Fréttablaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 46
KYNNING − AUGLÝSINGEldunartæki MÁNUDAGUR 11. MARS 20134
AÐ STEIKJA PÖNNUNA TIL
Pönnur úr pottjárni þarf að „steikja til“ áður en þær eru tilbúnar til notkunar
svo ekki brenni allt fast.
Hitið pönnuna vel og setjið um það bil tvær teskeiðar af salti á pönnuna
auk matskeiðar af matarolíu. Hitið olíuna og nuddið henni og saltinu með
bréfþurrku um botninn á pönnunni. Nuddið svo yfir hliðarnar líka og haldið
áfram að nudda með pönnuna á hitanum í nokkrar mínútur. Slökkvið þá
undir, þurrkið pönnuna með tauþurrku og látið hana
kólna.
Endurtakið allt saman ef matur brennur
við á pönnunni. Eins ef pannan er þrifin
með uppþvottalegi eða nudduð með
stálull.
Við seljum virkilega vönduð eldhústæki og innrétt ingar ásamt því að reka smíða- og
raftækjaverkstæði samhliða því,“
segir Björn Leví Viðarsson, eigandi
Fríforms.
Björn Leví stofnaði Fríform árið
2000 ásamt föður sínum, Viðari
Kornerup-Hansen, en Fríform flyt ur
inn og selur eldhústæki frá fjórum
aðilum. „Elba er glæsileg vörulína
frá Ítalíu sem við höfum verið með
frá upphafi og hefur reynst ein-
staklega vel. Þetta eru helluborð í
flestum gerðum, innbyggðir ofnar,
veggviftur, vegg- og eyjuháfar og
uppþvottavélar.“ Trésmiðir og raf-
virkjar á vegum Fríforms koma svo
öllu fyrir ef einhverrar aðlögunar er
þörf. „Ef þarf að breyta borðplötu,
laga skáp eða eitthvað slíkt fyrir nýtt
eldhústæki þá getum við séð um það
frá a-ö sé þess óskað.“
Snaige-kæliskáparnir frá Litháen
hafa verið í sölu hjá Fríform undan-
farin átta ár og hafa gefið mjög góða
raun, endast vel og eru á góðu verði.
„Þetta eru hefðbundnir kæli– og
frystiskápar í stöðluðum stærðum.
Allt frá 80 til 200 sentímetra háir og
fást í mörgum mismunandi litum og
útfærslum. Svo erum við með hellu-
borð, veggháfa, viftur, örbylgjuofna
og fleira frá Scan í Danmörku og svo
helluborð frá Zeba í Ítalíu.“
Aðaláhersla Fríforms hefur þó
ávallt verið á innréttingar en þar eru
seldar danskar gæðainnréttingar. „Í
flestum tilfellum þegar innrétting er
keypt tekur fólk raftæki frá okkur í
leiðinni. Við mætum á svæðið og
setjum allt upp. Þægilegra getur
það vart verið.“ Ef eitthvað kemur
upp á sendir Fríform mann heim
til fólks eða það kemur með tækin.
„Við sjáum alfarið um að þjónusta
þau tæki sem við seljum á raftækja-
verkstæðinu okkar.“
Fram að páskum er 30 prósenta
afsláttur af innréttingum og tuttugu
prósenta afsláttur af raftækjum. „Sé
bæði keypt saman er fimm prósent
afsláttur af raftækjum til viðbótar.
Það er um að gera að líta við í sýn-
ingarsalinn hjá okkur í Askalind 3 í
Kópavogi og skoða úrvalið.“
Allt á einum stað hjá Fríform
Við val á eldhústækjum er óþarfi að flækja málin um of. Hjá Fríform fást öll helstu tæki og þjónusta á einum stað; helluborð,
eldavélar, ofnar, viftur, háfar, kæliskápar og innréttingar. Þar er líka rekið trésmíða- og raftækjaverkstæði og þar eru fagmenn sem
sjá um uppsetningu og þjónustu frá a-ö.
„Það er um að gera að líta við í sýningarsalinn hjá okkur í Askalind 3 í Kópavogi og skoða úrvalið,“ segir Björn Leví. MYND/GVA
Gullna hofið í Amritsar í Punjabhéraði á Indlandi telst stærsta eld-
hús veraldar þegar tekið er tillit til fjölda manns sem eldað er fyrir.
