Fréttablaðið - 24.04.2013, Síða 6
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Nú seljum við allan fatnað á 100 krónur í dag frá
kl. 12 til 17. Komið og gerið góð kaup.
Fjölskylduhjálp Íslands
Fjölskylduhjálp Íslands,
nytjamarkaður
í Eskihlíðinni í Reykjavík
www.mba.is
Kynntu þér MBA-nám við Háskóla Íslands.
Kynningarfundur og létt hádegishressing 24. apríl kl. 12-13
í stofu 101 á Háskólatorgi
Skoraðu á þig og taktu skrefið
Margrét Hauksdóttir
Lögfræðingur og forstjóri Þjóðskrár Íslands
„Ég hef tekist á við ný verkefni í starfi
mínu sem ég hefði aldrei gert nema
fyrir tilstilli MBA-námsins“
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvers vegna hefur Kasha Jaqueline
Nabagesera sætt ofsóknum í heima-
landi sínu?
2. Hvað heitir brottrekinn þjálfari
kvennaliðs danska handknattleiksliðs-
ins Viborg?
3. Hvaða íslenski tónlistarmaður sem-
ur tónlist fyrir myndina Prisoners?
SVÖR:
1. Hún er samkynhneigð. 2. Óskar Bjarni
Óskarsson. 3. Jóhann Jóhannsson.
LÁNAMÁL Ríkisstjórnin og Lands-
samtök lífeyrissjóða gerðu í gær
með sér samkomulag um aðgerðir
í þágu yfirveðsettra heimila sem
eru með lán með veð í eignum ann-
arra. Er stefnt að því að þessi heim-
ili fái nú svipaða lausn sinna mála
og öðrum yfirveðsettum heimilum
stóð til boða í gegnum 110% leiðina.
„Þessi lausn er mikið réttlætis-
mál þar sem lánsveðshópnum býðst
sama úrlausn mála og þeim sem
fóru 110% leiðina. Við höfum barist
fyrir þessu lengi og þetta er mjög
ánægjuleg niðurstaða,“ segir Katrín
Júlíusdóttir, fjármála- og efnahags-
ráðherra.
Skrifað var undir viljayfirlýs-
ingu um samkomulagið í gær. Sam-
kvæmt því skal stefnt að því að
eftir stöðvar húsnæðislána með láns-
veð verði færðar niður að 110% af
verðmæti fasteignar lántaka.
Kostnaðurinn við þessar aðgerðir
mun dreifast þannig að lífeyrissjóð-
irnir greiða fyrir 12% en ríkissjóð-
ur fyrir 88%. Áður en hægt er að
framkvæma þær þarf ríkisstjórnin
þó að afla lagaheimilda til þess að
skuldbinda ríkissjóð til þessa kostn-
aðar. Auk þess þarf að afla staðfest-
ingar frá stjórnum hlutaðeigandi líf-
eyrissjóða.
Samkvæmt niðurstöðum sér-
fræðingahóps sem efnahags- og við-
skiptaráðuneytið skipaði í fyrra var
í lok árs 2011 1.951 lántakandi, sem
fjármagnaði húsnæðiskaup með
lánsveði á árunum 2004 til 2008,
með húsnæðisskuld umfram 110%
af fasteignamati. Þessi hópur gat
ekki tekið þátt í 110% leiðinni þar
sem lífeyrissjóðirnir, sem eru eig-
endur langflestra lánanna, töldu það
ekki heimilt samkvæmt lögum. - mþl
Lífeyrissjóðirnir og ríkisstjórnin skrifuðu í gær undir viljayfirlýsingu um lausn á skuldavanda lánsveðshóps:
Lánsveðshópur fær loks eigin 110% leið
FASTEIGNIR Í lok árs 2011 var alls
1.951 lántakandi sem fjármagnaði hús-
næðiskaup með lánsveði á árunum
2004 til 2008 með húsnæðisskuld
umfram 110% af fasteignamati.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UMHVERFISMÁL „Þegar þessu er
lokið eftir fimm til tíu ár hafa
verið gjörfelldir sjö hektarar,
sem er fimmtungur af skóginum
í Öskjuhlíð og þar að auki elsti
og besti hluti skógarins,“ segir
Helgi Gíslason, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Reykja-
víkur, um fyrirhugaða fækkun
trjáa í Öskjuhlíð.
