Fréttablaðið - 11.03.2013, Side 16
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 16
AF NETINU
Vandræðagangur í
turnunum tveimur
Innan Sjálfstæðisflokksins er
deilt vegna Evrópumála, en
einnig ríkir óánægja meðal
margra flokksmanna vegna
afstöðunnar til skuldamála og
svo vegna þess að formaðurinn
þykir ekki nógu trúverðugur. Upp
úr sauð vegna Evrópumálanna í
vikunni– það ganga hnútur milli
gamalla Sjálfstæðismanna og rit-
stjóra Morgunblaðsins, sem þykir
ráða alltof miklu bak við tjöldin.
Það var nú gamall félagi hans,
Geir Waage, sem lagði fram
landsfundartillöguna sem fór svo
fyrir brjóstið á Evrópusinnum.
[…]
Landsfundurinn í síðasta mánuði
afhjúpaði í raun veikleika í
flokknum fremur en að sýna
styrk hans, eins og stefnt er að á
slíkum samkomum.
Kosningasigurinn sem Sjálf-
stæðismenn létu sig dreyma um
fyrr á kjörtímabilinu fjarlægist nú
óðum. Meðan ástandið er svona
í flokknum eykst fylgið varla.
Á meðan dafnar Framsóknar-
flokkurinn– slagkrafturinn á þeim
bæ er ólíkt meiri.
pressan.is/silfuregils
Egill Helgason
Megum ekki vita
Við megum ekki vita hvað Geir
sagði við Davíð. Eða hvað Davíð
sagði við Geir. Við vitum að það
var eitthvað um 80 milljarða lán
en það kemur okkur ekki við.
Þetta voru sko peningar Seðla-
bankans en ekki okkar. Davíð er
líka búinn að útskýra fyrir okkur
að þetta símtal hafi ekki verið
neitt merkilegt og fyrst Davíð
segir það sjálfur þá getum við
andað léttar. Ég meina það var
hann sjálfur sem lánaði helling af
peningum. Sem hann átti en ekki
við. Eða sko sem Seðlabankinn
hans átti og þar með hann
sjálfur. Einhvern veginn svoleiðis.
blog.pressan.is/evahauks
Eva Hauksdóttir
Að meðaltali er fjórð-
ungur atvinnuleitenda
hérlendis 50 ára og eldri.
Margt bendir til þess að
þeir einstaklingar sem
eru komnir yfir miðjan
aldur og verða fyrir því
að missa vinnuna eigi
erfiðara en hinir sem
yngri eru með að fá starf
að nýju. Svo virðist vera
sem langtímaatvinnu-
leysi hjá þeim sé meira
en yngri hópum. Fljótlega eftir
að VR hóf að þjónusta atvinnu-
lausa félagsmenn sína í ágúst
síðastliðnum urðu atvinnuráð-
gjafar félagsins varir við það
viðhorf meðal atvinnuleitenda
að það „þýði ekki fyrir“ fólk
yfir fimmtugu að sækja um
ákveðin störf þar sem það sé
ekki með „rétta“ kennitölu. Það
er því gjarnan upplifun þeirra
að atvinnurekendur telji þá of
gamla í starfið – það taki því
jafnvel ekki að ráða þá og þjálfa
upp.
Margir lýsa þeirri sannfær-
ingu sinni að umsóknir þeirra
strandi á kennitölunni og þær
séu ekki einu sinni skoðaðar.
Þetta er viðhorf sem margir
atvinnuleitendur á fyrrnefndu
aldursskeiði hafa til atvinnu-
leitarinnar – að þeir fái ekki,
vegna aldurs síns, tækifæri til
að keppa á jafnréttisgrundvelli
við yngri umsækjendur.
Reynslan skiptir máli
Því hefur lengi verið haldið
fram að tengsl milli langtíma-
atvinnuleysis og lítillar form-
legrar menntunar séu ótvíræð.
Þegar þessi hópur er skoðaður
er ekki endilega fylgni
þar á milli. Til að mynda
eru 406 atvinnulausir
félagsmenn VR á aldr-
inum 50 til 70 ára. Þar
af eru 86 þeirra með
háskólapróf, 46 með lög-
gilt iðnnám, 63 félags-
menn hafa lokið starfs-
námi ýmiss konar, 160
með grunnskólapróf og
51 sem hefur lokið námi
til stúdentsprófs. Þetta
er því fjölbreyttur hópur sem
gjarnan hefur mikla og fjöl-
breytta starfsreynslu að baki.
Endurmenntun og margs konar
símenntun er einnig orðin
algengari en áður tíðkaðist og
fjölmargir í þessum hópi hafa
sótt ýmis námskeið eða lagt
stund á nám sem gerir þá hæf-
ari til þátttöku á vinnumarkaði.
Í aðstæðum þar sem reynsla og
menntun eiga að skera úr um
hæfni geta atvinnurekendur
ekki litið fram hjá þeirri lífs-
reynslu sem einstaklingur öðlast
með árunum, reynslu sem eng-
inn skóli getur kennt. Þess konar
reynsla er ómetanleg fyrir
atvinnulífið, ekki síður en sam-
félagið í víðari skilningi.
Rannsóknir hafa einnig sýnt
að starfsmenn á þessu aldursbili
eru að jafnaði tryggari starfs-
menn en þeir sem yngri eru.
Þeir endast lengur í starfi hjá
sama vinnuveitanda, eru með
færri veikindadaga og hafa
aðrar fjölskyldutengdar skyldur
en þeir sem yngri eru.
Það er á vissan hátt sérkenni-
legt að atvinnurekendur hafi
ekki lært að meta þau verðmæti
sem felast í aldri og reynslu.
Jafnvel má halda því fram að
í þeim efnum hafi okkur farið
aftur á síðastliðnum áratugum.
Það er þekkt staðreynd innan
stjórnunarfræða að blönduðum
vinnustöðum hvað kyn og aldur
varðar vegnar að jafnaði betur
en þeim sem byggja á eins leitum
hópi starfsmanna. Það er því
spurning hvort atvinnu rekendur
séu að nota rétta mælikvarða
þegar þeir bera saman menntun
og reynslu? Er reynslan of létt-
væg fundin?
Gull sem ekki glóir
Þetta eru áleitnar spurningar
sem við getum ekki hunsað. Sem
samfélag höfum við ekki efni
á að ganga fram hjá sterkum
umsækjendum á grundvelli
aldurs. Þeir sem eldri eru búa
yfir gífurlegum verðmætum
sem enginn atvinnurekandi ætti
að líta fram hjá þegar verið er
að velja nýjan starfskraft til
fyrirtækis – verðmætin sem
felast í „gráa gullinu“ ættu að
vera öllum ljós. Þar er á ferðinni
verðmætt gull, þó ekki glói á.
Gráa gullið á vinnumarkaði
Þann 1. mars sl. sátum við undir-
ritaðar áhugaverða ráðstefnu sem
haldin var undir kjörorðinu „Heim-
ili – meira en hús“. Var ráðstefnan
haldin sameiginlega af félögum
sem berjast fyrir réttindum fatlaðs
fólks og Sambandi íslenskra sveita-
félaga. Mörg fróðleg erindi voru
flutt er lýstu vel þeim fjölmörgu
hindrunum sem fólk með fötlun
þarf að yfirstíga eða kljást við.
Meginþema þingsins var hvernig
hægt væri að búa fötluðum sjálf-
stætt heimili og hvernig það væri
fyrir fatlaðan einstakling að flytja
úr foreldrahúsum.
Dagný Kristjánsdóttir lýsti á
áhrifaríkan hátt hvernig upplifun
það hefði verið að flytja frá for-
eldrum sínum og hefja sjálfstætt
líf í eigin íbúð. Bar erindi hennar
yfirskriftina „Að byrja nýtt líf“.
Hamingja hennar yfir sjálf stæðinu
að búa á sínu eigin heimili var ein-
læg og mættu margir jafnaldrar
hennar læra af henni. Hún hefur
t.d. þá reglu að bjóða foreldrunum í
mat einu sinni í viku. Stórkostlegt.
