Fréttablaðið - 11.03.2013, Síða 6
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
KFC TOWER BORGARI
Tower Borgari á KFC
Sundagörðum á aðeins 399 kr.
(kostar 849 kr). Magnaður borgari
sem tekur þig upp á topp!
í krafti fjöldans
NÝ MYND
399 kr.
849 kr.
Verð
53%
Afsláttur
350 kr.
Afsláttur í kr.
AFMÆLISVIKA
VIÐ ENDURTÖKUM VINSÆLUSTU TILBOÐIN
GILDIR 48 TÍMA
2
ÁRA
PI
PA
R\
TB
W
A
SÍ
A
UTANRÍKISMÁL Íslenskur karlmaður
sem sakaður er um fornmunasmygl
í Tyrklandi gæti þurft að greiða allt
að 24 milljóna króna sekt eða sitja
í fangelsi í að hámarki tíu ár verði
hann fundinn sekur.
Davíð Örn Bjarnason, 28 ára
Íslendingur búsettur í Svíþjóð, var
handtekinn á flugvelli í Antalya á
suðurströnd Tyrklands á föstudag
eftir að tollverðir fundu 20 sentí-
metra útskorinn marmarastein í
farangri hans og kærustu hans.
„Við erum öll í algeru sjokki,
maður er bara alveg dofinn,“ segir
Þóra Björg Birgisdóttir, kærasta
Davíðs. Hún hefur ekki fengið að
tala við Davíð eftir að hann var
fluttur í fangelsi.
Ingibjörg Hafsteinsdóttir, móðir
Davíðs fékk að tala við hann í síma
í um 20 sekúndur. Þar sagði hann
að hann væri barinn í fangelsinu og
enginn skildi hann.
„Þetta er lifandi helvíti á jörðu,“
segir Ingibjörg spurð um eigin
líðan og óvissuna vegna sonar síns.
Þrjú börn Davíðs og Þóru eru
eins og gefur að skilja í miklu
uppnámi. „Yngsti strákurinn er
á útopnu, grátandi og öskrandi,
og skilur ekki af hverju hann fær
ekki að hringja í pabba sinn, af
hverju pabbi kemur ekki heim og
spyr hvenær hann komi,“ segir
Þóra.
Hún var með Davíð á flugvell-
inum þegar hann var hand tekinn.
„Við vorum að fara í gegnum
öryggis eftirlitið á flugvellinum.
Við vorum með eina sameigin-
lega tösku og ég fer á undan með
hana og set á færiband. Þeir gegn-
umlýsa töskuna og vilja svo að við
opnum hana og sýnum þeim stein í
töskunni,“ segir Þóra.
Steininn keyptu þau á ferða-
mannamarkaði við rómverskar
rústir sem þau skoðuðu í ferðinni.
Þau skoðuðu ýmiss konar muni áður
en þau keyptu þennan útskorna
marmarastein á 80 evrur.
„Við sögðum þeim að við hefðum
keypt þennan stein á túristamark-
aði og ef þetta væri eitthvað vanda-
mál mættu þeir alveg taka hann,
en þeir hlustuðu ekki á það,“ segir
Þóra, sem óttast um Davíð í tyrk-
nesku fangelsi.
„Okkur datt ekki til hugar að
þetta mætti ekki, leiðsögumaðurinn
minntist aldrei á það þó að það væri
verið að selja svona steina á þessum
mörkuðum.“
Vegabréfin voru tekin af Þóru og
Davíð og þau flutt á lögreglustöð
á flugvellinum þar sem þeim var
haldið í um klukkustund. þá ákváðu
lögreglumennirnir að Þóra mætti
fara en Davíð yrði eftir.
„Ég spurði hvað væri í gangi
og hvort við mættum ekki fara
heim. Þá fóru þeir að tala saman
á tyrknesku, en svo réttu þeir mér
passann og sögðu mér að ég mætti
fara en ekki hann,“ segir Þóra.
„Það eina sem ég fékk að gera
var að kyssa hann bless og labba
grátandi út á meðan lögreglu-
mennirnir héldu honum niðri.“
Hún hringdi í foreldra Davíðs,
og þeir ráðlögðu henni að koma sér
heim til barnanna, enda lítið sem
hún gæti gert fyrir hann úti.
Davíð fékk lögfræðinga, sem
reiknuðu með að hann þyrfti að
greiða sekt áður en honum yrði
sleppt úr haldi. Það kom þeim á
óvart þegar ákveðið var seinnipart-
inn á föstudag að halda Davíð í fang-
elsi og kæra hann fyrir smygl á forn-
munum. Viðurlög við því eru að sögn
Þóru 8 til 24 milljóna króna sekt eða
fangelsisvist frá þremur upp í tíu ár.
Þóra segir að eins og komið er
vonist þau eftir því að Davíð verði
dæmdur til greiðslu sektar, en
óttast að hann verði að sitja sektina
af sér þar sem þau eigi ekkert og
geti ekki borgað milljóna króna
sekt. Þau fluttu til Svíþjóðar í leit
að betra lífi og eiga engar eignir til
að selja fyrir skuldinni.
Foreldrar Davíðs voru í Svíþjóð
til að gæta barnanna á meðan Davíð
og Þóra fóru til Tyrklands. Þau
komu í gær heim til Íslands með
yngri börnin þeirra tvö. Þóra og
elsta stúlkan verða eftir í Svíþjóð til
að ganga frá íbúð sem fjölskyldan
var með á leigu áður en þær flytja
heim. brjann@frettabladid.is
Óttast um manninn
í tyrknesku fangelsi
Íslenskur karlmaður sem keypti stein á markaði bíður dóms fyrir fornmunasmygl í
Tyrklandi. Áfall fyrir konu og börn sem óttast að hann þurfi að sitja af sér þungan
fangelsisdóm. Sagði móður sinni í síma að hann hefði sætt barsmíðum í fangelsinu.
Ræðismaður Íslands í Ankara í Tyrklandi hefur verið í sambandi við Davíð
og hefur komið honum í samband við lögmann, segir Pétur Ásgeirsson,
sviðsstjóri hjá utanríkisráðuneytinu.
„Við vonumst til þess að fá nánari skýringar á morgun [í dag],“ segir
Pétur. Hann segir að Davíð muni ásamt lögmanni sínum funda með full-
trúa saksóknara til að ræða framhald málsins. - bj
Ráðuneytið fær frekari skýringar í dag
ALÞINGI Nauðsynlegt er að frumvarp sem
heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðar-
skyni komi fram sem fyrst til þess að
umræða geti átt sér stað í samfélaginu áður
en málið fer til afgreiðslu í þinginu.
Um þetta voru Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Guð-
bjartur Hannesson velferðarráðherra sam-
mála á Alþingi á föstudag. Ragnheiður Elín
spurði Guðbjart um stöðu frumvarpsgerðar-
innar en starfshópur hefur undanfarið unnið
að frumvarpinu.
Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá
er ljóst að frumvarpið kemur ekki fram á
þessu þingi, enda mjög stutt eftir af því og
vinnu hópsins ekki lokið. Guðbjartur stað-
festi þetta á þinginu. Hann sagði að tekið
hefði mun lengri tíma en reiknað hefði verið
með að vinna frumvarpið en sagðist treysta
á að vinnunni yrði haldið áfram. „Ég tel að
þarna þurfi að vanda mjög til verka og við
höfum óskað eftir því á allan hátt.“
Ragnheiður Elín benti á að meðal þess
sem hefði verið rætt á fyrri stigum málsins
væri að frekari umræðu þyrfti um málið.
Það sagði hún ljóst að myndi ekki gerast á
meðan frumvarpið væri hjá starfshópnum.
- þeb
Segja nauðsynlegt að frumvarp um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni komi fram sem fyrst:
Vilja umræðu í samfélaginu um staðgöngu
RAGNHEIÐUR ELÍN Þingkonan lagði fram þings-
ályktunartillöguna sem varð til þess að starfshópur var
skipaður um staðgöngumæðrun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Árið 2011 voru meira en sjö hundruð fangar pyntaðir í tyrkneskum
fangelsum. Sama ár var meira en 600 föngum neitað um læknismeð-
ferð og rétt til annarrar heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram í skýrslu
sem mannréttindanefnd tyrkneska þjóðþingsins sendi frá sér í haust. Í
skýrslunni segir að ástandið í fangelsum landsins sé enn slæmt, þótt það
hafi skánað á síðustu árum. - gb
Tyrknesk fangelsi enn alræmd
Á FLUGVELLINUM Davíð Örn á flugvell-
inum í Antalya stuttu áður en hann var
handtekinn grunaður um smygltilraun.
MINJAGRIPUR Davíð og Þóra keyptu marmarastein á ferðamannamarkaði við rómverskar rústir á Suður-Tyrklandi. Davíð er nú
sakaður um að hafa ætlað að smygla fornmun úr landi. Börnin þrjú bíða nú frétta af föður sínum sem dúsir í tyrknesku fangelsi.
Það eina sem ég fékk
að gera var að kyssa hann
bless og labba grátandi út
á meðan lögreglumenn-
irnir héldu honum niðri.
Þóra Björg Birgisdóttir,
kærasta Davíðs Arnar Bjarnasonar
1 Hvað heitir varaforseti Venesúela
sem tók við af Hugo Chavez?
2 Hvað hafa viðskiptabankarnir
þrír hagnast mikið frá því þeir voru
stofnsettir?
3 Hvað heitir nýjasta plata Johns
Grant?
SVÖR
1 Nicolas Maduro 2 216 milljarða króna 3
Pale Green Ghosts
Á síðustu árum eru nokkur dæmi um að ferðafólk hafi verið handtekið
við brottför frá Tyrklandi eftir að útskornir steinar fundust í farangri þess.
Síðastliðið sumar var til dæmis Christian Varone, lögreglustjóri í sviss-
nesku kantónunni Valais, handtekinn á sama flugvellinum í Tyrklandi
þegar hann var á heimleið úr fríi með fjölskyldu sinni. Hann sat fimm
daga í fangelsi en réttarhaldi hefur verið frestað þangað til 19. mars. Þá
þurfti kínversk fjölskylda að sitja sex daga í fangelsi í Antalya síðastliðið
vor eftir að fornmunir fundust í farangri þeirra. Á vefsíðu bandaríska
sendiráðsins í Tyrklandi eru bandarískir ferðamenn varaðir sérstaklega við
því að kaupa slíka muni. Jafnvel þótt menn kaupi eftirlíkingu geta menn
átt á hættu að sitja í fangelsi þangað til fornleifafræðingar hafa gengið úr
skugga um hvers kyns er. - gb
Fleiri ferðamenn handteknir í Antalya
VEISTU SVARIÐ?