Fréttablaðið - 09.04.2013, Síða 14
9. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
R
egluverkið á Íslandi endurspeglar stundum veruleika sem
er horfinn eða á hröðu undanhaldi. Gott dæmi er hinn
sterki réttur sauðkindarinnar og eigenda hennar. Enn
þá er gengið út frá því að hagsmunir sauðfjárræktar séu
jafnríkir og þegar hún var einn helzti undirstöðuatvinnu-
vegur þjóðarinnar. Lausaganga búfjár fæst ekki bönnuð, sem veldur
annars vegar slysahættu og hins vegar því að þeir sem vilja verja
landareignir sínar fyrir ágangi búfjár þurfa að standa sjálfir straum
af kostnaði við það. Skógarbændur og aðrir landeigendur sem ekki
halda búfé eru látnir taka þátt í kostnaði við haustsmölun á fé sauð-
fjárbænda og þannig mætti áfram telja.
Anga af þessu fyrirbæri má sjá í máli sem Fréttablaðið fjallaði um
í gær; deilu Landgræðslu og Skóg-
ræktar ríkisins við sveitarfélagið
og sauðfjárbændur í Rangárþingi
eystra um nýtingu afréttarins
Almenninga. Svæðið, sem var
illa farið af gróðureyðingu, hefur
verið friðað fyrir beit í rúmlega
tuttugu ár. Uppgræðslustarf
hefur meðal annars leitt af sér
að birkiskógur hefur breiðzt út.
Engu að síður telja hvorki Landgræðslan né Skógræktin að þar
megi leyfa beit á ný. Í beitarþolsmati sem Landbúnaðar háskólinn á
Hvanneyri vann fyrir skömmu segir að aðeins um þrettán prósent
svæðisins geti talizt gróin. Afrétturinn sé alls ekki beitarhæfur og
mikilvægt að hann njóti friðunar áfram næstu áratugina, meðal
annars til að sá mikli kostnaður og vinna sem farið hefur í upp-
græðsluna fari ekki í súginn.
Meirihluti svokallaðrar ítölunefndar, sem lögum samkvæmt á að
ákveða hvað sé hæfilegt beitarálag, lætur í úrskurði sem felldur var
í síðasta mánuði nánast eins og úttekt Landbúnaðarháskólans sé ekki
til. Þar komust fulltrúi sýslumanns og Bændasamtakanna alltént að
þeirri niðurstöðu að svæðið þyldi talsvert beitarálag.
Þeir leggja meira að segja til að „uppgræðslu á afréttinum verði
haldið áfram samfara beitinni enda muni afrétturinn bera fleira
fé með slíkum aðferðum“. Skattgreiðendur niðurgreiði með öðrum
orðum gras og birkisprota ofan í sauðfé Eyfellinga!
Í þessu máli takast á tvenns konar hagsmunir. Annars vegar
bænda, sem vilja viðhalda réttinum til að nytja afrétt á viðkvæmu og
lítt grónu landi. Hins vegar eru hagsmunir almennings og náttúr-
unnar hvað varðar uppgræðslu, útivist og jafnvel heilbrigði, því að
gróður á þessu eldfjallasvæði getur hindrað öskufok. Við bætist að
verði beit leyfð í Almenningum þarf með ærnum tilkostnaði að reisa
girðingar til að hindra að sauðféð komist inn í friðlandið í Þórsmörk,
sunnan afréttarins.
Undanfarna áratugi hefur beitarálag í landinu minnkað samfara
mikilli fækkun sauðfjár og landgæði víða verið endurheimt. Flestum
finnst það mikilsverður árangur. Almenningamálið sýnir okkur þó
að hann er ekki fastur í hendi.
Spyrja má hvort eitthvað komi í veg fyrir að til dæmis samfara
velgengni í útflutningi lambakjöts vilji bændur fjölga fé á ný og nýta
þá aftur beitilönd sem hafa fengið að vera í friði um skeið, eins og
Almenninga. Tryggir núverandi regluverk nógu vel að annarra hags-
muna sé gætt ef sú staða kemur upp?
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Aðild að Evrópusambandinu er praktísk
nauðsyn. Hún er engin hugmyndafræðileg
meinloka. Hún er einfaldlega skynsam-
legasta leiðin áfram fyrir metnaðarfulla
norræna velferðarþjóð sem býr við gjald-
eyrishöft og ógjaldgengan gjaldmiðil, en
vill opið hagkerfi og njóta sambærilegra
lífskjara og nágrannaþjóðirnar.
Hugmynd sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna um þjóðaratkvæðagreiðslu
um framhald aðildarviðræðna getur
aldrei gengið upp sem leið til að ákveða
stöðu okkar í Evrópu. Það er hrein veg-
leysa ef þessir flokkar, sem ekki telja
hagsmunum þjóðarinnar best borgið með
aðild, verða í ríkisstjórn og eiga nauð-
ugir að leiða aðildarviðræður sem þeir
hafa enga trú á. Bjarni Benediktsson
hefur margsagt að ófært sé að VG leiði
samninga um einstök efnisatriði aðildar-
samninga, því flokkurinn styðji ekki
aðild. Sama hlýtur að eiga við um hann
sjálfan. Ef Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkur sitja í ríkisstjórn geta þeir ekki
leitt aðildarumsókn með þessum rökum.
Ef þjóðin kýs að halda áfram aðildarvið-
ræðum fæli sú niður staða því í reynd í sér
vantraust á ríkisstjórn gömlu flokkanna
og þeir þyrftu að veita minnihlutastjórn
Samfylkingarinnar, sem leiddi aðildar-
viðræðurnar, hlutleysi.
Eina skynsamlega leiðin er að ljúka
samningum eins hratt og kostur er undir
forystu Samfylkingarinnar í ríkisstjórn
og gefa þjóðinni kost á að kjósa þá strax
um þá efnislegu niðurstöðu.
Margir styðja Evrópusambands aðild
en trúa því að það sé hægt að kjósa gömlu
loforðaflokkana og halda svo áfram í
rólegheitum með aðildarumsóknina. Svo
er ekki. Ef Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkur fá umboð til að gera það sem þeir
segjast ætla að gera tökum við ekki upp
evru í áratugi.
Því er Samfylkingin tilbúin að leggja
alla áherslu á aðildarumsóknina: Við
viljum ljúka samningum svo fljótt sem
unnt er. Um leið og þeir liggja fyrir viljum
við samþykkja frumvarp til breytinga
á stjórnarskrá, til að uppfylla skilyrði
aðildar og rjúfa þing og leggja allan pakk-
ann – og okkur sjálf – í dóm þjóðarinnar.
Þjóðaratkvæði og þingkosningar í einu.
Það hljóta allir flokkar að geta fallist á.
Evrópa á dagskrá!
Internetið og kýlingar
Píratar hafa komið sem ferskur
vindur inn í íslensk stjórnmál, en
þeirra helstu áherslumál snúa að
internetinu. Þeim er þó ekkert mann-
legt óviðkomandi, eins og sást á
Facebook-síðu Smára McCarthy, eins
framjóðenda flokksins, í gær. „Píratar
með stefnumál í kosningu um
að afnema eigi bann við
hnefaleikum og öðrum
bardagaíþróttum. Fólk á
að ráða sér sjálft, jafnvel
ef það hefur áhuga á
að láta kýla sig sér til
dægrastyttingar.“ Þetta
er gott og blessað og má
segja að það sé í anda
stefnu flokksins að berjast
bæði fyrir frelsi á netinu og frelsi til
að láta kýla sig, jafnvel væri hægt að
sameina þetta tvennt í stefnuskrá
flokksins og menn geta notað netið
til að verða sér úti um kýlingar.
Með boxhanskann á púlsinum
Nú er það hins vegar svo að bann
við hnefaleikum var aflagt árið 2002.
Það lýtur vissulega aðeins að
ólympískum hnefaleikum
og þar liggur kannski
hundurinn grafinn.
Það er kannski ekki
nóg fyrir tölvu-
áhugafólkið í Pírötum
að fólk láti kýla sig á
ólympískan máta.
Sjóræningjasigling Dögunar
Árni Páll Árnason skoraði á Sigmund
Davíð Gunnlaugsson í kappræður og
í anda þess hefur Dögun nú skorað
á Píratana í siglingakeppni. „Dögun
skorar á hvaða Píratakaptein sem er
í siglingakeppni. Dögun mun útvega
seglbátana og láta Pírötum eftir að
velja stað og stund. Tekið skal
fram að innan raða Dögunar
er alvöru sjóræningi, en var
það staðfest árið 2000,
sem Dögun mun tefla
fram í siglingakeppni
gegn Pírötum.“ Undir
þetta ritar Ásta Hafberg,
framkvæmdastjóri Dög-
unar.
kolbeinn@frettabladid.is
STJÓRNMÁL
Árni Páll
Árnason
formaður
Samfylkingarinnar
Rólegt umhverfi, úrvals hráefni, ljúffengur matur
og lipur þjónusta gera hádegið fullkomið.
LÉTT OG SKEMMTILEG
STEMNING Í HÁDEGINU
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is S. 599 6660
FYRSTA
SVANSVOTTAÐA
VEITINGAHÚSIÐ
Á ÍSLANDI
➜ Um leið og þeir liggja fyrir
viljum við samþykkja frumvarp til
breytinga á stjórnarskrá, til að upp-
fylla skilyrði aðildar og rjúfa þing
og leggja allan pakkann …
Réttur sauðkindarinnar er enn of ríkur:
Almannahagur í
Almenningum