Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 80

Fréttablaðið - 02.03.2013, Side 80
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 48 Saga lækninga á Íslandi nær aftur til landnáms-aldar og í fornum heimild-um er getið um bæði karla og konur sem höfðu viður-nefnið læknir. Íslendinga- sögur geyma margar frásagnir af ýmsum læknisverkum en þótt nöfn margra læknisfróðra manna séu þekkt úr fornum sögum er enginn eins frægur og Hrafn Sveinbjarn- arson á Eyri við Arnarfjörð. Hrafn er sagður einn af fáum lærðum læknum á Íslandi á miðöldum og af honum er til sérstök saga, Hrafns saga Sveinbjarnarsonar. Sagan af Hrafni Sveinbjarnar- syni er ekki eingöngu saga um lækningar eða veraldlega valda- baráttu. Þar er stöðugt vísað til sið- ferðis og réttlætis og að auki í líf heilagra manna og kirkjulegan rétt. Ber svip helgisögu Saga Hrafns er nokkurs konar dæmisaga sem ber svip helgisögu eða öllu heldur sögu af heilögum manni sem þjónar guði með góðum verkum, fyrirgefur óvinum sínum og geldur fyrir góðmennsku sína með dauða en kemst þá um leið á betri stað. Í sögu Hrafns segir meðal annars hvernig „lækning af guðs miskunn“ komst inn í ætt hans. Atli Höskulds- son, langafi hans, hafði verið valinn af Magnúsi konungi góða Ólafssyni fyrir orrustuna á Hlýrskógsheiði 1043 til að binda um sár manna. Ólafur konungur helgi vitraðist syni sínum, en þá voru rúmlega tíu ár frá dauða hans, og bað hann að velja tólf menn úr öllum hernum sem væru af hinum bestu ættum en í ættum þeirra skyldi lækning haldast. Atli batt sár manna eftir orrustuna „og varð síðan algjör læknir“ og þannig kom „lækning af guðs miskunn fyrsta sinn í kyn Bárðar svarta.“ Bárður svarti var sonur Atla og afi Hrafns. Kunnátt- an hélst síðan í ættinni og Svein- björn faðir hans var sagður „læknir góður“ og Hrafn var þegar á unga aldri „hinn mesti læknir“, eins og segir í sögu hans. Hrafni er svo lýst: „Hrafn var á unga aldri snemmendis mikill atgerfismaður. Hann var völund- ur að hagleik, bæði á tré og járn, og skáld, og hinn mesti læknir og vel lærður og eigi meir vígður en krúnuvígslu, lögspakur maður og vel máli farinn, minnugur og að öllu fróður […] bogmaður mikill og skaut manna best handskoti.“ Að flestu leyti er þetta klassísk mann- lýsing en þó er ástæða til að staldra við tvennt; hæfni hans með boga og krúnuvígsluna. Bogfimi var á þess- um tíma einungis á færi konungs- manna og riddara enda máttu þeir einir hafa slíkt vopn undir höndum utan átakatíma. Krúnuvígsla var nokkurs konar inntökupróf að því að hefja nám til prests og þegar þeirri vígslu var lokið tóku við sjö áfangar að prestsvígslu. Ungur maður sem kann að skjóta af boga, tekur krúnuvígslu og er auk þess „hinn mesti læknir“ hefur umtals- verða sérstöðu í samfélaginu hvar sem hann býr. Hlaut virðingu erlendis „Hrafn fór ungur brott af landi og fékk góða virðingu í öðrum lönd- um af höfðingjum sem vitni bar um þær gersemar er Bjarni biskup sendi honum, sonur Kolbeins hrúgu úr Orkneyjum, út hingað: Það fing- urgull er stóð eyri og var merkt á hrafn og nafn hans svo að innsigla má með. Annan hlut sendi biskup honum, söðul góðan, og hinn þriðja hlut steinklæði.