Fréttablaðið - 11.03.2013, Page 64
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
ættar- og
samtímasaga.“
BJØRN BREDAL / POLITIKEN
„… áhrifamikil
Myndband í snjóstormi
Biggi Hilmars, þekktur úr hljóm-
sveitinni Ampop, notaði óveðrið á
höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku til
að taka upp nýtt tónlistarmyndband
ásamt myndlistarkonunni Maríu
Kjartansdóttur. Það var tekið við
lagið Fool´s Mate af sólóplötunni All
We Can Be sem kom út fyrir síðustu
jól. Á meðan almenningur var
varaður við því að fara út í storminn
nýttu Biggi og María tæki-
færið og drifu sig út með
myndavél, rafmagns-
píanó og stól í farteskinu
og leituðu að góðum
tökustað. „Það má
segja að vindurinn
og snjórinn hafi átt
stóran þátt í að
skapa andrúmsloft
með músíkinni,“
segir Biggi. „Ég
hef aldrei spilað
í hljómsveit
með náttúrunni
áður, en þetta
var mögnuð til-
finning.“ Mynd-
bandið kemur út
í vikunni.
Óaðfinnanleg Sigríður
Eins og kom fram á Visir.is í gær
var árshátíð 365 haldin á Hilton
Reykjavík Nordica Hótel á laugar-
dagskvöld með pompi og prakt.
Veislustjóri var Sverrir Þór Sverrisson,
Sveppi, og notaði hann tækifærið
og skaut föstum skotum á vini sína
Audda og Pétur Jóhann sem voru
á meðal gesta. Fleiri barnastjörnur
en Sveppi voru í salnum því þær
Skoppa og Skrítla mættu á há-
tíðina og höfðu að sjálfsögðu góða
skapið með í för. Sigríður Thorlacius,
söngkona Hjaltalín, steig á svið og
söng slagarann My Way
á frönsku, enda franskt
þema á árshátíðinni.
Framburður hennar
var óaðfinnanlegur og
röddin fögur sem fyrr.
Hlaut hún að launum
hávært lófaklapp
fyrir frammi-
stöðu sína. -fb
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
1 Elti ökumann og braut í honum
tennur
2 Íslendingur í fangelsi í Tyrklandi– „Við
fáum ekki að vita neitt“
3 Davíð og Geir meðvitaðir um stöðu
Kaupþings
4 17 ára á 171 kílómetra hraða– barna-
vernd látin vita
5 Davíð segir fj ölmarga hafa séð
útskrift ina