Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 22
Bílar ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 20134 Stofnfundur samtaka áhuga-manna um ferðalög og búnað fjórhjóladrifs bifreiða var haldinn 10. mars 1983, fyrir rétt um 30 árum. Upphafið má rekja til þess að áhugi hafði kvikn- að í sameiginlegum ferðum jeppa- manna um stofnun einhvers konar félagsskapar á þessu sviði. Heitið Ferðaklúbburinn 4x4 varð fyrir valinu á félagsskap þennan strax á fyrsta fundi. Fljótlega eftir stofn- un félagsins varð ljóst að brýnt mál yrði að reyna að ná fram rétti jeppamanna til að aka um á jepp- um sem breytt hefði verið til auk- ins notagildis til ferðalaga utan hins hefðbundna vega kerf is. Reynslan hafði sýnt að stærri hjólbarðar hentuðu mun betur til aksturs í snjó og víða utan alfara- vega. Í maímánuði 1984 var stofn- uð nefnd innan Ferðaklúbbsins sem sjá skyldi um viðræður við Bifreiðaeftirlit ríkisins. Samin var fyrsta reglugerðin á þessu sviði, sem nefnd var „hugmynd að lausn dekkjamálsins“. Eftir það hafa miklar breytingar orðið á reglum varðandi breytingar á bílum, klúbbnum til hagsbóta. Samstarf við náttúruverndarsamtök Nokkuð ljóst er að ef samtaka- máttur félags eins og Ferðaklúbbs- ins 4x4 hefði ekki notið við væri jeppamenning Íslendinga öðru- vísi en hún er í dag. Strax á fyrstu árum Ferðaklúbbsins 4x4 spruttu upp miklar umræður um náttúru- verndarmál. Misjafnlega var tekið undir skoðanir klúbbsins í Nátt- úruverndarráði og víðar í upp- hafi, en á síðari árum hefur tekist mjög góð samvinna meðal hans og hinna ýmsu náttúruverndar- samtaka og hafa félagar klúbbs- ins farið margar ferðir þeim til að stoðar, t.d. landgræðsluferðir í Þórsmörk og ýmsar uppgræðslu- ferðir. Skáli byggður Snemma á árinu 1985 var byrjað að ræða hugsanlega skála byggingu á vegum Ferðaklúbbsins 4x4. Nokkr- ir staðir voru skoðaðir og reynt að semja við viðkomandi yfirvöld, en að lokum tókust samningar við landeigendur svæðis fyrir sunnan Hofsjökul sem kallast Kisubotnar og reisti Ferðaklúbburinn 4x4 þar gríðarlega myndarlegan fjalla- skála sem hlaut nafnið „Setrið“. Síðar hafa deildir Ferðaklúbbsins gert afnotasamninga um nokkra gangnamannaskála á hálendinu til notkunar að vetrarlagi. Fjöldi jeppasýninga og ferða Ferðaklúbburinn 4x4 hefur hald- ið margar jeppasýningar gegnum árin. Fyrsta sýningin var haldin í porti Austurbæjarskólans árið 1985. Næstu þrjár sýningar voru haldnar í Reiðhöllinni í Víðidal, árin 1987, 1989 og 1991. Síðar var haldið með sýningarnar í Laugar- dalshöllina og voru þær þar árin 1993, 1995, 1998 og sú síðasta árið 2001. Eftir það voru sýningarnar fluttar í Fífuna í Kópavogi. Hafa þær aukið hróður Ferðaklúbbsins til muna og þótt hin besta skemmt- un. Nokkrar stórar hópferðir hafa verið farnar á vegum félagsins. Sú fyrsta, árið 1987 sem nefnd var 100 bíla ferðin. Skyldi ekið norð- ur Sprengisand, en ferðin mis- tókst. Síðar var farin samvinnuferð með Bílabúð Benna sem kölluð var Jeppadagur fjölskyldunnar. Milli 800 og 1.000 bílar