Fréttablaðið - 11.03.2013, Síða 53

Fréttablaðið - 11.03.2013, Síða 53
BIKINÍ-ÁSKORUN Allar nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningu, verð og skráningu finnur þú á www.hreyfing.is Innifalið í námskeiðinu: • Þjálfun og mataræði tekið í gegn • Sérhannað æfingakerfi sem miðar að því að komast úr stöðnun og tryggja að þú komist í þitt allra besta form • Auka æfingaáætlun til að tryggja þátttakendum hámarksárangur • Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti og gufuböðum • Dagleg hvatning, fróðleikur og aðgangur að uppskriftum frá Ágústu Johnson á lokuðu heimasvæði inni á www.hreyfing.is • Sérstakt mataræði sem dregur úr sykurlöngun og stuðlar að því að þú náir varanlegu þyngdartapi • Mælingar – vigtun og fitumælingar – fyrir og eftir • Kvöldstund í Blue Lagoon spa Taktu áskorun og vertu í þínu allra besta formi í sumar. Vertu léttari á þér, léttari í lund, sterkari og flottari! MÁNUDAGUR 11. mars 2013 | MENNING | 25 Steve Carell segist vera undrandi á frama sínum í leiklistinni. Hann er þekktur fyrir hlutverk í gamanþáttunum The Office og kvikmyndunum Evan Almighty og The 40 Year Old Virgin. „Ég er bara ánægður með að geta starfað við leiklistina. Eigin- kona mín veit að ég hélt að ég fengi í mesta lagi hlutverk sem klikkaði nágranninn í gaman- þáttum. Allur minn ferill hefur komið mér á óvart og verið mjög ánægjulegur,“ sagði Carell. Nýjasta mynd hans er The Incredible Burt Wonderstone þar sem hann leikur útbrunninn töframann sem hyggur á endur- komu. Undrandi á framanum ÁNÆGÐUR Steve Carell er ánægður með starf sitt. Noel Gallagher, fyrrverandi höfuð paur Oasis, þótti lítið til Brit-verðlaunahátíðarinnar, sem fór fram á dögunum, koma. Í viðtali við Time Out Dubai segir Gallagher hátíðina fulla af framagosum. „Það eru engir persónuleikar eftir í tónlistar- bransanum. Þegar við byrjuðum kom heilbrigð prósentutala af gestunum úr félagsíbúðum og við trúðum því varla að við værum á Brit-verðlaununum,“ útskýrði Gallagher og bætti við: „Þetta er orðið allt of viðskiptasinnað. Ég sá trommarann úr Muse reykja raf- magnssígarettu. Í alvöru? Gerðu mér greiða, vinur, farðu út og fáðu þér alvöru rettu eða slepptu því alveg að fá þér!“ Noel ósáttur við Brit- verðlaunin NOEL Eldri Gallagher-bróðir- inn er með allt á hornum sér. ★★★★★ John Grant Pale Green Ghosts SENA Pale Green Ghosts er önnur sóló- plata Johns Grant en sú fyrri, Queen of Denmark, var af mörgum talin ein af bestu plötum ársins 2010. Queen of Denmark var í sígildum popplagastíl. Hún var unnin með Texas-sveitinni Midlake. Tveir meðlimir hennar, bassaleikar- inn Paul Alexander og trommu- leikarinn McKenzie Smith spila í nokkrum lögum á Pale Green Ghosts en flestir hljóðfæraleikar- anna eru íslenskir, m.a. Pétur Hall- gríms, Jakob Smári, Arnar Ómars, Óskar Guðjóns, Smári Tarfur og Gummi Pé. Sá tónlistarmaður sem hefur mest áhrif á útkomuna er samt upptökustjórinn og takt- smiðurinn Biggi Veira úr Gusgus. Biggi klæðir lögin hans Grants í nýjan búning. Lögin eru tekin mis- langt í raftónlistaráttina: Titillagið Pale Green Ghosts er mjög GusGus- legt og það sama má segja um hið frábæra Black Belt. Lagið Ernest Borgnine er svo nánast hrein- ræktað teknólag. Nokkur laganna eru meira í anda Queen of Den- mark, t.d. GMF og It Doesn‘t Matter To Him og enn önnur eru einhvers staðar þarna á milli. Í sérflokki er svo lokalagið Glacier sem er eitt af meistaraverkum plötunnar. Það er mjög flott uppbyggt með tilkomu- mikilli strengjaútsetningu og glæsi- legum píanókafla. John Grant er mikill sögu maður, eins og þeir sem hafa séð hann á tónleikum vita. Hann er með sjálfan sig á heilanum, sem er ekki óalgengt meðal poppara. Það sem gerir textana hans svona góða er hins vegar húmorinn. Hann kvartar mikið yfir eigin hlutskipti og yfir fyrrum elskhuga sínum, sem hann söng reyndar mikið til á Queen of Denmark líka, en sjálfs vorkunnin er alltaf skreytt með húmor og skemmtilegum orðaleikjum. Stóra spurningin þegar Pale Green Ghosts er metin er hvernig hefur tekist að sameina raftónlistar- veröld Bigga Veiru og sígildar laga- smíðar Johns Grant. Það var auð- vitað ekkert augljóst að það tækist, en útkoman er í einu orði sagt frá- bær. Það hefði verið auðvelt fyrir John Grant að taka þessi ellefu lög upp með sömu hljómsveit og síðast og flestir hefðu eflaust verið sáttir við það. Hann ákvað hins vegar að fara lengri leiðina og prófa eitthvað nýtt. Sú áhætta borgaði sig. Pale Green Ghosts er meistaraverk. Trausti Júlíusson NIÐURSTAÐA: Biggi Veira klæðir sígildar lagasmíðar Johns Grant í nýjan búning á frábærri plötu. Áhætta sem borgaði sig

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.