Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 11.03.2013, Qupperneq 50
11. mars 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 22 BAKÞANKAR Charlotte Böving 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR LÁRÉTT 2. plat, 6. nafnorð, 8. drulla, 9. æxlunarkorn, 11. ullarflóki, 12. aðfall, 14. rabb, 16. snæddi, 17. af, 18. tími, 20. tveir eins, 21. ögn. LÓÐRÉTT 1. nýja, 3. frá, 4. þegn, 5. steinbogi, 7. frægð, 10. þrá, 13. heyskaparamboð, 15. ekki margir, 16. svif, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. gabb, 6. no, 8. for, 9. gró, 11. rú, 12. aðsog, 14. skraf, 16. át, 17. frá, 18. tíð, 20. ii, 21. arða. LÓÐRÉTT: 1. unga, 3. af, 4. borgari, 5. brú, 7. orðstír, 10. ósk, 13. orf, 15. fáir, 16. áta, 19. ðð. Hvað heldur þú? Fæ ég skoðun á bílinn? JÁ! Ég þrífst á ævintýrum! EINMITT! Er það þess vegna sem þú eyðir öllum frítíma þínum fyrir framan sjónvarpið? Ég þrífst á ævintýraþáttum. Allt í lagi. Ég skal játast þér, Jón, en ég vil hjúskaparsáttmála! Pabbi, áttu gamla skyrtu sem ég gæti notað sem vinnu- slopp? Já! Látum okkur sjá... hvernig er þessi? Heldurðu að hún eyði- leggist? Ég er alltaf að seg ja honum að kaupa! Þá yrði það gott fyrir okkur öll. Hildur Hafdís Katrín Þórkatla Dóra Þvottavélin mín bilaði um daginn, eftir fimm ára dygga þjónustu. FIMM ár eru nú ekki svo langur tími. Ég man tíma þegar fólk átti sömu þvottavélina í tuttugu – þrjátíu ár. Sá tími er liðinn. ÉG vildi láta gera við vélina, en það var ekki hægt. Viðgerðarmaðurinn sagði að tölvan í henni væri ónýt og hann gat ekki séð nákvæmlega hvað hafði gefið sig. Úr því að hann var kominn á staðinn bað ég hann að líta í leiðinni á fimm ára gamla ís- og frystiskápinn. Sjálfvirka affrystingin var hætt að virka. Það yrði of dýrt að gera við hann, sagði maðurinn. Það borgar sig að kaupa nýjan! ÉG hugsaði áhyggjufull til þurrkarans, sem líka er fimm ára gamall. Hvenær ætli hann gefi sig? Já, sagði viðgerðar- maðurinn, ég ætti ekki að búast við því að tæki í dag lifðu mikið meira en fimm ár. SEINNA sama dag, þegar tölvan drap á sér, greip skelf- ingin um sig. Ég tók batt- eríið úr vélinni og leyfði henni að hvíla sig. Á meðan sótti ég back-up-ið mitt, harða diskinn. Sem betur fer átti ég það, ef tölvan skyldi gefa sig alveg. Tölvan fór aftur í gang þegar ég setti batteríið í hana. Fjúff, þvílíkur léttir! En þegar ég stakk eins árs gömlum harða disknum í samband til þess að taka öryggis- afrit af öllu nýlegu, kom upp ERROR! Ég leitaði ráða hjá vini, sem útskýrði að það væri ekki óalgengt að það væru innbyggðir gallar í hörðum diskum, þannig að þeir lifa sumir enn skemur en tölvur. EFTIR að hafa dvalið nokkra stund við hamfarastefnuna sem heimilisfjárhag- urinn stefndi í fór hugurinn á flug, út af heimilinu og upp þar sem ég hafði yfirsýn fuglsins fljúgandi. Ég horfði niður yfir öll litlu húsin í Vesturbænum, þar sem hver fjölskylda á þvottavél, þurrkara, ísskáp, frysti o.s.frv. Þar að auki eru a.m.k. tvær tölvur á hverju heimili. Ég sá fyrir mér öll þessi tæki þegar búið væri að fleygja þeim. Þau lágu eins og hráviði í kringum húsin, í görðunum og því lengra sem ég hugsaði fram í tímann, því þéttar stóðu ónýtu tækin. Hugurinn flaug enn hærra út í geim, þar sem hann horfði niður á bláa hnöttinn okkar. Hér búa um sjö milljarðar manna. Ef við ímyndum okkur að einn milljarður þeirra noti fimm tæki fimmta hvert ár, þá verðum við á þrjátíu árum búin að fleygja 30.000.000.000 tækjum. VIÐ þetta gaf heilinn sig! Bilað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.