Jafnframt lýsti hún vel þrá sinni
að gefa af sér fyrir aðra. Með
dugnaði og styrkri aðstoð foreldra
og bræðra sem og Flensborgar-
skóla er hún komin í diplómanám í
Háskóla Íslands. Hún vonast til að
geta liðsinnt börnum á leikskólum
í framtíðinni.
Heimili er og verður grund vallar-
eining í okkar samfélagi. Heimili
geta verið af ýmsum toga. Heimili
táknar ekki einungis skjól utan um
svokallaða kjarnafjölskyldu.
Stefnuskrá Landssamtakanna
Þroskahjálpar byggir í grund-
vallar atriðum á alþjóðlegum mann-
réttindasáttmálum sem Íslend-
ingar hafa undirritað og tekur
hún mið af mannréttindum sem
flestir njóta nú þegar. Eitt stefnu-
markmið Þroskahjálpar ber heitið
„Allir eiga rétt á heimili“ og þýðir
að í nútímasamfélagi verði litið á
eigið heimili sem sjálfsögð mann-
réttindi, enda tengist það sjálfs-
mynd, friðhelgi einkalífs og sjálf-
stæði órjúfan legum böndum. Síðan
segir: „Fólk með sérstakar þarfir
vegna fötlunar á tilkall til þessara
mannréttinda eins og allir aðrir.“
Öllum einstaklingum á að líða
vel á heimilum sínum og eiga rétt
á að eiga sitt heimili. Það á við um
fatlaða sem ófatlaða einstaklinga.
Framsókn ætlar sér að vera öflugur
málsvari heimilanna í landinu.
Framsókn
fyrir heimilin➜ Í aðstæðum þar sem reynsla og menntun eiga
að skera úr um hæfni geta
atvinnurekendur ekki litið
fram hjá þeirri lífsreynslu
sem einstaklingur öðlast
með árunum, reynslu sem
enginn skóli getur kennt.
Þess konar reynsla er
ómetanleg fyrir atvinnulífi ð,
ekki síður en samfélagið í
víðari skilningi.
ATVINNA
Stefán Einar
Stefánsson
formaður VR
STJÓRNMÁL
Sigrún
Magnúsdóttir
skipar 2. sæti
Framsóknarfl okks
í Reykjavík norður
Vigdís
Hauksdóttir
þingmaður
Framsóknarfl okks í
Reykjavík suður
➜ Öllum einstaklingum
á að líða vel á heimilum
sínum og eiga rétt á að eiga
sitt heimili.
Viðræður milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins um
fríverslunarsamning hefjast í sumar. Fari svo að samningar
náist er um að ræða umfangsmesta fríverslunarsamning
sögunnar.
Margar spurningar vakna um hagsmuni Íslands:
Munu EFTA ríkin fá aðild að samningnum? Af hverju fara
þessar viðræður af stað núna? Lækkar verð á bandarískum
vörum á Íslandi?
Amerísk-íslenska viðskiptaráðið | Kringlan 7 | 103 Reykjavík | 510 7111 | kristin@chamber.is | www.amis.is
Morgunverðarfundur AMIS
VIÐRÆÐUR BANDARÍKJANNA OG ESB UM
FRÍVERSLUNARSAMNING
- HAGSMUNIR ÍSLANDS –
Hvar: Icelandair hótel Reykjavík Natura
Hvenær: 12. mars
Klukkan: 8.15-10.00
Fundur með morgunverði 3.900 kr.
Fundarmál: Enska
Aðalerindi fundarins: Fundastjóri:
Skráning: www.vi.is/eydublod/amis
Jón Sigurðsson
Forstjóri Össurar
Á flekaskilum - sökkva
eða stökkva?
Kristján Kristjánsson
Upplýsingafulltrúi
Landsbankans
Bergdís Ellertsdóttir
Skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins
Viðbrögð íslenskra stjórnvalda
Viðbrögð:
Luis Arreaga
Sendiherra Bandaríkjanna
Henrik Bendixen
Yfirmaður stækkunar-
máladeildar Sendiskrifstofu
ESB á Íslandi og settur
sendifulltrúi