Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 7

Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 7
 Hlutafjárútboð í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) stendur frá kl. 10:00 þann 22. apríl 2013 til kl. 16:00 þann 24. apríl 2013. Í útboðinu hyggjast Stoðir hf. selja 218.550.000 áður útgefna hluti í TM, sem samsvarar 28,7% af útgefnum hlutum í TM. Útboðs- gengi í útboðinu mun liggja á verðbilinu 17,75-20,10 krónur á hvern hlut í TM. Söluandvirði útboðsins getur numið á bilinu 3,9-4,4 milljörðum króna. Gjalddagi áskrifta er 3. maí 2013. NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur samþykkt umsókn stjórnar TM um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðal- markaði Kauphallarinnar. Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir skráningardag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti TM á markaði verði 8. maí nk., en Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara. TM hefur birt lýsingu, sem dagsett er 11. apríl 2013, í tengslum við hlutafjárútboðið og umsókn um töku allra hlutabréfa í TM til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Lýsinguna má nálgast rafrænt á www.tm.is/fjarfestar og útprentuð eintök má nálgast í höfuðstöðvum TM í Síðumúla 24 í Reykjavík. Áður en fjárfestar taka ákvörðun um fjárfestingu í hlutum í TM eru þeir hvattir til þess að kynna sér allar upplýsingar sem lýsingin hefur að geyma, þ. á m. skilmála útboðsins og umfjöllun um áhættu sem þar kemur fram. Nánari upplýsingar um útboðið er að finna á www.landsbankinn.is og www.islandsbanki.is. Umsjónar- og söluaðilar útboðs og töku hlutabréfanna til viðskipta Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík, sími 410 4000, tmutbod@landsbankinn.is. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík, sími 440 4000. Ráðgjafar Landsbankans veita upplýsingar um áskriftarhluta útboðs- ins í síma 410 4040, tölvupóstur: fjarmalaradgjof@landsbankinn.is, frá kl. 9:00-20:00 þann 22. og 23. apríl og fram til loka útboðsins kl. 16:00 þann 24. apríl 2013. Hlutafjárútboð í TM Lýkur klukkan 16:00 í dag • TM er eitt stærsta tryggingafélag landsins. Félagið byggir á 57 ára farsælli sögu og hefur um 26% markaðs- hlutdeild meðal skaðatryggingafélaga á Íslandi, miðað við iðgjöld árið 2011. • Sterkt vörumerki. TM hefur mælst með ánægðustu við- skiptavini íslenskra tryggingafélaga 12 af undanförnum 14 árum. • Hagnaður fyrir skatta er áætlaður 2,3 ma.kr. í ár sam- kvæmt rekstraráætlun félagsins. Í fyrra nam hagnaður fyrir skatta 3,0 mö.kr. • Góð framlegð af vátryggingastarfsemi. Í fyrra var samsett hlutfall tjóna og rekstrarkostnaðar 88,5%, hið lægsta meðal íslenskra vátryggingafélaga. Jákvæð framlegð hefur verið af vátryggingarekstrinum undan- farin þrjú ár. • Traustur efnahagur. Í lok síðasta árs nam eigið fé TM 10,2 mö.kr. og eiginfjárhlutfallið var 37,3%. • Stefnt er á reglulegar arðgreiðslur. Arðgreiðslur skulu nema a.m.k. 50% af hagnaði eftir skatta, samkvæmt arðgreiðslustefnu félagsins. • Styrkleikamat BBB- hjá Standard & Poor‘s. Matið var hækkað fyrr á þessu ári, með tilvísun í sterkari fjárhag og lengri sögu um jákvæða afkomu af vátrygginga- rekstri félagsins. • Um 2/3 hlutafjár var selt í fyrra, til hóps lífeyrissjóða og annarra innlendra fjárfesta.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.