Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 12
5. mars 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Formaður Samfylkingarinnar – Jafnaðar- mannaflokks Íslands sætir árásum frá fólki sem segir hann hafa eyðilagt stjórnarskrár- málið. Komið í veg fyrir að ný heildstæð stjórnarskrá verði samþykkt fyrir kosn- ingar. Það er mikill misskilningur. Það er ekki á valdi Árna Páls. Stjórnarandstöðunni er í lófa lagið að drepa málið með málþófi þessa sjö þingfundadaga sem eftir eru og jafnvel þótt þingið yrði framlengt. Að ekki sé minnst á þá staðreynd að margir tugir mála frá ríkisstjórninni bíða afgreiðslu inni í þinginu. Málið er því miður fallið á tíma, þrátt fyrir besta ásetning þeirra sem fara fyrir því á Alþingi, einlægan vilja og harð- fylgni þeirra Valgerðar Bjarnadóttur, Álf- heiðar Ingadóttur og Lúðvíks Geirssonar, sem ber að þakka. Árni Páll er að höggva á hnút sem mér var löngu ljóst að yrði að gera. Meiri umræðu þörf Auk þess má benda á, að tillögur Stjórn- lagaráðs, nú stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis, sem eru um margt merki- legar og framfarasinnaðar, þarf einfaldlega að ræða betur. Hugsa þær til enda með okkar færasta fólki og ná sem víðtækastri sátt. Mikið er af nýmælum, jafnvel án for- dæma sem eðlilegt er að lengri og almenn- ari umræða verði um. Fyrir þessu talaði ég ítrekað í stjórn og þingflokki Samfylkingar- innar og hvatti til þess sama og Árni Páll leggur nú til. Stjórnarskráin er ekki eins og hvert annað ríkisstjórnarmeirihlutamál. Stjórnar skráin er sáttmáli sem við sem þjóð gerum hvert við annað. Þann sáttmála á ekki að keyra í gegnum Alþingi með tæp- asta meirihluta og án góðs tíma til umræðu og umhugsunar. Það þarf hugrekki til að taka af skarið í svona stórum og umdeildum málum. Hug- rekki til að horfast í augu við að tíminn er einfaldlega ekki nægur og sáttin ekki nógu víðtæk. Kjósendur Samfylkingarinnar og um helmingur þjóðarinnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun, vilja breyta stjórnar- skránni fyrir kosningar. En kjósendur hljóta líka að vilja að við vöndum okkur og freistum þess að ná í þessu grundvallarmáli sem víðtækastri sátt. Náist sú sátt ekki eru hvort sem er nær engar líkur á að málið verði samþykkt á næsta Alþingi eins og Stjórnarskráin áskilur. Raunsæi Árna Páls STJÓRNARSKRÁ Margrét S. Björnsdóttir félagi í Samfylk- ingunni ➜ Náist sú sátt ekki eru hvort sem er nær engar líkur á að málið verði samþykkt á næsta Alþingi eins og Stjórnarskráin áskilur. 15. MARS OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR Í BAKKALÁR- OG MEISTARANÁM TIL U mmæli Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylk- ingarinnar, um að stjórnarskrármálið verði ekki klárað í heild á þeim skamma tíma sem eftir er af núverandi þingi bera vott um raunsæi. Árni hefur vikið frá þeirri stefnu sem forveri hans Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafði; að keyra málið í gegn hvað sem það kostaði. Það er tímabært að horfast í augu við þann raunveruleika að það markmið endurskoðunar stjórnarskrárinnar að skýra stjórnskipunina og laga ákvæði stjórnarskrár að raunveruleik- anum hefur ekki náðst. Þrátt fyrir að tekið hafi verið tillit til ýmissa athugasemda við óskýr- leika stjórnarskrárfrumvarpsins og skort á „álagsprófunum“ ákvæða þess er enn óvissa um hvað hin nýja stjórnskipan sem þar er lögð til þýðir í raun. Sömuleiðis liggur fyrir að grundvallarlög landsins á hvorki að afgreiða í stórfelldum ágreiningi né í einum spretti rétt fyrir þinglok. Leggi ríkisstjórnin alla áherzlu á að ná málinu í gegn áður en þinginu lýkur verða mörg önnur mikilvæg