Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 26
| SMÁAUGLÝSINGAR |
HEIMILIÐ
Dýrahald
HANN RATAR EKKI HEIM á
Tómasarhaga, þvælst um í 4 vikur.
VEIST ÞÚ HVAR?? Gulbröndóttur,
með hvíta bringu og 4 sokka, númer í
eyra, enga ól. Gæfur (nú kannski mjór/
hræddur). Guðrún S 895 7993.
HÚSNÆÐI
Húsnæði í boði
GISTIHEIMILI -
GUESTHOUSE WWW.
LEIGUHERBERGI.IS
1-2 manna herb. á Funahöfða
17a og 19 og Dalshraun 13
Hfj. Rooms for 1-2 persons in
Funahöfða 17a -19 Rvk and
Dalshraun 13 Hfj.
Uppl/info í S. 824 4535.
frá kl. 10-20.
www.leiguherbergi.is
Stúdíóíbúð til leigu í 111.RVK. 3 mán
fyrirfram, 75 þ. á mán. raf. og hiti
innifalið. Uppl. í S. 897 7151 e. kl. 17.
15fm herbergi sv.104. Sérinngangur,
aðgengi að Wc og sturtu. Leiga
40.000pr, mánuð. Reglusemi skilyrði.
Uppl. í s: 821-6625 ef.kl: 18
Atvinnuhúsnæði
Vinnustofa til leigu á Artúnshöfða.
Bjart og gott húsnæði. Sími 861 8011.
51,6 M2 IÐNAÐARBIL
Tvö bil af þessari eftirsóttu stærð
til sölu eða leigu. 10 m2 milliloft að
auki. Lofthæð: 3,9 m. Hurð 3,6 m.
Góðir gluggar. Sýningarbil á staðnum.
Facebook/Steinhella 14. S: 660-1060
og 661-6800.
Geymsluhúsnæði
GEYMSLUR.COM
Frá kr. 3990 hjá Ikea í Garðabæ og
Fiskislóð í Reykjavík. S. 555 3464
WWW.BUSLODAGEYMSLA.IS
Búslóðageymsla Olivers 150 kr. á dag
hvert bretti. Starfað í yfir 25 ár. S. 567
4046 & 892 0808.
WWW.GEYMSLAEITT.IS
Sér geymslur frá 3.900. 1-17m2.
Aðgangur kl. 8-22 alla daga. Ný
sérhönnuð geymsluhús, upphitað og
vaktað. S: 564-6500.
GEYMSLULAUSNIR.IS
Búslóðageymsla og flutningar. Gott
verð, sækjum og sendum. S. 615-5005.
ATVINNA
Atvinna í boði
GINGER LÁGMÚLA
Vantar hressan aðstoðarkokk
sem getur unnið á vöktum, getur
byrjað strax, er reyklaus og ekki
yngri en 20 ára.
Ef þú hefur áhuga komndu þá til
okkar í Lágmúla (inni í 10-11) og
fylltu út starfsmannaumsókn.
Atvinna óskast
VANTAR ÞIG SMIÐI,
MÚRARA EÐA
JÁRNABINDINGAMENN?
Höfum á skrá menn sem óska
eftir mikilli vinnu. Geta hafið
störf nú þegar.
Starfsmannaþjónustan
S. 661 7000.
TILKYNNINGAR
Einkamál
Hótel Reykjavík Centrum óskar eftir
að ráða í eftirfarandi stöður:
Starfsmann á dagvakt í gestamóttöku.
Unnið er frá 08:00 – 20:00 samkvæmt vaktarplani.
Kröfur:
Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska.
Rík þjónustulund og góð tölvukunnátta.
Aðstoðarkokk á Fjalakettinum.
Unnið er á vöktum frá 17:00 – 23:00 eða til lokun.
Kröfur:
Amk 2 ára reynsla í atvinnueldhúsi
Umsækjendur sendið ferilskrá með mynd
til thorhallur@hotelcentrum.is
Umsóknafrestur er til 10/03/2013
ATH um er að ræða framtíðarstarf
www.hotelcentrum.is
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
og 2. mgr. 6.gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat
áætlana, er verkefnislýsing endurskoðunar aðalskipulags
Reykjavíkur lögð fram á ný til kynningar. Fyrri lýsing
var samþykkt í borgarráði 30. júní 2011 og uppfærð
lýsing var samþykkt í borgarráði 28. febrúar 2013.
Verkefnislýsingin er efnislega óbreytt frá fyrri útgáfu
og stendur að öllu leyti fyrir sínu varðandi aðferðir og
áherslur. Ástæða þess að verklýsingin er kynnt á ný er
gildistaka nýrrar skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og
ákvæði hennar um reglugerðarskil, en nýtt aðalskipulag
fyrir Reykjavík mun verða sett fram í samræmi við
ákvæði nýrrar skipulagsreglugerðar.
