Fréttablaðið - 24.04.2013, Síða 22
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 22
Með lögum um gjald-
eyris mál sem sett voru
fyrir réttu ári skóp
núverandi ríkisstjórn þá
samningsstöðu gagnvart
erlendum kröfuhöfum
föllnu viðskiptabank-
anna sem þjóðin nýtur
nú í dag og allir stjórn-
málaflokkar ætla sér að
nýta á næsta kjörtíma-
bili. Umræðan í samfé-
laginu minnir aftur á
móti mest á bollaleggingar um
hvernig eigi að ráðstafa stórum
happdrættisvinningi eða þann
ágæta leik sem kenndur er við
frúna í Hamborg.
Að vísu er kálið ekki sopið,
en þegar tekst að semja við
kröfuhafana, hvað á þá að gera
við peningana? Verða það jafn
margir milljarðar og þeir sem
mestu lofa segja okkur? Er þeim
örugglega best varið með því að
lækka skuldir allra sem skuld-
uðu árið 2008? Eða væri þeim
betur varið í að reka sjúkra húsin
á Ísafirði, Sauðárkróki, Húsa-
vík, Neskaupstað og Vestmanna-
eyjum eða til að hækka bætur til
öryrkja og einstæðra foreldra?
Þreföldun barna- og vaxtabóta?
Eins og málinu hefur verið stillt
upp er eins og að sjálfsagt og
eðlilegt sé að fjármununum verði
varið í almenna skuldalækk-
un. Hvers vegna er þeim best
varið svo? Er eitthvert vit í því
að lækka skuldir mold-
ríkra einstaklinga bara
af því að þeir skulduðu
árið 2008? Jafnvel þó svo
skuldir allra skuldara
verði lækkaðar um 10%
verður þá ekki stór hópur
áfram í vand ræðum?
Hvernig á að hjálpa
þeim? Þarf ekki að láta
sem mest renna til þeirra
sem mest þurfa á skulda-
lækkunum að halda?
Í óðagoti þeirra sem vilja skil-
yrðislausa skuldalækkun allra,
jafnt þeirra sem hennar þurfa
með og þeirra sem þurfa ekki á
henni að halda, þá hefur algjör-
lega skort málefnalega umræðu
um hvað kemur fólki best. Hvort
það komi þeim ekki betur, sem
eru í verulegum vandræðum, að
fá hærri vaxtabætur og hærri
barnabætur? Þær leiðir eru mun
líklegri til að tryggja að fjár-
munirnir renni til þeirra sem
þurfa mest á þeim að halda og
fleiri losni úr skuldaklafanum.
Húseignir hækka í verði
Forsendubresturinn (gengis-
og vísitöluhækkunin) sem varð
þegar lánin hækkuðu, mun með
tíð og tíma leiða til þess að hús-
eignirnar sem lánin hvíla á,
hækka í verði. Þær munu ein-
faldlega hækka í verði vegna
þeirrar verðbólgu sem forsendu-
bresturinn olli. Þetta gerist ekki
strax og það gerist ekki jafnt
yfir línuna. Spurningin sem
við hljótum þá að spyrja okkur
er, eiga allir þeir einstaklingar
sem fengu lánin sín lækkuð um
10% einnig að fá að njóta verð-
hækkunarinnar á húsnæðinu,
af völdum sama forsendubrests,
þegar þeir selja það?
Og svo það sem flestir forðast
að tala um, hvernig á að koma í
veg fyrir að svona gerist aftur?
Þurfum við að búast við að
svona ríði yfir með reglulegu
millibili? Meðan gjald miðillinn
er króna, hvort sem hún er verð-
tryggð eða óverðtryggð, þá er
eins líklegt að hamfarir með
álíka forsendubresti og urðu
2008 hvolfist yfir okkur með
reglubundnum hætti í fram-
tíðinni.
Hvað ætlarðu að gera
við peningana sem frúin
í Hamborg gaf þér?
