Fréttablaðið - 09.04.2013, Side 4
9. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
FANGELSISMÁL Sjö fangar hafa
framið sjálfsvíg innan veggja
íslenskra fangelsa á síðustu tutt-
ugu árum. Um er að ræða fanga
á Litla-Hrauni og fangelsinu í
Kópavogi. Þrír fangar hafa látist
á sama tímabili af öðrum orsökum
og gerir þetta því tíu andlát í
allt.
Samkvæmt
upplýsingum
frá Fangelsis-
málastofnun
frömdu þr í r
fangar sjálfsvíg
á Litla-Hrauni
árið 1998, en
tölurnar hafa
hvorki orðið það háar fyrr né
síðar. Langflest atvikin hafa átt
sér stað þar, enda langfjölmenn-
asta fangelsi landsins.
Íslensk fangelsismála- og heil-
brigðisyfirvöld hafa lengi kallað
eftir sértæku úrræði fyrir geð-
sjúka fanga sem þó hafa verið
metnir sakhæfir. Síðastliðið
fimmtudagskvöld svipti andlega
veikur fangi á Litla-Hrauni sig
lífi í klefa sínum, Þorvarður Davíð
Ólafsson, sem var dæmdur til fjór-
tán ára fangelsisvistar árið 2011
fyrir tilraun til manndráps. Þor-
varður veitti föður sínum, Ólafi
Þórðarsyni, áverka sem drógu
hann til dauða í nóvember 2010.
Ólafur komst aldrei til með-
vitundar eftir árásina og lést
tæpu ári síðar á Grensásdeild.
Greint var frá því í Fréttablaðinu
í nóvember að Þorvarður hefði
verið nauðungarvistaður á Kleppi
til að veita honum meðferð og
komu þar fram gagnrýnisraddir
frá yfirvöldum vegna þeirra van-
kanta á kerfinu að geta ekki sinnt
veikum föngum nægilega vel.
Maður sem dvaldi á Litla-
Hrauni með Þorvarði um tíma
segir alla hafa gert sér grein
fyrir því að hann hafi verið alvar-
lega veikur. Fangarnir hafi tekið
að sér eins konar
sálgæslu fyrir
Þorvarð, enda fá
önnur úrræði í
boði. Maðurinn
gagnrýnir kerfið
harðlega og segir
ljóst í hvað stefndi
í langan tíma, en
lítið hafi verið að
gert.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir brýnt að yfirvöld
bregðist við þessum vanda sem
yfirvöld standi frammi fyrir
vegna sakhæfra, veikra fanga.
Ýmis úrræði séu á teikni borðinu,
en vonast sé til að fangelsið á
Hólmsheiði muni koma til móts
við skort á rými og þar með verði
auðveldara að kljást við vandamál
einstakra fanga. „Þetta er hugsun
sem er á vinnsluborðinu, enda
augljóst að svo þarf að vera,“ segir
Ögmundur.
Á seinni hluta síðasta árs voru
á bilinu fjórir til fimm fangar
á Litla-Hrauni sem voru í raun
of veikir á geði til að vera innan
veggja fangelsisins. Greint var
frá því í Fréttablaðinu í októ-
ber. Þar sagði Páll Winkel, for-
stjóri Fangelsismálastofnunar, að
annað hvort þyrfti sérálmu í fang-
elsi eða sérstaka deild á vegum
heilbrigðis yfir valda með fimm
til tíu plássum, öryggisgæslu og
sérhæfðari meðferð. Þá séu lyfja-
gjafir sérlega flóknar þar sem
ekki sé hægt að neyða lyf ofan í
einstaklinga án þess að svipta þá
sjálfræði. „Þetta er eitthvað sem
þarf að berjast fyrir,“ sagði hann.
sunna@frettabladid.is
Sjö sjálfsvíg innan veggja
fangelsa síðustu tuttugu ár
Tíu fangar hafa látist í fangelsum síðan árið 1993. Langflestir hafa svipt sig lífi. Innanríkisráðherra segir brýnt
að bregðast við þeim vanda sem fylgi geðsjúkum, sakhæfum föngum innan almennra fangelsa.
LITLA-HRAUN Langflest sjálfsvíg áttu sér stað í fjölmennasta fangelsinu.
