinni samtals nema
um 1.400.000 kr.
Umsóknir skulu vera á rafrænu formi og sendast á net-
fangið ai@ai.iseða til skrifstofu Arkitektafélags Íslands,
Engjateigi 9, 105 Reykjavík, merktar „Minningarsjóður“,
eigi síðar en kl. 12.00 mánudaginn 25. mars 2011.
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími: 896 4090
Dan V.S. Wiium
hdl., og löggiltur fasteignasali
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
SÍMI 533 4040
kjoreign@kjoreign.is
OPIÐ MÁN.-FIM. 9-18 OG FÖS. 9-17
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALA • Ármúli 21, Reykjavík • www.kjoreign.is
Opnunartími mán-fös kl. 9-17
Stórglæsileg og rúmgóð 153,8 fm endaíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt 10,4 fm
geymslu í kjallara og tveimur stæðum í bílastæðahúsi. Íbúðin skiptist í forstofu, for-
stofuherbergi, eldhús, stofur, barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús
og tvennar svalir. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Fallegt útsýni. Húsið hefur fengið
viðurkenningu umhverfisráðs Kópavogs fyrir góðan frágang á húsi og lóð. Glæsileg
íbúð í vönduðu lyftuhúsi. Húsið er ál- og flísaklætt að utan. Verð 59,0 millj.
Dan Wiium, Sími 896-4013 verður á staðnum.
KÓPAVOGSTÚN 6 – KÓPAVOGUR
OPIÐ HÚS Á MORGUN SUNNUDAG FRÁ KL. 15-16.
OPIÐ HÚS
EINHAMAR - VIÐ AKRANES
LÆKJARGATA – REYKJAVÍK
LÆKJARGATA – RVK. 4ra herb.
Til sölu Einhamar 2, fallegt einbýlishús á frábærum útsýnisstað
í útjaðri Akraness. Húsið er 194, 2 fm að stærð ásamt 65,4 fm
bílskúr samtals 259,6 fm að stærð. Húsið stendur á 1350 fm
leigulóð. Húsið er á einni hæð og skiptist í fjögur svefnherbergi,
forstofu, gestabaðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, stofu, eldhús,
baðherbergi og gang. Í bílskúr er geymsla.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM sími 550-3000.
Til sölu frábærlega staðsetta STÚDÍÓ-íbúð 48,1m2 í fallegu fjölbýli
í hverfi 101 Reykjavík. Íbúðin er á þriðju hæð í húsinu númer 4 við
Lækjargötu í Reykjavík.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM sími 550-3000/899-8199
Til sölu áhugaverða íbúð í Lækjargötu. Um er að ræða 4ra
herbergja alls 123 m2 endaíbúð á 3ju hæð í nýlegu lyftuhúsi í hjarta
borgarinnar. Íbúðinni fylgir sér stæði í bílageymslu og geymsla í
kjallara.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM sími 550-3000/899-8199.
2. mars 2013 LAUGARDAGUR20