Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 12
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks töluðu fyrir hörku í samskiptum við erlenda kröfuhafa föllnu bankanna í umræðum for- manna þeirra sex stjórnmálaflokka sem stærstir mælast í könnunum. Tekist var á um mál sem tengjast aðstæðum íslensks atvinnulífs á fundi VÍB og Kauphallar Íslands í Hörpu í gær. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, sagði ekki þurfa að taka langan tíma að vinna á gjaldeyrishöftum. Ríkis- valdið hefði í hendi sér tækin sem þyrfti til að knýja á um ásættanlega niðurstöðu í viðræðum við kröfu- hafa bankanna. Fordæmin væru í öðrum löndum í aðgerðum sem til skamms tíma hefðu þótt óhugsandi, svo sem á Kýpur. „Með skattlagn- ingu er hægt að flýta fyrir þessari þróun og mjög eðlilegt að gera það.“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði loks búið að ná utan um verkefnið, með því að þrotabúin hefðu kortlagt skuldir sínar og eignir. Kröfurnar þyrfti hins vegar að afskrifa að stórum hluta til þess að aflétta mætti höft- unum. „Ég sé fyrir mér að hægt sé að ganga í þetta verk á næstu mán- uðum og láta á þetta reyna. Þar eigum við að hafa í handraðanum ýtrustu kröfur,“ sagði hann. Gangi samningar of hægt ætti ekki að hika við að færa viðkomandi fjármála- stofnanir úr slita- í gjaldþrotameð- ferð og beita skattlagningarvaldi til að knýja fram hagstæða niðurstöðu. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, benti hins vegar á að eignarréttur kröfuhafa væri varinn í stjórnarskrá og læra ætti af mistökum sem ríkisstjórnin hefði gert í Magma-málinu. „Það er ekki hægt að gera eignir útlendinga upp að vild,“ sagði hann. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sagði þverpólitíska sátt um meginlínur við afnám hafta fagn- aðarefni og vísaði í þeim efnum til starfa þverpólitískrar nefndar og áætlunar um afnám hafta. „En síðan hafa verið nefndar ýmsar leiðir í því hvernig losa ætti um þessar krónu- eignir og koma þeim úr landi. Og það hefur alltaf legið fyrir að þær yrðu verðfelldar á þeirri leið. Þar nefndum við upphaflega myndar- legan útgönguskatt, en aðrar leiðir sem hafa verið nefndar eru eins konar viðskipti með eignirnar eða bara samningar.“ Mikilvægast væri að ná samhljómi um þær leið- ir sem fara ætti. Síðan væri hægt að fara að tala um framtíðina í efna- hagsstefnunni. „Því ljóst er að þótt við losnum við krónueignirnar og afnemum höftin þá er íslenska krón- an enn þá lítill gjaldmiðill í alþjóða- hagkerfi og þess vegna þarf að kort- leggja þá möguleika.“ Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnar formaður Bjartrar fram- tíðar, sagði afnám hafta kalla á sam- starf allra flokka. „Fólk leyfir sér að tala mjög óábyrgt af því að það eru höft. Við þurfum að velta því fyrir okkur hvert það leiðir okkur. Ég er ekki viss um að það sé góður staður,“ sagði hún líka. Smári McCarthy, einn kapteina Pírata, sagðist ekki trúaður á vald- beitingarúrræði í tengslum við krónueignir kröfuhafa, þótt hann styddi hugmyndir um útgönguskatta. Til að leysa vandann þyrfti líka að fá aflandskrónur með meiri hraða inn í landið, svo sem með áframhaldandi uppboðum Seðlabankans og afslátt- arleiðum í tengslum við fjárfesting- ar. olikr@frettabladid.is 2013 Frá kr. 129.900 með með fullu fæði 20 nátta ferð – einstakt tækifæri Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 20 nátta ferð til Benidorm þann 8 maí. Í boði er m.a. Mont Park hótelið með fullu fæði. Mikil dagskrá í boði. Benidorm Eldri borgara