1993 Kópavogsfangelsi– eitt andlát
1998 Litla-Hraun– þrjú sjálfsvíg
2004 Kópavogsfangelsi– eitt sjálfsvíg
2005 Litla-Hraun– eitt sjálfsvíg
2007 Litla-Hraun– eitt sjálfsvíg og eitt andlát
2012 Litla-Hraun– eitt andlát
2013 Litla-Hraun– eitt sjálfsvíg
HEIMILD: FANGELSISMÁLASTOFNUN
Sjálfsvíg í fangelsum síðan 1993
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
12. árgangur
DÓMSMÁL Maður sem veitti föður sínum alvarlega áverka sem drógu hann til dauða er nú nauðungarvist-aður á öryggisdeildinni á Kleppi. Hann var metinn sakhæfur af geð-læknum fyrr á árinu og dæmdur til fjórtán ára fangelsisvistar. Í síðasta mánuði var maður-inn nauðungarvistaður á geðdeild Landspítalans við Hringbraut. Hann var þó fljótt metinn það veik-ur að hann þyrfti aukna meðferð, svo hann var færður á öryggis-deildina á Kleppi. Nauðsynlegt er að svipta hann sjálfræði, þar sem hann neitar að sækja meðferð á geðdeild. Hann verður að minnsta kosti sex mánuði inni á Kleppi. Maðurinn, Þorvarður Davíð
Ólafsson, er einn nokkurra fanga á Litla-Hrauni sem fangelsismála-yfirvöld telja að þurfi sérúrræði innan kerfisins, en engin sérstök stofnun er fyrir hendi fyrir geð-sjúka einstaklinga sem hafa þó verið metnir sakhæfir fyrir dómi. Þessa fanga verður að vista í fangelsi, en réttargeðdeildin á Kleppi, sem áður var á Sogni í Ölf-usi, er samkvæmt lögum einungis fyrir ósakhæfa brotamenn.Samkvæmt reglum fangelsis-málayfirvalda á að leggja fanga sem veikjast af geðsjúkdómi inn á geðdeild Landspítalans á Hring-braut. Innlögn á öryggisdeild er undantekning sem eingöngu er gripið til ef um mjög veika einstak-
linga er að ræða sem neita meðferð.Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir á öryggisdeildinni á Kleppi, segir afar fátítt að geðdeildir LSH taki við föngum af Litla-Hrauni, en það hafi þó gerst. „Ef einstaklingar eru metnir mjög veikir og vilja ekki nauðsynlega þjónustu, þarf að fara þessa leið,“ segir hann. „Aðalatriðið
er að fangar fái sömu þjónustu og aðrir þjóðfélagsþegnar og ferlið sé eins hjá þeim og öðrum.“Margrét Frímannsdóttir, for-stöðukona Litla-Hrauns, segir að komi upp bráðaveikindi hjá föng-um sem kalli á innlögn á geðdeild, sé ferlið auðveldara nú en það hafi verið hingað til.
„En við þurfum að skoða hvern-ig við getum bætt aðbúnaðinn og komið á sérstakri deild fyrir sakhæfa geðsjúka einstaklinga,“ segir hún. „Einnig er nauðsynlegt að skoða hvernig verði staðið að mönnun þeirrar deildar og hvort við þurfum að leggja meiri áherslu á menntun fangavarða sem annast geðsjúka fanga.“
- sv
Sakhæfur en samt of veikur fyrir fangavist á Litla-HrauniFangi af Litla-Hrauni sem hlaut fjórtán ára dóm fyrir morðtilraun er nú vistaður nauðugur á öryggisdeild geðspítalans á Kleppi. Sárvantar úrræði fyrir geðsjúka fanga, segir forstöðukonan Margrét Frímannsdóttir.Ef einstaklingar eru
metnir mjög veikir og vilja ekki nauðsynlega þjón-ustu þarf að fara þessa leið.
SIGURÐUR PÁLL PÁLSSON YFIRLÆKNIR Á ÖRYGGISDEILD KLEPPS
ð
ki
DÓMSMÁL Pétur Guðgeirsson
héraðsdómari hafnaði í gær
beiðni lögmannanna Gests
Jónssonar og Ragnars H. Hall
um lausn þeirra frá verjenda-
störfum í svokölluðu Al Thani-
máli Sérstaks saksóknara.
Gestur, verjandi Sigurðar
Einarssonar, og Ragnar,
verjandi Ólafs Ólafssonar,
boðuðu til blaðamannafundar
í gær þar sem þeir tilkynntu
að þeir hefðu óskað eftir lausn
frá störfum.
