Fréttablaðið - 11.03.2013, Page 1
FRÉTTIR
ELDUNARTÆKIMÁNUDAGUR 11. MARS 2013 KynningarblaðEldavélar, ofnar, viftur, háfar, kæliskápar, helluborð og innréttingar
FASTEIGNIR.IS
11. MARS 2013
10. TBL.
Glæsileg íbúð er til sölu í þessu húsi í Sjálandi í Garðabæ
Fasteignasalan Torg kynnir:
Sérlega glæsileg íbúð
á efstu hæð í vönduðu
fjölbýlishúsi ásamt tveimur
stæðum í bílageymslu í
Sjálandi, Garðabæ. Óhindrað
sjávarútsýni.
Í búðin er björt og vönduð, 140,9 fm. Mikil lofthæð og stórir gluggar.
Innréttingar eru hannaðar af
Guðrúnu Margréti og sérsmíðaðar
af Brúnás. Þær eru samræmdar í
allri íbúði i h í
Glæsiíbúð í Sjálandi
Viltu selja?
Vegna mikillar sölu vantar mig 2ja
og 3ja herbergja íbúðir í hverfum
101 og 105 Reykjavík.
Ákveðnir kaupendur
bíða eftir réttu
eigninni.
Talaðu endilega
við Auði í síma
824-7772 eða
audur@fasteigna-
salan.is
Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Stefán Már
Stefánsson
sölufulltrúi
Ásdís Írena
Sigurðardóttir
skjalagerð
Ruth
Einarsdóttir
sölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali
Gústaf Adolf
Björnsson
lögg. fasteignasali
Finndu okkur á Facebook
Erla Dröfn
Magnúsdóttir
lögfræðingur
GULT FYRIR
MARS
Páskarnir ver
ða í lok mána
ðarins svo þa
ð er orðið tím
a-
bært að byrja
á páskaföndr
inu. Að minns
ta kosti hjá þe
im
sem eru vel s
kipulagðir. Gu
lur er litur pá
skanna þótt a
ðrir
pastellitir séu
vel gjaldgeng
ir. Þessir litir
eru tískulitir
vorsins svo þ
að fer ágætle
ga að skreyta
með þeim.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
12
3 SÉRBLÖÐ
Fólk | Fasteignir | Eldunartæki
Sími: 512 5000
11. mars 2013
59. tölublað 13. árgangur
Partíhald í Hjartagarði
Ungmenni hafa undanfarið komið
saman til að skemmta sér í niður-
níddu húsi við Hjartagarðinn. Húsið
þykir hættulegt, gólfin óörugg og
innviðir fúlir. 2
Færri fá berkla Berklatilfellum á
Íslandi hefur fækkað mikið hérlendis
en í Danmörku fjölgar þeim enn eitt
árið. 4
Sjófugl kemur upp um brottkast
Myndir úr myndavélum sem festar
voru á bak sjófugla sýna að fuglarnir
eru háðir átu á brottkasti. 8
Bújarðir og minjar í hættu Vatns-
magn í Lagarfljóti er mun meira en
reiknað var með við byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar. 10
SKOÐUN Raunverulegur blaðamaður
er ekki í öðrum flokki en blaðamanna-
flokknum, segir Guðmundur Andri. 13
MENNING Jón Jónsson fékk á dögunum
gullplötu fyrir Wait for Fate. Hann bíður
nú eftir að heyra frá Sony. 34
SPORT Man. Utd og Chelsea gerðu
jafntefli í stórleik helgarinnar í enska
boltanum. 30 YFIR 50 GERÐIR Á LAGER
FARTÖLVUR
15,6” FARTÖLVUR FRÁ
69.990
15,6“
www.kaupumgull.is
Kringlunni
3. hæð mán. þri.
mið. frá kl. 11.00
til 18.00
Upplýsingar og tímapantanir:
Sverrir s. 661-7000
Bolungarvík 2° S 3
Akureyri 3° SV 3
Egilsstaðir 2° ANA 3
Kirkjubæjarkl. 2° NV 1
Reykjavík 4° SA 2
Hægviðri Í dag eru horfur á hægri
breytilegri átt um allt land. Víða
léttskýjað en bjart með köflum norðan-
og austanlands. Hiti breytist lítið. 4
UTANRÍKISMÁL „Við erum öll í
algeru sjokki,“ segir Þóra Björg
Birgisdóttir, unnusta íslensks
manns sem var handtekinn í
Tyrklandi sakaður um forn muna-
smygl.
Davíð Örn Bjarnason, 28 ára
Íslendingur búsettur í Svíþjóð,
situr nú í gæsluvarðhaldi í tyrk-
nesku fangelsi. Þóra hefur ekki
fengið að ræða við hann frá því
þau skildust að á flugvellinum í
Antalya í Tyrklandi á föstudag.
„Það eina sem ég fékk að gera
var að kyssa hann bless og labba
grátandi út á meðan lögreglu-
mennirnir héldu honum niðri,“
segir Þóra.
Þau höfðu keypt 20 sentímetra
útskorinn marmarastein á ferða-
mannamarkaði við rómverskar
rústir á ferð sinni um Tyrkland.
