Fréttablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 25
Umhverfisátak
Til að spara orku í eldhúsinu er best
að nota þá stærð af potti sem passar
hellunni. Hafið lokið á pottinum á
meðan á suðu stendur. Notið ekki
meira vatn en nauðsynlega þarf.
MIKILL ÁHUGI
Helgi Þór Þorbergsson
hefur nýlega unnið við
klippingu á heimildar-
mynd um fótboltaáhuga
í Fortaleza í Brasilíu þar
sem hann býr. Borgin
verður ein af gestgjöf-
unum á HM 2014.
Helgi Þór starfar við myndbands- og kvikmyndaklippingar og hefur nýverið klippt heimildarmynd um
fótboltaáhugann í borginni í tengslum
við heimsmeistarakeppnina. „Hér er allt
komið á fullt fyrir HM, enda mikill áhugi á
fótbolta. Framkvæmdir við gatnagerð eru
á fullu en þrír leikir í álfukeppninni, sem er
nokkurs konar æfing fyrir sjálfa keppnina,
fara fram hér.“ Helgi Þór er klippari aug-
lýsinga, heimildarmynda, kvikmynda og
fleira. Hann kom fyrst til borgarinnar með
vini sínum sem hafði verið skiptinemi og
féll fyrir henni.
Fortaleza er strandborg og staðsett í
norðausturhluta Brasilíu. Þar búa yfir tvær
milljónir íbúa. Helgi Þór segir að þarna sé
gott veður árið um kring, 30 stig á daginn
og 25 stig um nætur. „Borgin hefur verið
í miklum vexti undanfarin ár og hér eru
mörg tækifæri,“ segir Helgi Þór.
Þegar hann er spurður hvort ferða-
mannastraumur sé mikill segir hann það
vera og muni væntanlega aukast með
HM. „Flestir ferðamenn koma til að njóta
strandanna sem eru margar og fallegar hér
og í nágrannabæjum. Hér eru einnig sér-
staklega góðar aðstæður fyrir seglbretti og
„kitesurf“, hlýr sjór og alltaf vindur. Borgin
býður einnig upp á skemmtilega strand-
götu með veitingastöðum, íþróttaaðstöðu
og útimarkaði. Þá er hér stór menningar-
miðstöð með þjóðminjasafni og fleiri lista-
söfnum. Í nágrenninu er líka skógi vaxið
fjallahérað með mörgum fossum og fallegu
útsýni.
Þegar hann er spurður um hættur,
svarar hann: „Það eru hverfi sem eru mjög
hættuleg en yfirleitt er frekar rólegt á
helstu ferðamannastöðum. Samt er dálítið
mikið um þjófnaði og því best að bera ekki
mikið á sér, eins og armbandsúr og skart-
gripi.“
Ekki er úr vegi að spyrja um uppáhalds-
mat á þessum slóðum? „Ferskur grillaður
sirigado-fiskur, þykk flök sem verða stökk
að utan og djúsí að innan. Einnig er ég
mikið fyrir feijoada sem er nánast þjóðar-
réttur Brasilíu, pottréttur úr svörtum
baunum með alls kyns svínakjöti og krydd-
pylsum,“ svarar hann.
Færðu heimþrá? „Nei, það er lítið um
það, sakna helst bjartra sumarnótta fyrir
utan fjölskyldu og vini að sjálfsögðu, hérna
sest sólin alltaf kl. 17.30 og dimmt kl. 18.“
■ elin@365.is
BRASILÍA UNDIRBÝR HM
UPPGANGUR Helgi Þór Þorbergsson hefur búið í Brasilíu í sautján ár og líkar
vel þar. Borgin hans heitir Fortaleza og er fimmta stærsta borg Brasilíu. Hún
verður ein af gestgjöfunum á HM í fótbolta á næsta ári.
HM 2014
Keppnin FIFA
WORLD CUP fer
fram í Brasilíu
12. júní til 13. júlí
2014. Mikill áhugi
er fyrir HM í
Brasilíu, enda
margir góðir
fótboltamenn
þar í landi.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Save the Children á Íslandi
15% KYNNINGARAFSLÁTTURÍ APRÍL
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Glæsilegar hljóðlátar viftur
og hitablásarar með
air multiplier tækni.