“ Gjafirnar sem hann fær eru athyglisverðar og er signethring- urinn vafalítið þeirra merkust. Slíka hringi áttu eingöngu höfð- ingjar, helst kóngar og biskupar, en norræni aðallinn fór að nota slíka hringi á árunum 1200-1220. Ein- ungis er kunnugt um tvo Íslend- inga sem höfðu slíka hringi; Hauk Erlendsson lögmann sem lést 1314 og Björn ríka Þorleifsson, hirð- stjóra og riddara, sem Englend- ingar drápu á Rifi árið 1467. Veraldlegur auður Í sögu Hrafns er ævi hans rakin nokkuð nákvæmlega frá því að hann tekur við búi þar til hann er drepinn. Í upphafi hennar segir meðal annars: „Hrafn tók við goð- orði því sem faðir hans hafði átt og mannavarðveislu. Svo var bú Hrafns gagnauðugt að öllum mönn- um var þar heimill matur, þeim er til sóttu og erinda sinna fóru, hvort sem þeir vildu setið hafa lengur eða skemur.“ Við blasir ríkmannlegt heimili, völd og auður. Það var ekki á hvers manns færi að eiga bát til að flytja fólk yfir Arnarfjörð og vera jafn- framt með ferju yfir Breiðafjörð. Þarna er lýst valdamiklum, lærðum og ríkum manni sem virðist hafa haft góð tengsl við menn í svipaðri stöðu innan lands og utan. Læknirinn Um lækningar Hrafns segir: „Svo fylgdi lækningu hans mikill guðs kraftur að margir gengu heilir frá hans fundi […] Við mörgum mönnum vanheilum og félausum tók hann, þeim er þrotráða voru og hafði með sér á sínum kostnað þangað til þeir heilir voru. Fyrir því væntum vér að Kristur muni kauplaust veitt hafa Hrafni með sér andlega lækningu á dauðadegi hans. Eigi aðeins græddi Hrafn þá menn er særðir voru eggbitnum sárum heldur græddi hann mörg kynjamein þau er menn vissu eigi hvers háttar voru.“ Í sögu Hrafns kemur fram að Hrafn hafi haft gististaði en hvar þeir voru er ekki vitað. Hrafn hafði ferju á Arnarfirði og Breiðafirði svo að ekki þarf að koma á óvart að hann hafi haft í sinni umsjón gististaði fyrir ferðalanga en ekki segir neitt nánar af þeirri starf- semi hans í sögu hans eða í öðrum heimildum. Hugsanlegt er að starf- semi Hrafns hafi verið sambærileg við starf Jóhanníta víða í Evrópu á helstu pílagríms- og samgöngu- leiðum en það hefur Hrafn þekkt af eigin raun. Maður friðar og sátta Hrafn kemur töluvert við sögu í átökum í upphafi 13. aldar en þar er hann maður friðar og sátta og eins og títt er um slíka menn bíður hans ótímabær dauði. Þegar Guðmundur Arason hafði verið kosinn biskup þurfti hann að fara til Noregs og fá vígslu hjá erkibiskupi. Miklar deil- ur stóðu þá í Noregi milli biskups og konungs og var ástandið tvísýnt. Enginn þótti betri fylgdarmaður með biskupi en Hrafn þrátt fyrir að hann byggi í öðru biskupsdæmi og var hann valinn „fyrir visku sakir og vinsældar í öðrum lönd- um“. Sýnir þetta vel stöðu Hrafns meðal leikra og lærðra innan lands og utan. Deilur höfðu magnast á Vestfjörð- um milli Hrafns og Þorvalds Vatns- firðings, sem var mikill yfirgangs- maður og bjó í Vatnsfirði, þrátt fyrir að Hrafn reyndi að leita sátta. Þeim deilum lauk með því að Þor- valdur fór með lið manna að Hrafni 4. mars 1213 og lét höggva hann og fóthöggva helstu trúnaðarvini hans. Eftirmál vígsins urðu ýmis en segja má að það marki að hluta til upphaf Sturlungaaldar og síðar endalok þjóðveldisins. Hrafn Sveinbjarnarson hefur