Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 1
KÖNNUN Meirihluti landsmanna,
rúm 56 prósent, er mjög eða frek-
ar andvígur því að áfengiskaupa-
aldur verði lækkaður úr tuttugu
árum í átján, samkvæmt könnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Ein-
ungis rúm 28 prósent segjast mjög
eða frekar hlynnt því að áfengis-
kaupaaldurinn verði lækkaður og
15,5 prósent eru hlutlaus.
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins ályktaði um það að lækka skyldi
áfengiskaupaaldur í átján ár, en
engu að síður er 51 prósent fylgis-
manna flokksins andvígt því sam-
kvæmt könnuninni og ekki nema
rúm 37 prósent hlynnt því.
Fylgisfólk annarra stjórnmála-
flokka er enn ólíklegra til að styðja
hugmyndina. Minnstur mælist
stuðningurinn hjá fylgismönnum
Vinstri grænna en næstminnstur
hjá stuðningsfólki Bjartrar fram-
tíðar. Þeir sem segjast munu kjósa
Framsóknarflokkinn eru næst-
jákvæðastir á eftir stuðnings-
mönnum Sjálfstæðisflokksins. Í
miðið sitja svo fylgismenn Sam-
fylkingarinnar.
Þjóðin klofnar í jafnstóra hópa í
afstöðunni til þess hvort leyfa skuli
sölu áfengis í matvöruverslunum.
45,9 prósent eru því andvíg en 45,2
prósent hlynnt. - bj, sh / sjá síðu 8
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
12
Á Booztbarnum er gríðarlegt úrval alls kyns heilsudrykkja. „Við bjóðum mikið úrval skyr-, soja- og rísmjólkurdrykkja, ávaxta- og grænmetissafa. Í einum drykk er mikiðmagn af ávöxtum og
„Grænir drykkir eru í miklu upp-áhaldi hjá viðskiptavinum okkar. Grænn
detox-safi og grænn ofursafi sem meðal
annars inniheldur nýpre ðli
BAKAÐIR KIRSUBERJATÓMATAR
Kirsuberjatómatar eru afar hollir og þá er hægt að mat-
reiða á ýmsan hátt. Gott er að hægelda þá í ofni við 150 °C
í að minnsta kosti tvær klukkustundir. Setjið tómatana í
eldfasta skál, ásamt pressuðum hvítlauk, smá salti, fersku
timíani og olíu. Ljúffengt meðlæti.
FLOTTIR DRYKKIR Hægt er að velja um margar tegundir af unð l
ÆVINTÝRALEGA GÓÐIRBOOZTBAR KYNNIR Booztbarinn sem er við N1 í Borgartúni 39 heldur upp á
tíu ára afmæli á þessu ári. Mikil áhersla er lögð á gæðahráefni í öllum skyr-
og heilsudrykkjum og stöðugt boðið upp á nýjungar.
12
ÁRAVELGENGNI Á ÍSLANDI
2 fyrir1
LAGERSALA
Ótrúleg tilboð í gangi
Ódýrari flíkin fylgir frítt með
BÍLARÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2013
Tata Motors, eigandi bæði Jagu-ar- og Land Rover fyrirtækisins hugleiðir nú að flytja hluta fram-
leiðslu þessara lúxusbíla til heima-
landsins Indlands. Mikil eftirspurn
eftir bílum merkjanna í Kína og á Ind-
landi hvetur Tata til þessa og að auki
myndi fyrirtækið komast hjá háum
innflutningstollum á lúxusbílum. Á
Indlandi eru nú 75% innflutnings tollar
á erlendum lúxusbílum og til stend-
ur að hækka þá brátt í 100%. Það væri
því gott að geta sneitt hjá slíkum ofur-
tollum fyrir söluna þar. Salan í Kína
og Indlandi var 22,3% af heildarsölu
Jaguar/Land Rover í desember síðast-
liðnum.