Ástæðan var sú að þeir töldu
að ítrekað hefði verið brotið á
rétti skjólstæðinga þeirra til
réttlátrar málsmeðferðar, nú
síðast með dómum Hæsta réttar
frá því fyrir helgi þar sem
þeim kröfum var hafnað að
sakborningar fengju aðgang að
tilteknum gögnum og að aðal-
meðferð málsins yrði frestað
vegna þess hversu mikið af
gögnum er undir í málinu.
Björn Þorvaldsson, sak-
sóknari hjá Sérstökum sak-
sóknara, furðaði sig á þessari
ákvörðun tvímenninganna í
gær og sagðist telja eðlilegast
að kröfu þeirra yrði hafnað.
Það varð enda raunin: Dómari
taldi að það mundi valda allt
of miklum töfum á málinu að
skipta um verjendur á þessu
stigi.
Aðalmeðferðin hefst því á
fimmtudag eins og til stóð.
Áætlað er að hún taki átta
daga og að á fimmta tug vitna
komi fyrir dóminn. - sh
Gestur Jónsson og Ragnar Hall segja reglur þverbrotnar í Al Thani-málinu:
Fá ekki að hætta sem verjendur
GETA EKKI HÆTT Gestur og Ragnar voru þung-
búnir á blaðamannafundinum í gær. Dómari var
hins vegar ekki lengi að hafna erindi þeirra og
skikka þá til að verja Sigurð og Ólaf. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LANDHELGISGÆSLAN
Grunur um ólöglegar veiðar
Þyrla Landhelgisgæslunnar stöðvaði
í gær bát að handfæraveiðum innan
reglugerðarhólfs þar sem bannaðar
eru veiðar vegna hrygningarstopps.
Var báturinn færður til hafnar og tók
lögregla á móti honum. Gæslan brýnir
fyrir sjómönnum að fylgjast vel með
lokunum sem eru í gangi hverju sinni.
INDÓNESÍA Bresk kona, Lindsay
Sandiford, tapaði áfrýjun sinni
fyrir yfirrétti á Balí í Indónesíu
og verður tekin af lífi fyrir fíkni-
efnasmygl.
Mál Sandiford hefur vakið
heimsathygli, enda er hún 56 ára
gömul amma og segist hafa verið
þvinguð til að flytja fíkniefni frá
Taílandi til Balí fyrir tæpu ári.
Hún var handtekin með 4,8 kíló
af kókaíni.
Fréttaskýrendur í Bretlandi
segja þó ekki alla von úti enn.
Sandiford hefur nú tvær vikur til
að áfrýja til hæstaréttar. - þeb
Flutti fíkniefni til Balí:
Dauðadómur
ömmu stendur
SÝRLAND, AP Minnst fimmtán
manns létust, tugir særðust og
gríðarlegar skemmdir urðu í
miðborg Damaskus í gær þegar
bílsprengja sprakk.
Ríkissjónvarpið í Sýrlandi
sagði sprengjuárásina hafa
verið sjálfsvígsárás hryðju-
verkamanns. Sprengingin varð
í nágrenni við seðlabanka Sýr-
lands, auk þess sem skóli og
moska eru við sprengjustaðinn.
Alls létust 53 í sprengingu í
miðborginni þann 22. febrúar. -þeb
Áfram árásir í Sýrlandi:
15 látnir eftir
bílsprengju
211,47
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,68 119,24
181,7 182,58
154,51 155,37
20,724 20,846
20,734 20,856
18,524 18,632
1,2024 1,2094
178,34 179,4
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
08.04.2013
Sumarkort
Komdu og svitnaðu með okkur!
Einstakt tilbo
ð í ræktina.
Gildir til 1. ág
úst.
Verð kr. 16.90
0.
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
5-13 m/s.
KÓLNANDI Vorið lætur aðeins bíða eftir sér en það verður heldur svalt næstu daga
og víða einhver snjókoma eða él. Á fimmtudag lítur úr fyrir talsvert frost um allt land
en þá dregur úr vindi og úrkomu.
0°
7
m/s
2°
3
m/s
3
3
m/s
5°
3
m/s
Á morgun
8-15 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
-1°
-4°
-2°
-4°
-5°
Alicante
Basel
Berlín
22°
9°
9°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
6°
10°
11°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
4°
4°
21°
London
Mallorca
New York
9°
22°
21°
Orlando
Ósló
París
28°
2°
11°
San Francisco
Stokkhólmur
20°
2°
2°
2
m/s
2°
2
m/s
-1°
2
m/s
-1°
5
m/s
-1°
4
m/s
0°
5
m/s
-2°
2
m/s
1°
-2°
0°
-3°
-4°
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is