Hofið er opið öllum og sjálfboðaliðar elda mat þar daglega fyrir
allt að 100.000 manns á hverjum degi. Gullna hofið, sem er helg-
asti helgidómur sjíka, er opið öllu fólki óháð trú þess, aldri, þjóð-
erni og kyni og þangað geta allir komið og snætt. Matseðill húss-
ins er þó hvorki langur né flókinn enda inniheldur hann eingöngu
einn rétt sem bæði er einfaldur og ódýr. Hann er að mestu leyti
gerður úr baunum og hrísgrjónum og er borinn fram með gerlausu
flatbrauði sem nefnist chapattis. Í eftirrétt er boðið upp á hrís-
grjónabúðing sem nefnist kheer og er bragðbættur með saffrani.
Ekki íburðarmikill réttur en sannarlega saðsamur og næringar-
ríkur. Það tekur langan tíma og skiplagðan mannskap að elda svo
mikinn mat. Mörg hundruð sjálfboðaliðar vinna dag hvern við að
sjóða hrísgrjón, skræla grænmeti og hræra í pottum auk þess sem
drjúgan tíma tekur að vaska upp, ganga frá og henda ýmsu rusli.
Gullna hofið er einnig vinsæll ferðamannastaður. Bygging þess
hófst árið 1574 og lauk árið 1601.
Stærsta eldhús veraldar
NÝ OG STÍLFÖGUR
ELDHÚSTÆKI FRÁ AEG
SEM GERA GOTT ELDHÚS
ENN BETRA
Fjölkerfa blástursofn með
innbyggðum kjöthitamæli,
hjálparkokki með sjálfvirkum
uppskriftum og sjálfhreinsikerfi.
Íslensk notendahandbók.
Einnig fáanlegur sem gufuofn.
Íslensk notendahandbók.
B
P
9
3
0
4
1
5
1
-M
Fjölkerfa blástursofn með
innbyggðum kjöthitamæli og
hjálparkokki með sjálfvirkum
uppskriftum.
Íslensk notendahandbók.
Einnig fáanlegur með sjálfhreinsikerfi
B
E
7
3
1
4
4
0
1
-M
Fjölkerfa blástursofn með
hraðhitakerfi, sérstaklega
þægilegur í notkun og allri
umgengni.
Íslensk notendahandbók.
Einnig fáanlegur með sjálfhreinsikerfi og
innbyggðum kjöthitamæli.
Íslensk notendahandbók.
B
E
5
3
0
3
0
7
1
-M
Fjölkerfa blástursofn sem er
sérstaklega einfaldur og
auðveldur í notkun og allri
umgengni.
Íslensk notendahandbók.
ar
B
E
3
0
0
3
0
0
1
-M
„Afburða hönnun“
3 LÍNAN 5 LÍNAN 7 LÍNAN 9 LÍNAN
Nýju ofnarnir frá búa yfir miklum fjölbreytileika í lögun og leikni.
Nýtanlegt innra rými ofnanna er nú 30% stærra en áður og eru þeir nú 74 lítrar
að stærð án þess að ummál þeirra hafi aukist.
AÐ ELDA MEÐ
Þegar þú eldar með AEG máttu búast við framþróaðri tækni, flottri hönnun og fjölmörgum
stillingarmöguleikum sem bjóða upp á svo margt, margt fleira.
FULLKOMIN HÖNNUN
AEG ofnarnir eru hannaðir til að skara fram úr á öllum sviðum. Þeir eru einstaklega fjölhæfir,
áreiðanlegir og þar að auki glæsilegir útlits.
AEG HELLUBORÐ AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM
Ný glæsileg lína helluborða frá AEG býður upp á fullkomnustu tækni, hvort sem þú velur spansuðu-
eða venjulegt hraðsuðuhelluborð eða fyrir gas þá er úrvalið mikið og útfærslurnar fjölbreyttar.
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800
www.ormsson.is
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 10-18
OG LAUGARDAGA FRÁ 11-15
*
3
.5
%
L
Á
N
T
Ö
K
U
G
J
A
L
D
Nú er tækifærið til að endurnýja: