Fréttablaðið - 02.03.2013, Qupperneq 111
LAUGARDAGUR 2. mars 2013 | MENNING | 79
Draw Something
Hver segir að það sé ekki hægt að
hafa gaman saman ef einn er hér og
vinur hans þar? Í Draw Something
skiptast vinir á teikningum af fyrir-
fram ákveðnum hlutum. Myndina
sendir þú svo á vin þinn sem verður
að geta hvað þú ert að teikna. Ef vin-
urinn getur rétt fær hann stig og þarf
svo að svara með annarri teikningu
sem hann sendir á þig. Leikurinn
er því ekki ósvipaður Pictionary og
hengimanni (e. hangman).
Hægt er að velja einföld orð eins og
jólatré eða bíl en leikurinn verður
strax erfiðari fyrir báða aðila þegar
teikna á sértækari hluti. Fyrir það
fást auðvitað fleiri stig.
Skýringar:
App fyrir Apple-tæki
App fyrir Android-tæki
App fyrir Windows
APP VIKUNNAR
Aðalgestir tíundu Blúshátíðar í Reykjavík verða
hjónin Lucky og Tamara Peterson og gítarleikar-
inn Guitar Shorty.
Lucky Peterson er ein helsta stjarna blúss-
ins um þessar mundir og Tamara Peterson er
einstaklega fær blússöngkona með hjartað á
réttum stað. Guitar Shorty er lifandi goðsögn,
blús maður af gamla skólanum. Hann er fyrrum
gítarleikari Willie Dixon, Sam Cooke og Ray
Charles.
Shorty er einn af virtustu og vinsælustu blús-
mönnum heims, margverðlaunaður og hefur
spilað með flestum stórstjörnum blústónlist-
arinnar frá upphafi, þ.á.m. mági sínum Jimi
Hendrix og Muddy Waters.
Blúshátíð í Reykjavík 2013 verður haldin 23.
til 28. mars. Þrennir tónleikar verða á Hilton
Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags-
og fimmtudagskvöld, skírdag. Miðasala fer fram
á Midi.is. „Þetta verður með hefðbundnu sniði.
Þessi hátíð er orðin fastur liður í menningarlífi
landsmanna og þetta er alltaf jafn gaman,“ segir
Halldór Bragason, skipuleggjandi hátíðarinnar.
- fb
Blúshátíð haldin í tíunda sinn
Blúshátíð í Reykjavík verður haldin um páskana. Góðir gestir stíga á svið.
GUITAR SHORTY Guitar Shorty er einn af aðalgestum
Blúshátíðar í Reykjavík.
Daniel Radcliffe, þekktastur
sem Harry Potter, er í viðræð-
um um að leika í nýrri mynd um
Franken stein sem er í undirbún-
ingi. Hann myndi þó ekki leika
Dr. Frankenstein heldur aðstoð-
armann hans, krypplinginn Igor.
Handritshöfundur myndar-
innar er Max Landis, sem hefur
áður gert handritið að Chronicle.
Handritið var ekki unnið beint
upp úr sígildri skáldsögu Mary
Shelly um Frankenstein. Persón-
an Igor er til að mynda ekki í bók
Shelley, heldur öðlaðist hún líf í
kvikmyndunum sem komu á eftir.
Vill hlutverk í
Frankenstein
Í VIÐRÆÐUM Daniel Radcliffe er í
viðræðum um að leika í Frankenstein.
Tónlistarútgáfan Lady Boy
Records hefur gefið út sína
fyrstu hljóðsnældu, Lady Boy
Records 001.
Fyrirtækið var stofnað í fyrra
af Frímanni Ísleifi Frímannssyni
og Nicolas Kunysz, sem rekur líka
The Makery sem er vöruhönn-
unarstúdíó. „Við höfðum báðir
verið að gera hávaðatónlist, bæði
saman í Pyrodulia og hvor í sínu
lagi undir mismunandi nöfnum,
og datt svo í hug að stofna litla
útgáfu sem myndi gefa út okkur
og fleiri tónlistarmenn með svip-
aðar tónlistartilhneigingar,“ segir
Frímann. Á meðal þeirra sem eiga
lög á spólunni eru Ghostigital,
Krummi, Úlfur, Quadruplos, Bix
og Futuregrapher.
Lady Boy með
hljóðsnældu
SNÆLDA Lady Boy hefur gefið út sína
fyrstu hljóðsnældu.