Fréttablaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 22
Bílar ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 20134
Stofnfundur samtaka áhuga-manna um ferðalög og búnað fjórhjóladrifs bifreiða
var haldinn 10. mars 1983, fyrir
rétt um 30 árum. Upphafið má
rekja til þess að áhugi hafði kvikn-
að í sameiginlegum ferðum jeppa-
manna um stofnun einhvers konar
félagsskapar á þessu sviði. Heitið
Ferðaklúbburinn 4x4 varð fyrir
valinu á félagsskap þennan strax
á fyrsta fundi. Fljótlega eftir stofn-
un félagsins varð ljóst að brýnt
mál yrði að reyna að ná fram rétti
jeppamanna til að aka um á jepp-
um sem breytt hefði verið til auk-
ins notagildis til ferðalaga utan
hins hefðbundna vega kerf is.
Reynslan hafði sýnt að stærri
hjólbarðar hentuðu mun betur til
aksturs í snjó og víða utan alfara-
vega. Í maímánuði 1984 var stofn-
uð nefnd innan Ferðaklúbbsins
sem sjá skyldi um viðræður við
Bifreiðaeftirlit ríkisins. Samin var
fyrsta reglugerðin á þessu sviði,
sem nefnd var „hugmynd að lausn
dekkjamálsins“. Eftir það hafa
miklar breytingar orðið á reglum
varðandi breytingar á bílum,
klúbbnum til hagsbóta.
Samstarf við
náttúruverndarsamtök
Nokkuð ljóst er að ef samtaka-
máttur félags eins og Ferðaklúbbs-
ins 4x4 hefði ekki notið við væri
jeppamenning Íslendinga öðru-
vísi en hún er í dag. Strax á fyrstu
árum Ferðaklúbbsins 4x4 spruttu
upp miklar umræður um náttúru-
verndarmál. Misjafnlega var tekið
undir skoðanir klúbbsins í Nátt-
úruverndarráði og víðar í upp-
hafi, en á síðari árum hefur tekist
mjög góð samvinna meðal hans
og hinna ýmsu náttúruverndar-
samtaka og hafa félagar klúbbs-
ins farið margar ferðir þeim til
að stoðar, t.d. landgræðsluferðir í
Þórsmörk og ýmsar uppgræðslu-
ferðir.
Skáli byggður
Snemma á árinu 1985 var byrjað að
ræða hugsanlega skála byggingu á
vegum Ferðaklúbbsins 4x4. Nokkr-
ir staðir voru skoðaðir og reynt að
semja við viðkomandi yfirvöld, en
að lokum tókust samningar við
landeigendur svæðis fyrir sunnan
Hofsjökul sem kallast Kisubotnar
og reisti Ferðaklúbburinn 4x4 þar
gríðarlega myndarlegan fjalla-
skála sem hlaut nafnið „Setrið“.
Síðar hafa deildir Ferðaklúbbsins
gert afnotasamninga um nokkra
gangnamannaskála á hálendinu
til notkunar að vetrarlagi.
Fjöldi jeppasýninga og ferða
Ferðaklúbburinn 4x4 hefur hald-
ið margar jeppasýningar gegnum
árin. Fyrsta sýningin var haldin
í porti Austurbæjarskólans árið
1985. Næstu þrjár sýningar voru
haldnar í Reiðhöllinni í Víðidal,
árin 1987, 1989 og 1991. Síðar var
haldið með sýningarnar í Laugar-
dalshöllina og voru þær þar árin
1993, 1995, 1998 og sú síðasta árið
2001. Eftir það voru sýningarnar
fluttar í Fífuna í Kópavogi. Hafa
þær aukið hróður Ferðaklúbbsins
til muna og þótt hin besta skemmt-
un. Nokkrar stórar hópferðir hafa
verið farnar á vegum félagsins. Sú
fyrsta, árið 1987 sem nefnd var
100 bíla ferðin. Skyldi ekið norð-
ur Sprengisand, en ferðin mis-
tókst. Síðar var farin samvinnuferð
með Bílabúð Benna sem kölluð var
Jeppadagur fjölskyldunnar. Milli
800 og 1.000 bílar tóku þátt og var
ekið til Nesjavalla. Önnur 100 bíla
ferð var farin árið 1997 og var þá
lokið við ferðina yfir Sprengisand.