verið mikilmenni í lifanda lífi og eitt af stórmennum Íslandssögunnar þótt hann hafi hvorki höggvið mann og annan né ort vísu í andar slitrunum. Hann skipar þó ekki stóran sess í þeirri sögu en þegar hattar fyrir honum birtist hann sem „sérlund- aður og góðhjartaður héraðslækn- ir að vestan“. Nú er hann flestum gleymdur og fæðingar staður hans og höfuðból er orðið að minning- arreit um annan mann. Að öðrum mönnum ólöstuðum er ástæða til að halda nafni Hrafns Sveinbjarnar- sonar á lofti og þeim gildum sem hann stóð fyrir. Höfðingi og læknir á Hrafnseyri Hrafn Sveinbjarnarson á Eyri við Arnarfjörð er einn kunnasti læknir Íslendingasagna og var sagður einn fárra lærðra lækna á Íslandi á miðöldum. Hrafn var maður friðar og sátta en var þó veginn þann 4. mars 1213 eða fyrir 800 árum á mánudaginn. Hvað varðar læknisverk Hrafns er ljóst að lýsingar á kunnáttu hans eiga sér fyrirmyndir í þekktum erlendum lækningaritum. Í sögu hans eru nefndar allar helstu aðgerðir sem hægt var að gera á þeim tíma en við þær var notaður hnífur, glóandi járn og smyrsl. LÆKNINGAR HRAFNS Í sögu Hrafns segir: „[…] þann vetur var Hrafn í Noregi og að vori fór hann vestur til Englands og sótti heim hinn helga Tómas erkibiskup í Kantarabyrgi og færði hinum helga Tómasi tennurnar og varði hann þar fé sínu til musteris og fal sig undir þeirra bænir. […] Þaðan fór hann suður um haf og sótti heim hinn helga Egidium í Ílansborg […] Síðan fór Hrafn vestur til Jakobs […] Þaðan fór hann til Rómaborgar og fal líf sitt á hendi postulum og öðrum helgum mönnum. […] Síðan fór hann sunnan frá Rómi og varði fé sínu til helgra dóma þar sem hann kom. PÍLAGRÍMSFERÐ HRAFNS SVEINBJARNARSONAR Noregur Kantarabyrgi Santiago de Compostela Ílansborg Toulouse Róm Ba rða strönd Stykkishólmur Arnarfj örður Hrafnseyri FERJAÐI YFIR ARNAR- FJÖRÐ OG BREIÐAFÖRÐ „Alla menn lét hann flytja yfir Arnarfjörð þá er fara vildu. Hann átti og skip á Barða- strönd. Það höfðu allir þeir er þurftu yfir Breiðafjörð.“ Hrafn fer í pílagrímsferð, líklega á árunum 1185- 1195, til Santiago de Compostela og Rómar. Ýmislegt vekur athygli í þessari frásögn af pílagrímsferðinni. Hrafn setur fé sitt í musteri áður en hann fer í ferðina. Á þessum árum voru Jóhannesarriddarar (sem nú eru nefndir Mölturiddarar) og musterisriddarar fyrirferðar- miklir á Englandi enda var Ríkharður ljónshjarta Englandskonungur mikilvirkur krossfari. Þeir voru óðum að koma sér upp þéttriðnu neti bækistöðva eða líknarheimila á helstu pílagrímsleiðum í Evrópu. Líklegt má telja að Hrafn hafi falið reglubræðrum fé sitt til að tryggja öryggi sitt á ferðalaginu. Hann sótti heim heilagan Egidius í Ílansborg en þar er átt við St. Giles í sam- nefndri borg. Líkamsleifar heilags Egidiusar eru í Toulouse svo að líklegt má telja að Hrafn hafi einnig komið þangað. Hrafn hefur þá komið til tveggja helstu staða sem tengja má við æðstu stjórn og sögu Jóhanníta. Frásögnin í sögu Hrafns styrkir því hugsanleg tengsl hans við Jóhanníta og augljóst má vera að honum hefur verið vel kunnugt um starfsemi þeirra. Jón Ólafur Ísberg, sagnfræðingur joli@centrum.is Tengsl við Jóhanníta GRAFÍK/JÓNAS
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.