ferð 8. maí Hotel Mont Park *** Kr. 129.900 - með fullu fæði. Netverð á mann m.v. gistingu í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli kr. 26.000. Vinsamlega skráið ykkur á www.islandsstofa.is Magma-mistök að kreista kröfuhafa Formenn stærstu flokka ræddu í gær afnám gjaldeyrishafta og framtíðarstefnu í peningamálum. Fundinn héldu VÍB og Kauphöllin. Önnur Magma-mistök í upp- siglingu sagði formaður Samfylkingar um niðurfærslu eigna kröfuhafa bankanna. Forsvarsmenn flokkanna sex sem mest fylgis njóta sam- kvæmt skoðanakönnunum og tóku þátt í fundi VÍB og Kaup- hallar Íslands í gær eru meðmæltir fríverslunarsamningi Íslands og Kína. Smári McCarthy, einn oddvita Pírata, sagðist þó sakna ákvæða sem tryggðu fríverslun í upplýsingatæknigeira, svona í ljósi þess að ritskoðun væri viðhöfð í Kína. Þá kvaðst Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, styðja frí- verslunarsamning að því tilskyldu að hann yrði nógu góður og fullnægði þörfum landsins á sviði vinnuverndar. „Við viljum ekki setja íslensk fyrirtæki í þá stöðu að vera í opinni samkeppni við fyrirtæki sem þræla út börnum eða nota pólitíska fanga sem vinnuafl.“ Í svipaðan streng tók Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, sem hún sagði róttækan mannréttindaflokk. Mikilvægt væri að stuðla ekki að eða vera í samkeppni við barnaþrælkara. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokks, sagðist mjög hlynntur samningnum við Kína. Áhugi Kínverja á að semja við Íslendinga væri áminning um gríðarleg tækifæri hér á landi. Um leið benti Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á að þótt í augnablikinu hallaði á Íslendinga í tollaniðurfellingu vegna viðskipta landanna myndi það snúast við. „Við höfum verið með um 40 prósenta vöxt í útflutningi til Kína ár eftir ár og þannig mun það halda áfram að þróast ef við berum gæfu til að grípa tækifærin sem verða á þessu markaðssvæði,“ segir hann. Þá áréttaði Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, að tækifærin í fríverslunarsamningnum væru á afmörkuðum sviðum. Ekki væri um að ræða réttindi til landa eða eigna- kaupa. „Þannig að við höfum stutt þetta.“ Sjá tækifæri í fríverslunarsamningi en slá um leið varnagla FORMENN FLOKKA Í HÖRPU Í opnunarræðu sagði forstjóri Kauphallarinnar óvissu vegna hrunsins ekki nægja sem skýringu til langframa. Hætt væri við að fjárfestar litu á óvisst umhverfi sem þjóðareinkenni. Það hamlaði fjárfestingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SAMFÉLAGSMÁL Mæðradagurinn verður haldinn hátíðlegur þann 12. maí næstkomandi. Í tilefni dags- ins verður hið svokallað Mæðrablóm selt sem hluti af fjáröflun fyrir menntasjóð Mæðrastyrksnefnd- ar Reykjavíkur. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja efnalitlar konur og mæður til náms. Á yfir- standandi námsári styrkti hann um fimmtán konur til náms. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn stendur fyrir sölu á Mæðrablóminu, sem er að þessu sinni hannað af Snæfríði Þorsteinsdóttur. Hópur stuðningsmanna menntasjóðsins safnaðist saman í gær til þess að útbúa eintök af blóminu sem verður eins og áður sagði selt á Mæðradeginum, 12. maí. - mþl Fjáröflun fyrir menntasjóð Mæðrastyrksnefndar brátt af stað: Mæðradagurinn undirbúinn HALLVEIGARSTÖÐUM Í GÆR Hópur stuðningsmanna menntasjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur safnaðist saman á Hallveigarstöðum í gær til þess að útbúa eintök af Mæðrablóminu 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.