Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 28
5. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
101 hlutur
sem þú ættir
að gera áður
en þú verður
LÁRÉTT
2. margskonar, 6. ógrynni, 8. pfn.,
9. hlemmur, 11. skóli, 12. hroki, 14.
drabb, 16. drykkur, 17. eru, 18. maka,
20. skst., 21. blað.
LÓÐRÉTT
1. líkami, 3. sjúkdómur, 4. fax, 5. kvk
nafn, 7. formann, 10. frostskemmd,
13. skraf, 15. urgur, 16. skrá, 19. tví-
hljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ýmsu, 6. of, 8. sín, 9. lok,
11. ma, 12. dramb, 14. slark, 16. te,
17. séu, 18. ata, 20. fr, 21. lauf.
LÓÐRÉTT: 1. hold, 3. ms, 4. símbréf,
5. una, 7. forseta, 10. kal, 13. mas, 15.
kurr, 16. tal, 19. au.
Elsku amma!
Má ég fá smá
vanilludropa
hjá þér?
Auðvitað
geturðu
það Tóbías!
En þú þarft
að finna þá
sjálfur því ég
sé svo illa!
Eigðu góðan
dag frú!
G-
strengs
Gulli
5. Leggðu sígilt ljóð á minnið.
Ég þekkti
einu sinni
fatlafól...
Þeir sáu þetta
í teiknimynd
og langaði að
prófa.
Ég má gera fyrst af
því að ég átti afmæli
fyrir fjórum dögum!
Ég fæ að velja sjónvarpsstöð
af því að ég átti afmæli fyrir
fimm dögum!
Ég fæ stærri kökusneið af
því að ég átti afmæli fyrir
sex dögum!
Er það bara ég
eða er þetta
orðið dálítið
þreytt?
Hún á afm
æli hún ég
...
hún á afm
æli
í dag...
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
EINVÍGI
RISANNA
Æsispennandi átakaleikur á Old Trafford. Sjáðu
hvor risanna fellur úr leik í leiftrandi háskerpu.
MAN. UTD.
REAL MADRID
Í KVÖLD KL. 19:30
Af hverju sitja Hans og Gréta uppi á þaki? Þau eru að bíða þess að mamma
og pabbi komi upp um skorsteininn. Þessi
brandari, og aðrir af sama toga, voru vin-
sælir í útrýmingarbúðum nasista í síðari
heimsstyrjöldinni. Mitt í hörmungunum
léttu gyðingar sér sitt ömurlega líf með
gríni. Kannski er það þannig að þegar
aðstæður eru jafn skelfilegar og raun bar
vitni þar er ekkert eftir nema húmorinn.
MIKIÐ hefur verið rætt og ritað um grín
síðustu daga. Maður í Hollywood hneyksl-
aði fólk um heimsbyggð alla með bröndur-
um sem hann, og annað fólk í Hollywood,
samdi um enn annað fólk í Hollywood.
Deilt hefur verið um hvort hann hafi
mátt segja umrædda brandara, hvort
þeir hafi verið þrungnir kvenfyrirlitn-
ingu og fleiri fyrirlitlegum kenndum,
eða hvort undir niðri hafi legið ádeila á
þær kenndir.
VIÐ erum ansi dugleg að segja öðru
fólki hvað það eigi að segja. Það má ekki
segja facerape, ekki grínast með alvar-
lega hluti sem gætu styggt annað fólk
eða vakið upp minningar af slæmri
reynslu. „Ég þarfnast femínista
af því að… nauðgun þykir enn þá
gaman mál“ segir á límmiða sem
dreift er nú um mundir. En er það
svo? Þykir nauðgun gamanmál, þó
svo einhverjir segi enn brandara
þar sem nauðgun kemur fyrir?
Þykir þeim sem segja brandara þar sem
barnaníð kemur fyrir – og þeir eru fleiri en
þið haldið – barnaníð vera gamanmál?
NÚ er ég ekki að líkja reynslu þeirra sem
segja nauðgunarbrandara við fórnarlömb í
útrýmingarbúðum. Grín er hins vegar oft og
tíðum lausn við hryllilegum aðstæðum. Svo
eru þeir sem telja að það megi einfaldlega
hlæja að öllu – og meina ekkert illt með því.
Á dögunum var haldið unglingaball. Fyrir
það fengu krakkarnir langan lista um hverju
mætti ekki klæðast. Pils skyldu vera svona
og svona síð og skyrtur ekki of flegnar. Með
því á að berjast gegn klámvæðingunni. En
er það leiðin? Boð og bönn? Er það ekki hluti
af því að þroskast sem manneskja að fá að
máta sig í klæðaburði? Og ef við bönnum
ákveðna sídd af pilsum, er þá búið að opna
dyrnar fyrir frekari boðum og bönnum? Ein-
hver hefði talið að skynsamlegri leið væri
í gegnum uppeldi og fræðslu foreldra, en
síðan væri það einstaklinganna að finna sig.
AF hverju er ég að tengja þetta tvennt
saman? Æ, ég veit það ekki. Kannski af
því að ég svaf lítið í nótt, en kannski af því
að mér finnst eins og við séum orðin ansi
gjörn á að segja öðru fólki hvernig það á
að hegða sér. Rangt orð þýðir röng hugsun,
sem þýðir úthrópun.
EN hvað veit ég? Ekki neitt, enda veit ég
ekki betur en aðrir.
Af því við vitum best