Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 4
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
➜ Stjórnarflokkarnir eru með samanlagt
23,7 prósenta fylgi og 17 þingsæti samkvæmt
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn og
Framsóknarflokk hefur minnkað frá því
í síðustu viku, samkvæmt niðurstöðum
nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins
og Stöðvar 2.
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fá
samanlagt nærri helming atkvæða kjós-
enda, 49,7 prósent. Þeir fá þrátt fyrir það
talsvert meira en helming þingmanna,
alls 36 af 63, eða 57 prósent þingmanna.
Ástæðan er meðal annars sú að ríflega
tíundi hver kjósandi ætlar að kjósa fram-
boð sem ekki eru líkleg til að ná þingsæt-
um miðað við niðurstöður kannana.
Alls ætla 25,9 prósent að kjósa Fram-
sóknarflokkinn nú, og er hann enn stærsti
flokkurinn. Stuðningurinn hefur dalað
frá könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 í
síðustu viku, þegar 30,3 prósent ætluðu
að kjósa flokkinn. Yrðu niðurstöður kosn-
inga í takt við könnunina fengi Framsókn-
arflokkurinn 19 þingmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig
dalað milli kannana. Alls ætla 23,8 pró-
sent að kjósa flokkinn nú, samanborið við
26,9 prósent fyrir viku. Þessi stuðningur
myndi skila flokknum 17 þingmönnum.
Samfylkingin er þriðji stærsti flokkur-
inn samkvæmt könnuninni, en fylgið er
ekki svipur hjá sjón samanborið við nærri
30 prósenta kjörfylgi. Alls ætla 13,3 pró-
sent að kjósa Samfylkinguna nú, svipað
hlutfall og fyrir viku, og fengi flokkurinn
10 þingmenn kæmu þessar tölur upp úr
kjörkössunum.
Fylgi Vinstri grænna hefur aukist frá
því í síðustu viku, og ætla 10,4 prósent að
kjósa flokkinn nú samanborið við 7,9 pró-
sent í síðustu könnun. Nærri 22 prósenta
kjörfylgi flokksins er þó fráleitt í augsýn.
Flokkurinn fengi sjö þingmenn yrðu þetta
niðurstöður kosninga.
Björt framtíð bætir einnig við sig milli
kannana. Um 8,1 prósent styður flokkinn
nú samanborið við 6,5 prósent í síðustu
könnun. Flokkurinn fengi sex þingmenn
samkvæmt könnuninni.
Píratar mælast nú með stuðning 6,3
prósenta kjósenda, 0,7 prósentustigum
meira en í síðustu viku. Flokkurinn fengi
fjóra þingmenn samkvæmt þessu.
brjann@frettabladid.is
Stuðningur við B- og D-lista dalar
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fá samanlagt 36 þingmenn þó þeir séu aðeins með tæplega 50 prósent atkvæða samkvæmt niðurstöðum
könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Ríflega tíundi hver kjósandi ætlar að kjósa flokka sem ekki eru líklegir til að ná mönnum á þing.
Úrtakið í könnuninni var 1.390
manns en hringt var þar til náðist
í 1.000 samkvæmt lagskiptu úrtaki
mánudaginn 22. apríl og þriðjudaginn
23. apríl. Svarhlutfallið var 71,9
prósent. Þátttakendur voru valdir með
slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur
skiptust jafnt eftir kyni og hlutfalls-
lega eftir búsetu og aldri. Spurt var:
Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið
yrði til þingkosninga í dag? Ef ekki
fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er
líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki
fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú
myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða
einhvern annan flokk? Alls tóku 67,4
prósent þátttakenda í könnuninni
afstöðu til spurningarinnar.
➜ Aðferðafræðin
Ríflega tíundi hver kjósandi ætlar að greiða atkvæði sitt framboði sem nær ekki
mönnum á þing, samkvæmt niðurstöðu könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls
ætla 11,1 prósent að kjósa eitthvað af níu framboðum sem eru í þeirri stöðu þremur
dögum fyrir kosningar.
Af þeim framboðum sem ekki ná inn þingmönnum er staða Lýðræðisvaktarinnar,
Hægri grænna, Flokks heimilanna og Dögunar best. Framboðin fjögur eru öll með um
2,5 prósenta fylgi samkvæmt könnuninni.
Staðan er erfiðari hjá Húmanistaflokknum, Regnboganum, Sturlu Jónssyni, Lands-
byggðarflokkinum og Alþýðufylkingunni. Stuðningur við þessi framboð er innan við
eitt prósent.