Aftast í lýsingunni er að finna uppfærða tímaáætlun
um kynningarferli en áformað er auglýsa tillögu að nýju
aðalskipulagi fyrir Reykjavík í vor.
Nálgast má lýsinguna á vefsvæði umhverfis og
skipulagssviðs, skipbygg.is
Reykjavík 5. mars 2013
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg
Umverfis- og skipulagssvið
Nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík.
Verkefnislýsing.
Topp íbúð miðsvæðis í Reykjavík
Til sölu um 200 fm lúxusíbúð á efstu hæð (sjöttu) með miklu útsýni
í nýju húsi í Mánatúni. Húsið er í léttu göngufæri við miðbæinn.
• Þrjú svefnherbergi, tvö mjög stór, tvö baðherbergi, tvær stofur
og þvotthús innan íbúðar.
• Tvö stæði í bílgeymslu (ekki inni í fermetratölu).
• Aðeins tvær íbúðir eru á gangi. Tvær lyftur.
Íbúðin er innréttuð á vandaðan hátt með sérvöldum efnum og tækjum.
Hér er sjaldgæft tækifæri til að kaupa glæsilega íbúð á besta stað.
Hafið samband við Kjartan í síma 824 9093 til að bóka skoðun.
atvinna
tilkynningar
Trausti fasteignasala, trausti@trausti.is,
s.546-5050, Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Breiðavík 23
Opið hús í dag frá kl. 17:15 – 17:45
Falleg og mikið endurnýjuð 80,2 fm. tveggja herbergja íbúð
í einstaklega snyrtilegu fjölbýli í Grafarvogi. Í íbúðinni sjálfri
er þvottahús og henni fylgir geymsla á jarðhæð. Nýtt parket
og sólbekkir. Verð: 21,5 millj.
Nánari upplýsingar í síma: 546-5050
OP
IÐ
HÚ
S
fasteignir
Verkefnastjóri Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks
Starfssvið: Verkefnastjóri BsVest hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd þjónustusamnings um málefni fatlaðs fólks og ber ábyrgð á því gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn BsVest að honum sé framfylgt. Verkefnastjóri stýrir vinnu verkefnahóps félagsþjónustusvæða sveitarfélaga er standa að BsVest.
Hæfniskröfur: Krafist er háskólaprófs sem nýtist í starfi auk reynslu í félagsþjónustu og þekkingar og áhuga á málefnum fatlaðs fólks. Stjórnun og þekking á rekstri verkefna á tilgreindu starfsviði er æskileg. Góð tölvuþekking er nauðsynleg, þ.m.t. excel, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga.
Leitað er að hæfum einstaklingi, karli eða konu, sem hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði, hæfni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu-og skipulagshæfileika. Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetningu upplýsinga er skilyrði.
Helstu verkefni: Vinna að stefnumótun og framþróun málaflokksins fyrir starfssvæðið Setja og fylgja eftir gæða-og þjónustumarkmiðum þannig að skjólstæðingar fái þá þjónustu sem nauðsynleg er til að efla sjálfstæði þeirra og færni. Vinna að gerð fjárhags-, rekstraráætlana og skýrslugerð vegna starfseminnar. Eftirlit með því að fjárhagslegar skuldbindingar séu samkvæmt ákvæðum þjónustusamnings og stofnanir sem veita fötluðu fólki þjónustu starfi innan ramma laga og
Byggðasamlag Vestfjarða um
málefni fatlaðs fólks bs. (BsVest) er
byggðasamlag sveitarfélaga á
Vestfjörðum og er rekið á grundvelli
laga um málefnum fatlaðra nr.
59/1992 og lögum um sveitarfélög
nr 138/2011. Stjórn og
framkvæmdastjórn BsVest er rekin
sameiginlega með
Fjórðungssambandi Vestfirðinga.
Staðsetning starfstöðvar
verkefnastjóra er á Vestfjörðum og
miðað er við að viðkomandi geti
hafið störf hið allra fyrsta. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsjón með ráðningu hefur Aðalsteinn Óskarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga adalsteinn@fjordungssamband.is sími 450-3001 eða 862-6092. Umsóknarfrestur er settur til og með 11. mars 2013, umsóknir sendist á skrifstofa@fjordungssamband.is
Aðalfundur
Ás styrktarfélag heldur aðalfund sinn í
safnaðarheimili Digraneskirkju í Kópavogi,
miðvikudaginn 20. mars kl. 20:00.
Venjuleg aðalfundarstörf
Kaffiveitingar
Að loknum aðalfundi mun Halldór
Gunnarsson, sérfræðingur í
Velferðarráðuneytinu flytja erindið
„Réttindagæslan og ráðstafanir til að daga
úr nauðung við fatlað fólk“
Félagar og annað áhugafólk fjölmennið.
Stjórnin.
5. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR18