Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 17
Alvarlegir gallar á lögheimilisskráningu landsins Þjóðskrá Íslands í framtíðinni? Á ekki við um sjálfráða einstaklinga FORSJÁ Forsjár- aðili/ar BLÓÐTENGSL Faðir Móðir Faðir/móðir Faðir/móðir „LÖGFORELDRAR“ EINSTAKLINGUR Maki í Þjóðskrá Maki ekki í Þjóðskrá MAKI BREYTINGAR ● Fæðing ● Feðrun ● Forsjárbreyting ● Ættleiðing ● Hjúskapur og skilnaður ● Lögræðisbreyting Á einungis við ef einstaklingur er sviptur lögræði Lögráðamaður SKRÁNING HJÁ IRR Sömu einstaklingar geta verið blóðfor- eldrar, lögforeldrar, forsjáraðilar barna Sú krafa að stjórnvöld endurskoði lög um lögheimilisskráningu barna sem búa til skiptis hjá báðum for- eldrum hefur verið hávær undan- farið. Málið hefur ratað inn á þing, en stofnaður var starfshópur til að skoða möguleikana og hvað það hefði í för með sér að skrá barn á tvö lögheimili. Ekki hægt að skrá tvö heimili Þjóðskrá hefur ekki möguleika á að skrá barn á tvö heimili af því að kerfið býður ekki upp á það. Sama vandamál skapast þegar annar makinn þarf að flytjast búferl- um vegna vinnu sinnar, því sam- kvæmt lögum þurfa hjón að eiga sama lögheimili. Fólkið slítur því samvistum á pappírnum, einfald- lega vegna þess að annar möguleiki er ekki í stöðunni. Einn megintil- gangur Þjóðskrár er að vita hvar fólk býr. Með lögum sem þessum má þó segja að verið sé beinlínis að hvetja fólk til þess að fara á svig við lögin, hvort sem það er að skrá sig úr hjónabandi eða að þykjast búa á öðrum stað en það gerir. Engin blóðtengsl við foreldra Blóðtengsl barna við foreldra sína er heldur ekki hægt að skrá með neinum hætti hjá Þjóðskrá. Þegar hjón skilja eða forsjá barns er skipt verður því að rjúfa tengsl annars foreldrisins við barnið í skráning- unni, þar sem einungis er hægt að skrá eitt lögheimili. Forsvarsmenn Þjóðskrár segja þetta afar slæmt því engin leið er til að ná í upplýsingar um líf- fræðilega foreldra barns án þess að skoða fæðingarskrár í frumrit- um. Þetta ræðst af því að Þjóðskrá styðst við þrjátíu ára gamalt tölvu- kerfi. Sigrún J. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Þjóðskrár, sagði í samtali við Fréttablaðið í síðasta mánuði að henni liði eins og hún gengi inn í fornöld þegar hún kæmi til vinnu. Lítið hefur breyst í lagaumhverfi Þjóðskrár síðan 1952 þegar lög um hana voru sett. Það endurspeglast meðal annars í vandanum sem blas- ir við öllum þeim lykilstofnunum samfélagsins sem reiða sig á upp- lýsingar þaðan. Fólk skráð barnlaust og á rangt heimili Tölvukerfi Þjóðskrár getur ekki skráð barn með tvö lögheimili eða tengsl við líf- foreldra, þótt lögum þess efnis væri breytt. Engin leið er fyrir TR að sjá hverjir búa saman í íbúðum fjölbýlishúsa. Hundruð ábendingar um röng lögheimili árlega. FORELDRAR Í RAUN EN ÞÓ EKKI Í KERFINU Þau börn sem ekki hafa lögheimili hjá báðum foreldrum sínum eru einungis skráð með eitt foreldri í Þjóðskrá. Ekki er hægt að skrá blóðtengsl í skránni sökum annmarka á kerfinu. NORDICPHOTOS/GETTY Samkvæmt forsvarsmönnum Þjóð- skrár er afar brýnt að uppfæra skráningarkerfi stofnunarinnar, meðal annars til að geta skráð: ● Vensl barna við líffræðilega foreldra ● Vensl barna við lögforeldra ● Forsjá barna ● Íbúa í fjölbýlishúsum niður á íbúðir ➜ Brýnar úrbætur á kerfi Þjóðskrár ● Ekki er nauðsynlegt að fá samþykki eigenda íbúða til að skrá lögheimili sitt þar. Engum leigusamningi þarf að framvísa, né neinu öðru sem stað- festir að viðkomandi búi á því heimili sem hann vill skrá sig á. Hver sem er getur því skráð sig hvar sem er, svo framarlega sem um sé að ræða löggilda íbúð. Þjóðskrá hefur enga lagalega heimild til að hafna flutningi lögheimilis. ● Hvorki er heimilt að skrá lögheimili sitt í atvinnuhúsnæði né sumarbú- stað, en engu að síður er staðreynd að fjöldi fólks býr í slíku húsnæði. ● Nokkur hundruð ábendingar um röng lögheimili berast Þjóðskrá á ári hverju. Það er þó meira en að segja það að sannreyna hvort ábendingin eigi við rök að styðjast, sökum þeirra annmarka sem einkenna kerfið. ➜ Hægt að skrá lögheim- ili hjá hverjum sem er Þjóðskrá getur ekki náð utan íbúafjölda í stökum íbúðum fjöl- býlishúsa. Sem dæmi má taka íbúðablokkina Æsufell 6. Þar eru 42 íbúðir skráðar í Fasteignaskrá og alls 85 einstaklingar með lögheimili. Vegna tæknilegra annmarka í kerfi Þjóðskrár er þó engin leið að skrá hverjir búa saman í íbúðum og eru því allir 85 einungis skráðir í húsnúmerið. Þetta skapar vandkvæði innan kerfisins, þá sér í lagi hjá trygginga- og félagsmálayfirvöldum þar sem húsnæðisbætur fara eftir íbúafjölda hverrar íbúðar. Tryggingastofnun (TR) greiðir allar greiðslur á grundvelli lögheimilis. „Það væri því til mikilla hagsbóta að geta staðsett greiðsluþega og aðra sem þeim tengjast við ákveðið íbúðarnúmer. Væri viðkomandi skráður á íbúðarnúmer þar sem aðrir eru skráðir og ljóst að engin tengsl eru milli aðila, þá myndi það auðvelda Tryggingastofnun að leiðrétta skráningu sem getur leitt til leiðréttingar á greiðslum viðkomandi hjá TR,“ segir í svari Tryggingastofnunar við fyrirspurn Fréttablaðsins. ➜ Engin leið að vita hversu margir búa saman í íbúðum fjölbýlishúsa | FRÉTTASKÝRING |24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR 17 1 2 3 4VANDI ÞJÓÐSKRÁR Sunna Valgerðardóttir sunna@frettabladid.is Volkswagen Amarok sameinar kosti lúxusjeppa og pallbíls og býður upp á mikla notkunarmöguleika fyrir fjölbreyttan lífsstíl. Amarok fæst nú með 2.0 TDI 180 hestafla dísilvél með 8 gíra sjálfskiptingu og 3.200 kg dráttargetu. Eyðsla 7,6 lítrar/100km.* *Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Amarok Double Cab 2.0 TDI www.volkswagen.is Volkswagen Amarok Fágaður og fullur af orku Komdu í reynsluakstur Amarok Double Cab 2.0 TDI 180 hestöfl kostar frá 7.590.000 kr. (6.047.809 kr. án vsk) Atvinnubílar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.