Einn af tíu kýs flokk sem kemst ekki inn
HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 22. OG 23. APRÍL 2013FYLGI FLOKKANNA
H
úm
an
is
ta
-
fl
ok
ku
ri
nn
Fr
am
fa
ra
-
fl
ok
ku
ri
nn
La
nd
sb
yg
gð
ar
-
fl
ok
ku
ri
nn
A
lþ
ýð
uf
yl
ki
ng
in
R
eg
nb
og
in
n
40%
30%
20%
10%
0%
8,
3%
3,
5%
0,
6% 2,
6%
0,
4% 1,
4% 2,
8%
P
ír
at
ar
Fl
ok
ku
r
he
im
ila
nn
a
Lý
ðr
æ
ði
s-
va
kt
in
D
ög
un
0,
8%
6,
5%
0,
0% 2,
4%
0,
0% 0,
7%
0,
1%2,
5%
8,
1%
2,
5%
0,
1% 1,
7%
0,
1%2,
6%
0,
0% 3
,0
% 5,
6%
10
,4
%
2,
4%
0,
1%
0,
1%
0,
0%
■ Fylgi í könnuninni nú ■ Fylgi í könnun 15. og 16. apríl ■ Fylgi í könnun 3. og 4. apríl
■ Fylgi í könnun 13. og 14. mars ■ Kosningarnar 200930
,3
%
26
,9
%
23
,8
%
25
,9
%
13
,7
%
13
,3
%
7,
9%
40
,0
%
17
,8
%
9,
5%
0,
6%
5,
6%
5,
6% 6,
3%
SKIPTING ÞINGSÆTA
Miðað við
könnunina
15. og 16.
apríl 2013
2
9
16
19
11
3
Dögun
2
Píratar
1
Utan
flokka
HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 22. OG 23. APRÍL 2013
Miðað við
könnunina
23. og 24.
apríl 2013
19
17
10
4 7
6
kjósenda
ætla að
kjósa annað hvort Framsóknar-
fl okkinn eða Sjálfstæðisfl okk
49,7%
2013
207,2419
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,13 117,69
178,37 179,23
152,03 152,89
20,393 20,513
19,824 19,940
17,722 17,826
1,1879 1,1949
175,73 176,77
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
23.04.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
bakaðar kjúklingabringur
Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar með
ferskum kryddjurtum og rjómaosti. Gottimatinn.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hefur undanfarnar vikur og mánuði
yfirheyrt hátt í sextíu manns sem grunaðir
eru um vændiskaup. Þeir eru á aldrinum 16
til 70 ára. Þá hefur sjö vændiskonum, fimm
erlendum og tveimur íslenskum, verið veitt
aðstoð og ráðgjöf vegna málanna.
Þetta er meðal þess sem kom fram á sam-
eiginlegum blaðamannafundi fulltrúa lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ríkislög-
reglustjóra, lögreglunnar á Suðurnesjum og
tollstjóra í gær. Þar var farið yfir árangur-
inn af vinnu sérstaks teymis um rannsóknir
á skipulagðri glæpastarfsemi, meðal annars
í tilefni þess að í gærmorgun samþykkti
ríkisstjórnin tillögu Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra um að veita 25 milljóna
aukafjárveitingu í það verkefni.
Karl Steinar Valsson frá lögreglunni á
höfuð borgarsvæðinu fór yfir það að vinna
hópsins hefði gert það að verkum að veru-
lega hefði dregið úr starfsemi vélhjóla-
gengja hérlendis.
Það hefði aftur skapað svigrúm fyrir
teymið að leggjast í rannsóknir á vændis-
markaðnum, aðallega með áherslu á netið.
Á fundinum kom fram að nú væru tvö
mansalsmál tengd vændi til skoðunar og
tvö önnur tengd almenna vinnumarkaðnum.
- sh
Umfangsmikil vændisrassía hefur staðið yfir á höfuðborgarsvæðinu um nokkurt skeið:
Um 60 vændiskaupendur voru yfirheyrðir
Á BLAÐAMANNAFUNDINUM Kári Gunnlaugsson frá Toll-
inum, Jón Bjartmarz frá Ríkislögreglustjóra, Gunnar Schram frá
lögreglunni á Suðurnesjum og Karl Steinar Valsson sátu fyrir
svörum á blaðamannafundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
Snýst í vaxandi S-átt
SUMAR Á MORGUN? Í dag er síðasti vetrardagur en enn er vetrarlegt á
norðurhelmingi landsins og einhver bið verður á sumrinu. Þar verður frost á morgun
en á föstudaginn hlýnar og það hvessir af suðri við vesturströndina.
-3°
11
m/s
0°
10
m/s
4°
6
m/s
5°
0
m/s
Á morgun
Norðlægar áttir, 3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
6°
3°
3°
0°
2°
Alicante
Aþena
Basel
19°
24°
21°
Berlín
Billund
Frankfurt
19°
12°
22°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
21°
11°
11°
Las Palmas
London
Mallorca
25°
21°
19°
New York
Orlando
Ósló
18°
29°
12°
París
San Francisco
Stokkhólmur
21°
20°
12°
4°
7
m/s
3°
5
m/s
-1°
3
m/s
-2°
4
m/s
0°
4
m/s
2°
10
m/s
-1°
7
m/s
2°
-2°
3°
-1°
-1°