Fyrst Jaguar XF
og Land Rover Freelander
Fyrstu bílarnir sem horft er til að fram-
leiða í Indlandi eru Jaguar XF og Land
Rover Freelander og síðan kæmi lík-
lega að Range Rover Evoque. Jagu-
ar/Land Rover ætla einnig að reisa
verksmiðju í Kína í samstarfi við kín-
verska bílaframleiðand Ch
framleiðendunum þýsku, BMW, Benz
og Audi, auk Volkswagen í framleiðslu
bíla í Indlandi, en búist er við því að
markaðurinn fyrir lúxusbíla þar muni
sexfaldast til ársins 2020.
Miklar fjárfestingar
og hætt við neikvæðu fjárstreymi
Framleiðsla Jaguar og Land Rover í
Bretlandi er keyrð í botni til að hafa
við eftirspurninni um allan heim og
viðbótarframleiðsla á Indlandi og
Kína mun líklega ekki verða til þess
að störf tapist þar, svo mikil er eftir-
spurnin um allan heim. Starfsmenn
Jaguar/Land Rover í Bretlandi eru
24.000 talsins. Fyrirtækið er einnig
að íhuga verksmiðju í Sádi-Arabíu, en
framleiðslan í henni á að hefjast árið
2017. Svo miklar eru fjárfestingar Jagu-
ar/Land Rover í nýjum samsetningar-
verksmiðjum að hætt er við neikvæðu
fjárstrey i hjá fyrirtækinu í ár þrátt
fyrir gríðarlega góða sölu og hefur
fyrir tækið tilkynnt um þá líklegu stað-
reynd. Land Rover ætlar að frumsýna
Framleiðsla að hluta til Indlands
Nýr bíll Kia í Genf
Þennan nýja bíl kynnir Kia á
bílasýningunni í Genf í dag.
Ekki er frá því að hann líkist
bæði Mini og Citroën DS3,
enda settur til höfuðs þeim.
Verður 201 hestöfl og með
DSG-skiptingu.
2 SÉRBLÖÐ
Bílar | Fólk
Sími: 512 5000
5. mars 2013
54. tölublað 13. árgangur
Ákærður fyrir landráð
Efri deild tékkneska þingsins hefur
samþykkt að forseti landsins, Vaclav
Klaus, verði ákærður fyrir landráð.
Ástæða ákærunnar er að Klaus veitti
sex þúsund föngum sakaruppgjöf í
byrjun ársins. 6
Tók upp rósakál Arnar Tómasson
gæddi sér á nýuppteknu rósakáli
um helgina. Kálið hafði lifað frá því
síðasta sumar. 2
Styttist í slys Formaður Rafiðn-
aðarsambandsins segir rafkerfið á
Vallarsvæðinu á Miðnesheiði stór-
hættulegt og gagnrýnir seinagang við
framkvæmdir þar. 10
SPORT Knattspyrnukonan Katrín
Jónsdóttir fer á sitt níunda Algarve-
mót frá upphafi. 26
www.vertuáverði.is
www.kaupumgull.is
Græddu á gulli
Upplýsingar og tímapantanir: Sverrir s. 661-7000
Kringlunni 3. hæð mán. þri.
mið. frá kl. 11.00 til 18.00
MENNING Jóhannes Haukur
Jóhannes son leikstýrir nýjum
heimildar þáttum um Ladda. 30
SKOÐUN Erlendir kröfuhafar mega
ekki ráða ferðinni, skrifar Heiðar Már
Guðjónsson. 16
MENNING „Þetta var í annað sinn
sem við héldum hraðstefnumót
og þau virðast ætla að verða mjög
vinsæl,“ segir Gerður Huld Arin-
bjarnardóttir, sem rekur fyrir-
tækið Sam-
bandsmiðlun.
Fyrirtækið
aðstoðar ein-
staklinga í
makaleit og
skipuleggur
uppá komur á
borð við hrað-
stefnumót, hóp-
stefnumót og
fyrirlestra.
Stefnumótin
fara fram á þann hátt að pörin fá
fimm mínútur til þess að kynn-
ast áður en bjöllu er hringt og
hefst þá næsta stefnumót. „Fólk
merkir síðan við á blað hvort það
hafi áhuga á að hitta einstakling-
inn aftur og skilar blöðunum svo
til okkar. Ef sömu tveir einstak-
lingar hafa merkt hvor við annan
komum við þeim í samband,“
útskýrir Gerður Huld.