Aldamótaferðin svokallaða var
árið 2000. Þá var ekið yfir há lendið
austur á land. Efnt hefur verið til
fleiri ferða af ýmsum toga.
Þrjú þúsund félagar
Starfsemi Ferðaklúbbsins 4x4
hefur verið mjög öflug frá upp-
hafi. Haldnir eru félagsfundir
fyrsta mánudag hvers mánaðar
allan vetur inn, oftast á Hótel Loft-
leiðum. Einnig er opið hús í að-
setri félagsins að Eirhöfða 11 öll
fimmtudagskvöld. Nokkrar lands-
byggðardeildir hafa verið stofn-
aðar í félaginu. Nú eru starfandi
Vesturlandsdeild, Vestfjarðadeild,
Húnvetningadeild, Skagafjarðar-
deild, Eyjafjarðardeild, Húsavíkur-
deild, Austurlandsdeild, Horna-
fjarðardeild, Suðurlandsdeild og
Suðurnesjadeild. Félagsstarfið er
fjölbreytt. Starfandi er umhverf-
isnefnd, tækninefnd, skálanefnd,
ritnefnd, vefnefnd, internet-
nefnd, hjálparsveit og fjarskipta-
nefnd ásamt fleiri nefndum sem
sinna hinum ýmsu verkefnum
fyrir klúbbinn. Félögum í Ferða-
klúbbnum 4x4 hefur fjölgað ört á
síðustu árum. Virkir félagar eru
nú ríflega þrjú þúsund víðs vegar
um landið. Þeir sem áhuga hafa
á að kynnast starfsemi klúbbsins
nánar eru hjartanlega velkomnir á
félagsfundi, sem haldnir eru fyrstu
mánudaga í mánuði á Hótel Nat-
ura (Loftleiðum) klukkan 20.00.
Einnig má kynna sér starfsem-
ina á heimasíðu klúbbsins, www.
f4x4.is. Nú á afmælisárinu verður
farin stórferð í mars um Vatnajökul
þveran og endilangan og endað á
Hornafirði. Árshátíð verður haldin
í Turninum í Kópavogi. Bókin Saga
Ferðaklúbbsins 4x4 í 30 ár mun
koma út í stóru broti með haust-
inu og þá verður einnig stórsýn-
ing á jeppum í Fífunni.
Félagar í ferðaklúbbnum 4x4 aka í vatninu hver af öðrum í Landmannalaugum.
Seint á síðasta ári hófst sala á sjöundu kynslóð
Volkswagen Golf. Það kemur því ekki mikið á óvart
að skammt hafi verið að bíða langbaksgerðar Golf,
eða Golf Variant, en hann verður frumsýndur á
bílasýningunni í Genf í dag. Engu að síður hafa
myndir af honum ratað á vefinn. Fátt kemur reyndar
á óvart hvað ytra útlit hans áhrærir, framendinn er
alveg eins og styttri gerðin en aftari hlutinn eðlilega
öðruvísi. Búist er við að farangursrými bílsins aukist
frá fyrri gerð, sem var 505 lítrar og 1.495 lítrar ef
aftursætin eru lögð niður. Heyrst hefur að rýmið
aukist um allt að 120 lítra og munar um minna.
Fjórhjóladrif og Hybrid
Þakbogar verða á öllum útfærslum bílsins. Af
öðrum njósnamyndum að dæma verður hann
með LED-ljós að aftan og ólíka ljósaumgjörð en
stallbakurinn. Vélaúrvalið verður líklega það sama.
Líklegt er að langbakurinn verði í boði fjórhjóladrif-
inn, en góðar móttökur VW Passat Alltrack-bílsins
hefur ýtt undir þá spá. Búist er við að tvinnbílsút-
færsla (hybrid) hans verði einnig í boði. Nýi bíllinn
verður af árgerð 2014 en ekki er ljóst hvenær sala á
honum hefst.
GOLF LANGBAKUR
Ferðaklúbburinn 4x4 30 ára
HEMLAHLUTIR Í JEPPA
Vagnhöfði 7 – sími 517 5000