Fréttablaðið - 11.03.2013, Page 10

Fréttablaðið - 11.03.2013, Page 10
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SUBARU FORESTER VISION Nýskr. 04/11, ekinn 48 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.290 þús. Rnr.280506. Frábært úrval af nýlegum, lítið eknum bílum á frábæru verði! Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is HYUNDAI IX35 Nýskr. 05/12, ekinn 28 þús km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.990 þús. Rnr.201040. CHEVROLET CAPTIVA 7manna Nýskr. 09/11, ekinn 25 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr.151751 HYUNDAI I30 CLASSIC Nýskr. 07/12, ekinn 6 þús km. dísil, beinskiptur. VERÐ kr. 3.220 þús. Rnr.-201134. TOYOTA LAND CRUISER 150GX Nýskr. 06/12, ekinn 19 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Verð kr.10.390 þús TILBOÐ kr. 9.290 þús. KIA CEED SPORT Nýskr. 10/11, ekinn 12 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Verð kr. 3.590 þús. Rnr.151814. HYUNDAI SANTA FE II Nýskr. 04/12, ekinn 3 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 6.290 þús. Rnr.120137. VERÐ kr. 6.190 þús. Rnr.130449 Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL Gott úrval af 4x4 bílum Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði! Eindagi afborgana af lánum Íbúðalánasjóðs verður framvegis þremur dögum eftir gjalddaga. Dæmi: Eindagi lána með gjalddaga 1. apríl er 4. apríl. Eindagi lána með gjalddaga 15. apríl er 18. apríl. Eindagi er síðasti dagur sem hægt er að greiða gjalddaga án dráttarvaxta. Ef greiðsla dregst fram yfir eindaga falla á hana dráttarvextir sem reiknast frá og með gjalddaga. Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 | www.ils.is Breyttur eindagi á lánum Íbúðalánasjóðs UMHVERFISMÁL „Lands virkjun hefur aldrei viljað koma almennilega að þessu máli en það er kannski að breytast núna,“ segir Gunnar Jóns- son, formaður bæjarráðs Fljóts- dalshéraðs, um áhyggjur heima- manna af landbroti við Lagarfljót. Gunnar segir að í skýrslu um vatnsstöðuna í Lagarfljóti komi fram að vatnsmagnið sé töluvert meira en öll reiknilíkön vegna Kárahnúkavirkjunar gerðu ráð fyrir. „Hækkun á grunnvatnsstöðu við Lagarfljótsbrú við Fellabæ og við Hól í Hjaltastaðaþinghá eykur rof á viðkvæmum árbökkum. Áhrifa af breyttri grunnvatnsstöðu gætir víða og eru bújarðir og náttúru- minjasvæði sem liggja undir skemmdum sérstakt áhyggjuefni,“ segir í bókun bæjarstjórnar sem vill að Landsvirkjun grípi til mót- vægisaðgerða. Gunnar segir náttúruminja- svæðin sem vísað er til vera hólma og víðibakka norðan Lagarfljótsbrú- ar. „Þar sér mikið á fjölbreyttri og mjög fallegri fuglaparadís. Mér sárnar mjög að sjá þetta,“ segir Gunnar, sem sjálfur á jörðina Egils- staði I sem hólmarnir tilheyra. Rof á bökkum er talið vera tals- vert eða mikið á um 50 kíló metrum af bökkum við Lagarfljót. „Það er til dæmis í landi Hóls og Hús- eyjar niður við Héraðsflóa,“ segir Gunnar. Til þess að draga úr rof- inu ofan Lagarfljótsvirkjunar segir Gunnar að víkka þurfi árfar veginn frá Lagarfljótsbrú og langleiðina út að Lagarfossi. „Þetta vatns- magn kemst ekki út að fossi nógu auðveldlega. Þáverandi umhverfis- ráðherra stoppaði á síðustu metr- unum að far vegurinn yrði breikk- aður því hún taldi of mikið rask af uppgreftrinum,“ segir Gunnar. Þá þurfi að verja árbakka sem mest sjái á með grjóti eða öðru. Gunnar segir ýjað að því í áður- nefndri skýrslu að hið aukna vatns- magn stafi af náttúrulegum völdum en bendir á að orkuframleiðslan í Fljótdalsstöð sé meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og vatnsrennsli þar í gegn einfaldlega meira sem því nemi. „Lagarfljótið er gjörbreytt vatns- fall. Það liggur hærra á veturna, straumurinn er meiri og vatnið sem kemur úr virkjuninni er heitara. Fyrir vikið frýs Lagarfljót nánast aldrei á veturna eins og var regla áður. Þá eru norðanáttir ríkjandi og aldan hamast og ólmast á bökkunum og rífur þá niður,“ segir Gunnar Jónsson. gar@frettabladid.is Bújarðir og minjar í hættu við Lagarfljót Vatnsmagn í Lagarfljóti er mun meira en reiknað var með við byggingu Kára- hnúkavirkjunar. Mikið rof á árbökkum skemmir náttúruminjar og bújarðir. Bæjar- ráð Fljótsdalshéraðs vill aðgerðir frá Landsvirkjun til að stöðva megi landbrotið. VIÐ LAGARFLJÓT Trjágróður fellur ofan í Lagarfljót með bakkanum sem brotnað hefur austan við ána, til móts við flugvöllinn á Egilsstöðum. AÐSEND MYND. Þar sér mikið á fjöl- breyttri og mjög fallegri fuglaparadís. Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.