- sm / sjá síðu 30
Hraðstefnumót vinsæl:
Áttatíu reyndu
að komast að
Bolungarvík -8° NA 17
Akureyri -8° NA 10
Egilsstaðir -6° A 8
Kirkjubæjarkl. -6° NA 13
Reykjavík -6° NA 14
VONSKUVEÐUR Í dag verða víða
norðaustan 10-23 m/s, hvassast NV- og
V-lands. Snjókoma víða norðan til en
úrkomulítið syðra. Frost 0-10 stig. 4
BLÓÐGJÖF Átakinu Brettum upp ermar– gefum blóð var ýtt úr vör í gær. Það er Blóðbankinn, í samstarfi við Samtök
atvinnulífsins, sem stendur fyrir átakinu. Samstarfinu er ætlað að fjölga blóðgjöfum sem koma reglubundið í Blóðbankann.
Bankinn þarf að fá um 2.000 nýja blóðgjafa á ári til að viðhalda blóðgjafahópnum, sem er um 9.000 manns sem gefa blóð um
14.000 sinnum á ári. Við upphaf átaksins kom Blóðbankabíllinn í gær að höfuðstöðvum Marels, þar sem starfsmenn gáfu blóð í
tilefni dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
56,3%
eru andvíg því að
lækka áfengis-
kaupaaldur.
28,2%
eru hlynnt því að
lækka áfengis-
kaupaaldur.
Minnihluti vill að 18
ára geti keypt áfengi
Meirihluti landsmanna er á móti því að áfengiskaupaaldur verði lækkaður í 18 ár.
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru ósammála landsfundarályktun flokksins.
STJÓRNMÁL Þingflokkur Hreyfingarinnar mun að
óbreyttu leggja fram vantrauststillögu á hendur
ríkis stjórninni á miðvikudag.
Ástæðan er stjórnarskrármálið, sem Árni Páll
Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði um
helgina að væri útilokað að klára í núverandi mynd
fyrir þinglok. Hann hefur talað fyrir því að valdir
þættir frumvarpsins, til dæmis um auðlindamál og
þjóðaratkvæðagreiðslur, verði klofnir út og kláraðir
fyrir þinglok. Öðru verði frestað til næsta þings.
„Málið er tilbúið í heild sinni, algerlega klárað og
til sem heildstætt plagg. Allt annað er bara undan-
sláttur og bara della að láta sér detta það í hug að
búta málið niður. Það er algjör óþarfi,“ sagði Þór
Saari, Hreyfingunni, í fréttum Stöðvar 2 í gær.
Forystumenn stjórnmálaflokkanna munu funda
um málið í dag og freista þess að ná lendingu. Þór
hefur sagt að verði niðurstaðan sú að fresta ein-
hverjum hlutum frumvarpsins verði vantrausts-
tillaga lögð fram á miðvikudag. Hann lagði slíka til-
lögu fram 22. febrúar en dró hana til baka, meðal
annars vegna formgalla. - sh / sjá síðu 4
Hreyfingin leggur fram vantraust á ríkisstjórnina ef stjórnarskrármál frestast:
Önnur vantrauststillaga á leiðinni
VIÐSKIPTI Fleiri konur fylla nú
hóp ríkustu einstaklinga heims
en nokkru sinni fyrr. Af þeim
1.426 einstaklingum sem er að
finna á lista Forbes-tímaritsins
eru 138 konur, en þær voru 104 í
fyrra sem var met. Ríkasta kona
heims er Liliane Bettencourt,
hinn aldni erfingi að 30 prósenta
hlut í snyrtivörurisanum L‘Oreal.
Hún er í níunda sæti listans, en
eignir hennar eru metnar á 30
milljarða Bandaríkjadala.
Eins og síðustu fjögur skipti er
Mexíkóinn Carlos Slim, eigandi
fjarskiptafyrirtækisins America
Movil, í efsta sæti listans, en
eignir hans eru metnar á 73
milljarða dala. Bill Gates, stofn-
andi tölvurisans Microsoft, er í
öðru sæti með eignir metnar á 67
milljarða dala. - shá
138 konur af 1.426 ríkustu:
Konum fjölgar í
hópi þeirra ríku
GERÐUR HULD
ARINBJARNAR-
DÓTTIR