Tollverðir fundu steininn og
sögðu þeim að ólöglegt væri að
flytja slíkar fornminjar úr landi.
Tyrkneskir lögreglumenn
ákváðu að leyfa Þóru að fara heim
til þriggja barna þeirra í Svíþjóð
en Davíð varð eftir. Þóra segir fjöl-
skylduna alla í áfalli.
„Yngsti strákurinn er á útopnu,
grátandi og öskrandi, og skilur
ekki af hverju hann fær ekki að
hringja í pabba sinn, af hverju
pabbi kemur ekki heim og spyr
hvenær hann komi,“ segir Þóra.
Foreldrar Davíðs komu heim
með yngri börnin tvö í gær og
Þóra og elsta dóttirin eru væntan-
legar heim frá Svíþjóð á næstunni.
„Þetta er lifandi helvíti á jörðu,“
segir Ingibjörg Hafsteinsdóttir,
móðir Davíðs, spurð um eigin líðan
og óvissuna vegna sonar síns.
Hún fékk að ræða við hann í
síma en símtalinu var slitið eftir
20 sekúndur. Á þeim tíma náði
hún að segja honum að utanríkis-
ráðuneytið væri að vinna í málinu.
Hann sagði henni að hann hefði
sætt barsmíðum í fangelsinu, og
að hann gæti ekki gert sig skiljan-
legan þar.
- bj / sjá síðu 6
Sólarferð til Tyrklands
varð að fjölskylduharmleik
Íslensk fjölskylda er í áfalli eftir að fjölskyldufaðirinn var handtekinn fyrir fornminjasmygl í Tyrklandi. Konan
kyssti manninn bless og fór grátandi um borð í flugvélina. Líðanin er „lifandi helvíti á jörð“, segir móðir hans.
FJÖLSKYLDAN Þóra er á leið til Íslands.
ALÞINGI Stjórnarliðar munu tryggja
það að formannafrumvarp um
stjórnarskrá komi til atkvæða á
Alþingi fyrir þinglok á föstudag,
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins. Náist ekki að semja um málið
verður lögð fram tillaga um stöðva
umræðu og greiða atkvæði. Það
yrði gert síðasta dag þingsins, eða
á föstudag.
Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, Katrín Jakobs-
dóttir, formaður Vinstri grænna,
og Guðmundur Steingrímsson, for-
maður Bjartrar framtíðar, lögðu
á dögunum fram frumvarp um
stjórnar skrá. Samkvæmt því þurfa
þrír fimmtu þingmanna að sam-
þykkja breytingar á stjórnarskrá
sem verður síðan lögð í þjóðarat-
kvæði. Í dag þarf samþykki tveggja
þinga og kosningar á milli.
Illugi Gunnarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
segist aldrei munu styðja það að
breytingar á stjórnarskránni verði
gerðar auðveldari.
Vigdís Hauksdóttir, þing maður
Framsóknarflokksins, er ósátt við
þessar hugmyndir. „Verði þeim
að góðu með það. Þá verður þetta
stöðvað í síðasta lagi á næsta þingi.“
- kóp / sjá síðu 4
Hyggjast tryggja atkvæðagreiðslu um stjórnarskrárfrumvarp formanna:
Þvinga fram atkvæðagreiðslu
Tillaga Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, um vantraust á ríkisstjórn-
ina og þingrof verður tekin til atkvæða í dag. Þingmenn allra flokka sem
Fréttablaðið ræddi við bjuggust við því að stjórnin stæði þá tillögu af sér.
Vantraust í dag
HANDBOLTI Systurnar Hrafn-
hildur, Drífa og Dagný Skúla-
dætur urðu bikarmeistarar
með Val í spennandi leik gegn
Fram í Laugardalshöllinni í
gær. Dagný skoraði sex mörk
og Hrafnhildur þrjú. Fjórðu
systurina, Rebekku, vantaði í
liðið en hún þurfti frá að hverfa
í janúar því hún er barnshaf-
andi. Leikurinn fór 25-22.
Bikarmeistaratitillinn í gær
var sá fyrsti sem Drífa vinnur
en hún kom inn í liðið fyrir
Rebekku og tók við treyj-
unni hennar númer fimm. „Við
vorum að gera grín að henni að
hún hlýtur núna að skrifa undir
þriggja ára samning.“
Spurð segist Hrafnhildur
hafa saknað Rebekku í leikn-
um. „Við hefðum þurft að ná
einum leik allar saman en við
náum því bara á næsta ári.“
- fb / sjá síðu 28
Úrslitaleikur bikarsins í gær:
Fjórar systur í
sigurliði Vals
SIGURREIFAR MEÐ BIKARANA Systurnar fjórar í Val í sigurvímu eftir úrslitaleikinn. Frá vinstri: Dagný, Hrafnhildur, Drífa og
Rebekka Skúladætur. Dagný og Drífa eru tvíburasystur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Verði
þeim að
góðu með
það. Þá verður
þetta stöðvað
í síðasta lagi á
næsta þingi.
Vigdís Hauksdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins