Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 8
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Guðrún Pálsdóttir stofnaði Urðarapótek og keppir við þá stóru á markaðnum með áherslu á góð kjör og betri þjónustu. Við þekkjum slíkar aðstæður mjög vel. Þess vegna er Urðarapótek í viðskiptum hjá okkur. Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is banki atvinnulífsins B ra nd en b ur g UMHVERFISMÁL Hugvitssamleg notkun myndavélartækni hefur gefið nýja sýn á hegðun sjófugla við ætisleit á sjó. Vísindamenn festu myndavélar á tíu súlur, sem er stærsti sjófugl Evrópu, og fylgdust með hversu mikið sjó fuglar sækja í brottkast fiskiskipa við veiðar; heilan fisk og fisk úrgang. Með þessu freistuðu þeir þess að finna svör við því hvort bann við brott- kasti á nýtanlegum fiski gæti haft áhrif á fugl a stofn a , auk upplýsinga um hegðunar- mynstur þeirra. Gárungar setja fram þá kenn- ingu að fundin sé tækni til að vakta ólöglegt brottkast. Rann sóknin er unnin af hópi franskra og breskra vís- indamanna undir handleiðslu Steves Votier hjá Plymo- uth-háskóla. Rann- sóknin fór fram undan strönd Bret- landseyja, en í kringum eyjarnar hafast tveir þriðju súlustofnsins við. Niðurstöðurnar voru birtar í Plos One, sem er rit- rýnt vísindatímarit. Aðferðafræðin var í raun ein- föld; tíu myndavélar sem ætlaðar eru til að fylgjast með gælu dýrum voru festar á fuglana. Fyrst sneru vélarnar fram en veiði- aðferð súlunnar, svokallað súlu- kast þar sem fuglinn stingur sér á miklum hraða í sjóinn, varð til þess að vélunum var snúið aftur. Afraksturinn var 20.000 myndir sem gáfu nýja sýn á hegðun sjófugla við ætisleit. Stað- setningarbún- aður var síðan nýttur til að auka við gildi rann- sókn arinnar og kortleggja flug þeirra. Ljóst er að súl- urnar, og fjöldi annarra sjófugla, sækja mjög í það æti sem gengur út af fiskiskipum við veiðar, sem einnig á við um Íslandsmið, eins og þekkt er. Þó einskorðast ætis- leit þeirra ekki við skipin, heldur fer hún saman við veiðar á lifandi æti. Þetta stað festir rannsóknin. Eins og þekkt er stefnir Evrópu- sambandið að því að banna brott- kast á nýtanlegum fiski, sem í dag er gríðarlegt. Þetta er talið hafa áhrif á sjófugla og að vakta þurfi áhrif bannsins á vistkerfi fuglanna í framtíðinni. Hliðarafurð verkefnisins virðist blasa við. Ljóst er að notkun myndavéla getur gagnast til rann- sókna á fuglum og hegðunar- mynstri þeirra með mjög árangurs- ríkum hætti. Á sama hátt er spurt hvað útiloki að nýta tæknina til þess að leysa flókin verkefni sem stjórnvöld um allan heim hafa leitað lausna við; að nota sjófugla til þess að fylgjast með brottkasti fiskiskipa í framtíðinni þar sem það verður með öllu bannað. Ísland er þar ekki undanþegið. svavar@frettabladid.is Brottkast myndað af sjófugli Vísindamenn festu tíu myndavélar á bak sjófugla til að fylgjast með ætisleit þeirra. Myndirnar sýna hversu háðir fuglarnir eru áti á brottkasti frá fiskiskipum. Bann við brottkasti gæti haft áhrif á vistkerfið. NÝTT SJÓNARHORN Myndirnar sýna skip á veiðum frá þessu sjónarhorni og þar með hegðun annarra sjófugla. NORDICPHOTOS/GETTY Sjö gíslar myrtir 1NÍGERÍA Hópur herskárra íslam-ista hefur myrt sjö gísla, sem rænt var um miðjan síðasta mánuð í norðanverðri Nígeríu. Fjórir hinna myrtu voru frá Líbanon, en hinir þrír voru frá Bretlandi, Grikklandi og Ítalíu. Þeir voru að vinnu hjá bygg- ingarfyrirtæki þegar þeim var rænt. Í yfirlýsingu frá grískum stjórnmálum segir að mannræningjarnir hafi aldrei haft samband til að krefjast lausnar- gjalds. Stjórnvöld bæði Bretlands og Ítalíu hafa fordæmt morðin. Samtökin nefnast Ansaru og segjast vera klofningshópur úr Boku Haram. Suu Kyi kosinn leiðtogi 2BÚRMA Aung San Suu Kyi var kosin leiðtogi Lýðræðis- bandalagsins, helsta stjórnarandstöðu- flokksins í Búrma. Hún hefur verið leiðtogi flokksins áratugum saman, en þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem lýðræðislegt kjör fer fram um leiðtogastöðuna. Hún sat lengi í stofufang- elsi en var kosin á þing á síðasta ári eftir að herforingjastjórn landsins tók að slaka á klónni og opna samfélagið. Sjö börn brunnu inni 3ÞÝSKALAND Sjö börn brunnu inni í gær ásamt móður sinni í eldsvoða í íbúðarblokk í bænum Backnang, sem er skammt frá Stutt- gart í Þýskalandi. Slökkviliði tókst að bjarga þremur úr eldsvoðanum, þar á meðal ömmu barnanna. Talið er að eldurinn hafi kviknað í íbúð þeirra, en ekki var ljóst hvað olli. Börnin sem létust voru á aldrinum 6 til 12 ára en móðir þeirra var fertug. Lík þeirra fundust í tveimur herbergjum í íbúðuinni, sem er á annarri hæð. Fjölskyldan er af tyrkneskum upp- runa og hafa tyrknesk stjórnvöld látið málið sig varða. FRAKKLAND, AP Francois Hol- lande, forseti Frakklands, vill nýja löggjöf sem á að hvetja fleiri feður til að taka feðraorlof og mæður til að fara fyrr út á vinnu- markaðinn. Hann vill einnig auka fjárhagsaðstoð ríkisins til einstæðra foreldra sem ekki fá meðlagsgreiðslur frá fyrri maka. Hollande hefur lagt mikið upp úr bættum réttindum kvenna, meðal annars séð til að helmingur ráð- herra sé konur. Frumvarp hans um feðraorlof veitir nýbökuðum feðrum rétt- indi til sex mánaða orlofs og lang- tímaréttindi til foreldraleyfis. - hj Vill jafna stöðu kynjanna: Aukin réttindi til feðraorlofs FISKVEIÐIEFTIRLIT FRAM- TÍÐARINNAR Súlan er stærsti sjófugl Evrópu og er algengur við Ísland. MYND/RÓBERT A. STEFÁNSSON SLYS Síðdegis í gær ók vélsleða- maður fram af hengju í Unadal skammt frá Hofsósi í Skagafirði. Maðurinn fékk sleðann ofan á sig og slasaðist töluvert. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og lenti við slysstað klukkan 17.33. Björgunarsveit- ir voru þá komnar á staðinn og læknir hafði búið um meiðslin. Maðurinn var síðan fluttur á sjúkrahús. Hann hafði verið í æfingaferð sleðaflokka tveggja björgunarsveita í Skagafirði. - gb Slasaðist nálægt Hofsósi: Vélsleðamaður sóttur á þyrlu HEIMURINN 1 2 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.