„Það á að byrja á eitt til tvö
hundruð hæstu trjánum strax og
síðan að fella þau jafn óðum og
þau vaxa upp í fluglínuna,“ segir
Helgi, sem kveður rangt að nefna
þetta grisjun.
Þá vísar Helgi í frásögn Ríkis-
útvarpsins um að Flugfélag
Íslands hafi skilið eftir átta far-
þega og farangur til að flugtak
væri mögulegt út af trjánum í
Öskjuhlíð. „Nú er það svo að tré
vaxa ekki að vetrarlagi. Þau hafa
því ekki verið að hækka og skapa
þessa hættu á undanförnum
mánuðum. Fyrir þetta atvik, og
reyndar eftir það einnig, hefur
Flugfélagið getað tekið á loft í
austurátt með fulllestaðar vélar
án vandræða. Ástæður hljóta því
að vera aðrar en hæð trjánna,“
segir hann.
Að sögn Helga eru gestakomur
í Öskjuhlíð um 160 þúsund á ári.
„Verði útivistarsvæðinu spillt
og stór hluti þessa hóps hætt-
ir að nota útivistarsvæðið hvað
er það þá á móti átta farþegum
einu sinni sem ekki komast leið-
ar sinnar eða þurfa að bíða eftir
hagstæðari vindátt?“ spyr Helgi
Gíslason.
Þórólfur Jónsson, garðyrkju-
stjóri Reykjavíkurborgar, segir
aðeins um lítinn hluta skógarins
að tefla. Þótt hann hefði sjálf-
ur valið slíku annan stað muni
rjóður myndast og nýtast til úti-
vistar og gamlar sjávarklappir
verða aðgengilegri. „Við nálg-
umst þetta þannig að gera eins
jákvæða hluti og hægt er úr
þessu,“ segir garðyrkjustjórinn.
gar@frettabladid.is
Besti hlutinn verður
felldur á tíu árum
Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur segir að fimmtungur af skóg-
inum í Öskjuhlíð verði felldur á fimm til tíu árum, þar á meðal elsti og besti hluti
skógarins. Garðyrkjustjóri segir aðeins um lítinn hluta af skóginum að ræða.
Það á að byrja á eitt
til tvö hundruð hæstu
trjánum strax og síðan að
fella þau jafn óðum og
þau vaxa upp í flug línuna
Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Í SKÓGINUM Helgi
Gíslason, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur, segir að
gestakomur í Öskjuhlíð
séu um 160 þúsund
talsins á ári. Hætta sé
á að stór hluti hópsins
hætti að nýta sér
útivistarsvæðið verði
skógurinn felldur.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR.
VIÐSKIPTI Viðræður eru hafnar á
milli Jóns Helga Guðmundssonar,
forstjóra og eiganda Norvikur, og
framtakssjóðsins SÍA II um kaup
á Krónunni, Nóatúni, Elko og
fleiri verslunum.
Frá þessu greinir Viðskipta-
blaðið.
Jón Helgi hefur ákveðið að selja
stóran hluta í félagi sínu Norvik
að byggingavörustórveldinu Byko
undanskildu. Í frétt Viðskipta-
blaðsins kemur fram að til sölu
sé Kaupás-keðjan, þar með talin
Krónan, Nóatún og Kjarval. Einn-
ig sérvöruverslanir félagsins, svo
sem Elko, Intersport og fleiri dótt-
urfélög. Söluviðræður eru hafnar
við sjóðinn SÍA II, sem rekinn
er af Stefni, dótturfélags Arion
banka. Viðskiptablaðið segir frá
því að margir hafi sýnt kaupunum
áhuga.
Jón Helgi ítrekar í frétt blaðs-
ins að salan sé á byrjunarstigi
og ætlar að samningaviðræður
muni koma til með að taka nokkr-
ar vikur. Hann segir einnig að
mikilvægt sé að selja ekki til
samkeppnis aðila fyrirtækjanna
heldur fjárfesta sem vilja að fyrir-
tækið verði skráð á markað. Því
séu engar kollsteypur í farvatninu.
- shá
Jón H. Guðmundsson ætlar að selja Kaupás-keðjuna og fjölda sérverslana:
Selur eignir en heldur Byko
Krónan
Nóatún
Kjarval
Elko
Intersport
STÓRAR VERSLANIR TIL SÖLU