1. líter
HUMARSÚPA
FISKIKÓNGSINS HUMARKLÆR
Opið í dag
07.00-18.15
Lokað
sumardaginn fyrsta
Opið föstudag
07.00-18.30
Laugardag
10.00-15.00
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • www.fiskikongurinn.is
1. líter
SJÁVARRÉTTASÚPA
FISKIKÓNGSINS
Gleðilegt sumar
Fögnum sumrinu
Stærð 24-30
Kreppan hefur varpað ljósi
á nauðsyn róttækra breyt-
inga á íslensku samfélagi.
Undanfarna áratugi hefur
ójöfnuður verið aukinn
kerfisbundið með auknu
fáveldi í íslenskum fjár-
málaheimi. Almenningur
hefur verið miskunnar laust
féflettur með verðbótum
og vaxtaokri á húsnæðis-
lánum. Auðmenn koma
hundraða milljarða gróða
í skjól meðan enn stærri
skuldum er velt yfir á
almenning gegnum ríkissjóð, líf-
eyrissjóði og húsnæðisskuldir. Auk-
inn hagvöxtur mun að óbreyttu ekki
bæta þetta ástand heldur þveröfugt.
Skuldir heimilanna
Nauðsynlegt er að létta á byrði
heimilanna í landinu með því að
taka kúfinn af húsnæðislánum
sem hafa stökkbreyst í kreppunni
um leið og greiðslugeta flestra
hefur minnkað. Þó er enn þá mikil-
vægara að huga að nýju félagslegu
kerfi til fjármögnunar húsnæðis
fyrir almenning. Með því að hætta
að sækja fé að láni á okurvöxtum á
markaði til húsnæðislána en safna
þess í stað samfélagslegu eigin fé
til að lána til húsnæðiskaupa að
vissu hámarki án vaxta og verðbóta
er hægt að spara miklar greiðslur
frá almenningi til auðmanna.
Lífeyrissjóðir og framfærslutrygging
Alþýðufylkingin vill vinna að sam-
komulagi um algera upp stokkun
lífeyriskerfisins. Grund völlur
þess gæti verið nokkurra ára
aðlögun að sömu lífeyris-
réttindum fyrir alla sem
fjármögnuð væri gegn-
um skattkerfið með óverulegri
sjóð söfnun. Greiðslur í lífeyris-
sjóði verði stöðvaðar og hætt að
þvinga fólk til að kaupa sér ótrygg
lífeyris réttindi með greiðslum í
fjárfestingasjóði. Einfalda þarf líf-
eyriskerfið og koma á samræmdri
framfærslutryggingu fyrir alla
sem ekki geta unnið fyrir sér á
vinnumarkaði.
Velferð og aukin lífsgæði
Alþýðufylkingin leggur sérstaka
áherslu á að endurreisa velferðar-
kerfið og þá sérstaklega heil-
brigðis kerfið. Byrjað verði á að
draga til baka þann mikla niður-
skurð sem átt hefur sér stað undan-
farin ár og vinda ofan af einka-
rekstri og viðskiptavæðingu í
kerfinu. Markmið heilbrigðiskerfis-
ins á að vera aukið heilbrigði þjóð-
arinnar en ekki gróði auðfélaga af
fjárfestingum og viðskiptum með
þjónustu. Efling velferðarkerfis-
ins verður aðeins kostuð með þeim
samfélagslega sparnaði sem felst í
félagsvæðingu í fjármálakerfinu.
Alþýðufylkingin
og kosningarnar
STJÓRNMÁL
Þorvaldur
Þorvaldsson
trésmiður, for-
maður Alþýðufylk-
ingarinnar
➜ Byrjað verði á að
draga til baka þann
mikla niðurskurð
sem átt hefur sér stað
undanfarin ár og
vinda ofan af einka-
rekstri og viðskipta-
væðingu í kerfi nu.
FJÁRMÁL
Bolli
Héðinsson
hagfræðingur
➜ Í óðagoti þeirra sem vilja
skilyrðislausa skuldalækkun
allra, jafnt þeirra sem
hennar þurfa með og þeirra
sem þurfa ekki á henni að
halda, þá hefur algjörlega
skort málefnalega umræðu
um hvað kemur fólki best.
Hvort það komi þeim ekki
betur, sem eru í verulegum
vandræðum, að fá hærri
vaxtabætur og hærri barna-
bætur?