mál útundan. Það blasir við að gefa málinu meiri tíma. Fáir sem nú saka formann Samfylkingarinnar um svik við málstað þeirra sem vilja nýja stjórnarskrá virðast átta sig á að hin gamla stefna forsætisráðherrans er vísasta leiðin til að ganga endanlega af stjórnarskrármálinu dauðu. Yrði breytt stjórnarskrá keyrð í gegn á síðustu dögum þingsins, í bullandi ágreiningi, væru yfirgnæfandi líkur á að næsta Alþingi hafnaði málinu í heild sinni eftir kosningar. Núverandi stjórnarskrá kveður á um að tvö þing verði að samþykkja stjórnarskrár- breytingar og á næsta þingi færi þá ekki fram nein efnisleg umræða, heldur yrði svar þingsins aðeins já eða nei. Sú leið sem Árni Páll leggur til og stjórnarandstöðu- flokkarnir hafa raunar um nokkurt skeið lýst sig reiðubúna að fara, að semja um afmarkaða þætti málsins, er þannig væn- legust til að gera einhverjar breytingar á stjórnarskránni. Formaður Samfylkingarinnar nefndi sérstaklega ákvæði um þjóðareign á auðlindum og um þjóðaratkvæðagreiðslur, sem allir ættu að geta náð saman um. Við það má bæta ákvæði um framsal ríkisvalds til alþjóðastofnana, sem er orðið brýnt að setja í stjórnarskrá, enda hafa verið færð að því gild rök að margvíslegt alþjóðasamstarf sem Ísland tekur þátt í standist ekki núverandi ákvæði stjórnarskrár. Loks virðist fylgi við það í öllum flokkum að breyta ákvæðum um það hvernig eigi að breyta stjórnarskránni, þannig að það megi gera með auknum meirihluta, jafnt á þingi og í þjóðaratkvæðagreiðslu. Slík breyting væri forsenda þess að hægt væri að breyta stjórnar- skránni frekar á næsta kjörtímabili. Það er kominn tími til að fleiri stjórnmálamenn viðurkenni hvernig í raun er í pottinn búið og hefji leitina að sátta- grundvelli í þessu stóra máli. Versti kosturinn er að ætla að keyra núverandi frumvarp áfram í gegnum þingið. Árni Páll horfist í augu við veruleikann: Leitin að sátt í stjórnarskrármáli Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Oddvitakrísa Sjálfstæðismenn í borgarstjórn standa nú frammi fyrir því að þurfa að velja sér nýjan oddvita– úr því að Hanna Birna Kristjánsdóttir er á leiðinni á þing. Við fyrstu sýn virðist eðlilegast að oddvitahlutverkið falli í skaut þeim sem skipaði annað sætið á lista flokksins í síðustu kosningum. Sá maður heitir Júlíus Vífill Ingvarsson. Hermt er að það sé hins vegar alls ekki ljóst hvernig fer í þetta sinnið, enda standi vilji borgar- fulltrúanna margra til þess að Gísli Marteinn Baldursson verði arftaki Hönnu Birnu, frekar en Júlíus. Oft gert áður Það yrði þá ekki í fyrsta sinn sem leitað er neðar á listann eftir oddvita. Davíð Oddsson varð oddviti þegar Birgir Ísleifur Gunnarsson hætti árið 1980 þótt hann hafi verið í fjórða sæti og árið 1991 stóð valið lengi vel á milli Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar, 4. sæti, og Árna Sigfússonar, 6. sæti, áður en Markúsi Erni Antonssyni var sjanghæjað í borgarstjórastarfið. Það mætti jafnvel kalla þetta hefð hjá flokknum. Stór orð Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, stjórnlagaráðsmaður og framámaður í Dögun, var gestur í Silfri Egils á sunnudag. Honum var mikið niðri fyrir í umræðunni um stjórnarskrár- frumvarpið og virtist varla geta á heilum sér tekið vegna þess í hversu mikið óefni það mál væri komið. Hann sagði meðal annars að ógilding Hæstaréttar á stjórnlagaþings- kosningunum hefði verið „hluti af spillingunni“. Þetta eru stór orð frá löglærðum manni sem vill láta kjósa sig á þing. Kannski hann ætti að skýra betur hvað hann hefur fyrir sér þegar hann segir svona. Ef það er þá nokkuð. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.