Fréttablaðið - 02.03.2013, Qupperneq 112
2. mars 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 80
DAGSKRÁ HELGARINNAR
LAUGARDAGUR
15.00 Real M. - Barcelona Sport HD
15.00 Man. Utd. - Norwich Sport 2 HD
15.00 Chelsea - West Brom Sport 3
15.00 Everton - Reading Sport 4
15.00 Swansea - Newcastle Sport 5
15.00 Stoke - West Ham Sport 6
17.00 RN Löwen - Hamburg Sport HD
17.30 Wigan - Liverpool Sport 2 HD
SUNNUDAGUR
16.00 Tottenham - Arsenal Sport 2 HD
16.30 Magdeburg - Kiel Sport HD
18.00 Sunnudagsmessan Sport 2 HD
18.00 Valur - HK N1-deild kvenna
20.30 Clippers - Oklahoma Sport HD
N1-DEILD KARLA
ÍR - Akureyri laugardag kl. 15.00
N1-DEILD KVENNA
Grótta - FH laugardag kl. 13.30
Stjarnan - Selfoss lau. kl. 13.30
Afturelding - Haukar lau. kl. 13.30
Stjarnan - Selfoss lau. kl. 13.30
Valur - HK sunnudag kl. 18.00
DOMINOS-DEILD KVENNA
KR - Keflavík laugardag kl. 16.30
Haukar - Snæfell lau. kl. 16.30
Grindavík - Njarðvík lau. kl. 16.30
Fjölnir - Valur lau. kl. 18.45
BARDAGAÍÞRÓTTIR Gunnar Nelson
mun keppa á stærsta sviði UFC-
bardagaheimsins þegar hann
mætir Bandaríkjamanninum
Mike Pyle á MGM Grand-hótelinu
í Las Vegas þann 25. maí næstkom-
andi. Haraldur Dean Nelson, faðir
Gunnars og umboðsmaður, segir
að þeir hafi gert munnlegt sam-
komulag þess efnis og vissi hann
ekki betur en svo en að Pyle hefði
gert slíkt hið sama.
„ Joe Si lva , svokal laður
„matchmaker“ hjá UFC, hringdi
klukkan fjögur í nótt. Ég hafði
samband við Gunnar og við vorum
búnir að samþykkja bardagann
hálftíma síðar,“ segir Haraldur
við Fréttablaðið. „Það var þó ekki
erfitt að svara þessu símtali enda
mikill heiður fyrir Gunnar að fá
að berjast við svo hátt skrifaðan
kappa á stærsta sviðinu í UFC.“
Mike Pyle er 37 ára gamall og
margreyndur í íþróttinni. Hann
hefur unnið 24 af 32 MMA-bardög-
um sínum og þrjá í röð, sem allir
unnust á rothöggi í fyrstu lotu.
Hann er einnig góður í gólfinu og
hefur unnið sextán af 24 bardög-
um þar.
„Pyle er númer þrettán á heims-
listanum í veltivigtinni, mjög fjöl-
hæfur og flottur bardagakappi.
Þótt hann sé 37 ára þykir það
góður aldur fyrir MMA og Pyle er
þekktur fyrir að vera mjög hrað-
ur og hafa mikið úthald. Þjálfari
Gunnars, John Kavanaugh, er
mikill aðdáandi Pyle,“ segir hann.
Dana White, forseti UFC, sagði
nýverið að Gunnar ætti bjarta
framtíð fyrir sér í íþróttinni og
að því ætlaði hann að fara spar-
lega með Gunnar fyrst um sinn.
Gunnar gaf svo sjálfur til kynna
að hann myndi líklega berjast
áfram í Evrópu um sinn.
„Þetta hefur greinilega eitthvað
breyst því þeir kalla nú Gunnar
eins snemma til baka og mögulegt
er. Gunnar hefur greinilega náð að
heilla þá nægilega mikið til þess að
tefla honum fram á stærsta sviði
UFC,“ segir Haraldur en hann á þó
síður von á því að bardagi Gunnars
verði í hópi þeirra bardaga sem eru
á aðaldagskrá kvöldsins.
„Við báðum um það en þeir gátu
engu lofað. Í fullri hreinskilni tel
ég ekki miklar líkur á því. Það eru
stórir bardagar á dagskránni, til
dæmis titilbardagi í þungavigt, og
Gunnar er þar að auki að berjast í
Bandaríkjunum í fyrsta sinn.“
Fullvíst er að þetta verði stærsti
og erfiðasti bardagi Gunnars,
sem er enn ósigraður, til þessa.
Haraldur segir þó að það hafi ekki
hvarflað að þeim að neita þessu
tækifæri. „Aldrei. Gunnar myndi
aldrei neita bardaga vegna þess að
andstæðingurinn þykir of sterkur.
Hann lítur á það sem áskorun að
berjast við hærra skrifaða kappa,“
segir Haraldur en hefur auðvitað
fulla trú á sínum manni.
„Ég er sannfærður um að
Gunnar muni vinna Pyle, eins og
alla aðra.“ eirikur@frettabladid.is
Gunnar myndi aldrei neita
„Ég fékk símtal klukkan fj ögur í nótt og við samþykktum bardagann hálft íma síðar,“ sagði Haraldur Dean
Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars Nelson sem mun berjast í UFC 160 í Las Vegas í lok maímánaðar.
Í GÓLFINU Gunnar Nelson hafði betur gegn Jorge Santiago á stigum í London í
síðasta mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY
ÚRSLIT
DOMINOS-DEILD KARLA
NJARÐVÍK - FJÖLNIR 100-75 (50-30)
Stigahæstir: Marcus Van 25/21 fráköst, Elvar Már
Friðriksson 18, Ágúst Orrason 14, Hjörtur Hrafn
Einarsson 14 - Christopher Smith 22/12 fráköst/5
stoðsendingar/5 varin, Magni Hafsteinsson 16/8
fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 12.
ÞÓR ÞORL. - TINDASTÓLL 83-81 (39-36)
Stigahæstir: David Jackson 30, Benjamin Curtis
Smith 17, Guðmundur Jónsson 15, Grétar Ingi
Erlendsson 12/8 fráköst - Drew Gibson 21/9
fráköst/6 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson
15/8 fráköst, George Valentine 13/9 fráköst, Helgi
Freyr Margeirsson 11, Tarick Johnson 11.
Matarverð á Íslandi
er lægra en á öðrum
Norðurlöndum
Á Norðurlöndunum er hvað hagkvæmast að kaupa í matinn á Íslandi og í Finnlandi.
Maturinn er dýrari í Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
Þetta kemur fram í nýlegri tölfræðiárbók Norrænu ráðherranefndarinnar.
Það er mikilvægt að framleiða kjöt, mjólk, grænmeti og fleiri matvörur á Íslandi.
Þannig spörum við gjaldeyri sem hægt er að nota í annað en matarinnkaup. Auk þess
skapar landbúnaðurinn þúsundir starfa um allt land.
Innlend matvælaframleiðsla hefur haldið aftur af verðhækkunum á matarkörfunni
undanfarin ár því að innfluttar matvörur hafa hækkað í verði umfram íslenskar.
Heimildir: Norræna ráðherranefndin,
Hagstofa Íslands og Eurostat.
Verðlag á Norðurlöndunum árið 2011
ESB-15 Danmörk
Vörur og þjónusta
Vísitala ESB-15 = 100
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Matur
Finnland Noregur SvíþjóðÍsland
Íslandsmótið í borðtennis 2013
í TBR-Íþróttahúsinu
Mótið hefst laugardaginn 2. mars kl. 11.00
með tvenndarkeppni. Keppt er í 9. flokkum.
Sunnudaginn 3. mars hefjast úrslitaleikir
• kl. 11.30 í 1. og 2. flokki karla og kvenna
• kl. 12.30 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna
• kl. 14.00 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna
Verðlaunaafhending sunnudaginn 3. mars kl. 14.30
Áhugamenn um borðtennis fjölmennið í
TBR-Íþróttahúsið og sjáið spennandi keppni
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Aníta Hinriks-
dóttir tryggði sér í gær sæti í und-
anúrslitum í 800 metra hlaupi
kvenna á EM innanhúss í Gauta-
borg þegar hún varð níunda í und-
anrásum.
Aníta hljóp á 2:04.72 mínútum
en Íslandsmet hennar frá því í
febrúar er 2:03.27 mínútur. Aníta
kom þriðja í mark í sínum riðli en
þrjár efstu komust áfram.
Aníta tók forystuna strax í
byrjun og var fyrst í sínum riðli
eftir bæði 200 og 400 metra. Hún
gaf eftir í lokin en hélt 3. sætinu.
„Ég held að hún hafi hlaupið
fyrstu 400 metrana svona hratt
af því að spennustigið var svo
hátt. Núna er hún búin að taka
það svolítið úr sér, ég veit að hún
hleypur jafnara hlaup í dag. Hún
sér eftir þetta hlaup og ég líka að
hún getur hlaupið hraðar í dag
ef hún nær að útfæra hlaupið
öðruvísi,“ sagði Gunnar Páll
Jóakimsson, þjálfari Anítu.
„Spennustigið var mjög hátt
og hún hleypur fyrsta hringinn
hraðar en við plönuðum. Ég vissi
alveg að það gæti gerst. Það var
því draumur að komast áfram og
ég efast ekki um það að hún hlaupi
mjög vel á morgun (í dag),“ segir
Gunnar. Sex efstu komast í úrslit
en undanúrslitahlaupið fer fram
klukkan 16.38 í dag.
„Hún verður að hlaupa hraðar
en í gær og það er það sem hún
stefnir á. Við getum samt ekkert
verið ósátt því þetta er mjög
gott hjá henni á fyrsta stórmóti
fullorðinna,“ sagði Gunnar. - óój
Flott frumraun Anítu
Komst í undanúrslit á EM og hleypur kl.16.38 í dag
Á FERÐINNI Í GAUTABORG Aníta Hin-
riksdóttir keyrði upp hraðann í byrjun.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
SPORT