tóku þátt og var ekið til Nesjavalla. Önnur 100 bíla ferð var farin árið 1997 og var þá lokið við ferðina yfir Sprengisand. Aldamótaferðin svokallaða var árið 2000. Þá var ekið yfir há lendið austur á land. Efnt hefur verið til fleiri ferða af ýmsum toga. Þrjú þúsund félagar Starfsemi Ferðaklúbbsins 4x4 hefur verið mjög öflug frá upp- hafi. Haldnir eru félagsfundir fyrsta mánudag hvers mánaðar allan vetur inn, oftast á Hótel Loft- leiðum. Einnig er opið hús í að- setri félagsins að Eirhöfða 11 öll fimmtudagskvöld. Nokkrar lands- byggðardeildir hafa verið stofn- aðar í félaginu. Nú eru starfandi Vesturlandsdeild, Vestfjarðadeild, Húnvetningadeild, Skagafjarðar- deild, Eyjafjarðardeild, Húsavíkur- deild, Austurlandsdeild, Horna- fjarðardeild, Suðurlandsdeild og Suðurnesjadeild. Félagsstarfið er fjölbreytt. Starfandi er umhverf- isnefnd, tækninefnd, skálanefnd, ritnefnd, vefnefnd, internet- nefnd, hjálparsveit og fjarskipta- nefnd ásamt fleiri nefndum sem sinna hinum ýmsu verkefnum fyrir klúbbinn. Félögum í Ferða- klúbbnum 4x4 hefur fjölgað ört á síðustu árum. Virkir félagar eru nú ríflega þrjú þúsund víðs vegar um landið. Þeir sem áhuga hafa á að kynnast starfsemi klúbbsins nánar eru hjartanlega velkomnir á félagsfundi, sem haldnir eru fyrstu mánudaga í mánuði á Hótel Nat- ura (Loftleiðum) klukkan 20.00. Einnig má kynna sér starfsem- ina á heimasíðu klúbbsins, www. f4x4.is. Nú á afmælisárinu verður farin stórferð í mars um Vatnajökul þveran og endilangan og endað á Hornafirði. Árshátíð verður haldin í Turninum í Kópavogi. Bókin Saga Ferðaklúbbsins 4x4 í 30 ár mun koma út í stóru broti með haust- inu og þá verður einnig stórsýn- ing á jeppum í Fífunni. Félagar í ferðaklúbbnum 4x4 aka í vatninu hver af öðrum í Landmannalaugum. Seint á síðasta ári hófst sala á sjöundu kynslóð Volkswagen Golf. Það kemur því ekki mikið á óvart að skammt hafi verið að bíða langbaksgerðar Golf, eða Golf Variant, en hann verður frumsýndur á bílasýningunni í Genf í dag. Engu að síður hafa myndir af honum ratað á vefinn. Fátt kemur reyndar á óvart hvað ytra útlit hans áhrærir, framendinn er alveg eins og styttri gerðin en aftari hlutinn eðlilega öðruvísi. Búist er við að farangursrými bílsins aukist frá fyrri gerð, sem var 505 lítrar og 1.495 lítrar ef aftursætin eru lögð niður. Heyrst hefur að rýmið aukist um allt að 120 lítra og munar um minna. Fjórhjóladrif og Hybrid Þakbogar verða á öllum útfærslum bílsins. Af öðrum njósnamyndum að dæma verður hann með LED-ljós að aftan og ólíka ljósaumgjörð en stallbakurinn. Vélaúrvalið verður líklega það sama. Líklegt er að langbakurinn verði í boði fjórhjóladrif- inn, en góðar móttökur VW Passat Alltrack-bílsins hefur ýtt undir þá spá. Búist er við að tvinnbílsút- færsla (hybrid) hans verði einnig í boði. Nýi bíllinn verður af árgerð 2014 en ekki er ljóst hvenær sala á honum hefst. GOLF LANGBAKUR Ferðaklúbburinn 4x4 30 ára HEMLAHLUTIR Í JEPPA Vagnhöfði 7 – sími 517 5000

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.