Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 26
FÓLK|FERÐIR Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! Kíktu á vefinn jsb.is Rétta leiðin til að breyta um lífsstíl, komast í kjörþ gd og gott form. yn 16 vikna námskeið – 3x í viku – mo un-, d - kvöldtímarða 8 e rg ag og ng - mataræði.70 mín 2x í viku, salur + tæki. Vigtun - mæliTT3 fyrir 16-25 ára. Frjáls mæting í opna kerfinu og tækjasal. skeið. m8 eða 16 vikna ná Kynntu þér frábæran árangur á jsb.is! ins 15 í hóp.rð. AðeÆfingakerfi Báru Magnúsdóttur - aðaláherslan lögð á styrk, liðleika og góðan líkamsbu 6 vikna námskeið 2x í viku – morgun- og síðdegistímar. S&S stutt og strangt Markvissar æfingar í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi. Hámark 6 í hóp. Tilvalin leið til að koma sér af stað! r. 2 vikn – x í vi x í viku í 4 vikua námskeið 5 ku eða 3 Skráning alltaf í gangi. Farið í gegnum röð af yogastöðum í heitum sal. Teygjanleiki vöðvanna aukinn, mikill sviti og vellíðan. 6 vikna námskeið – 2x í víku kl 18:30. Líkamsrækt á rólegri nótunum fyrir konur 60 ára og eldri. í viku kl6 vikna námskeið - 2x 9:30. Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Frábær leið til líkamlegrar og andlegrar uppbyggingar. 6 vikur – 2x í viku – morgun-, hádegis- og síðdegistímar. hópa líkamans.stu vöðvaKrefjandi æfingakerfi sem stuðlar að betri líkamsbeitingu og þjálfar alla hel 6 vikur – 2x í viku – síðdegistímar. stelpur 16-25 ára . TT A- kranes morgun- og síðdegistímar fylgir öllum námskeiðum! Vertu í S-inu þínu í sumar! Innritun hafin - sími 581 3730 Ný námskeið hefjast 29. apríl FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Fréttir af nauðgunum og ofbeldi á Indlandi hafa fælt konur frá því að heimsækja landið. Kven- kyns ferðamönnum frá Kanada, Bandaríkj- unum og Ástr- alíu hefur fækkað um 72% á síðustu þremur mánuðum. Í heildina fækkaði ferðamönnum til Indlands um 25% í fyrra. KONUR ÞORA EKKI TIL INDLANDS GÖNGUM MEÐ GÁT Um miðjan maí kynnir Ferðafélag Íslands nýtt áhættumat fyrir allar gönguferðir á Esju, að sögn Helgu. Við sama tækifæri verður kynnt áhættumat fyrir fjöl- margar aðrar göngu- leiðir. Esjan er æfingafjall Reykvíkinga, brött, há og alls ekki á hvers manns færi,“ segir Helga Garðarsdóttir, einn þrautreyndra fararstjóra Ferðafélags Íslands. Esjan gegnir stóru hlutverki hjá Ferðafélaginu í sumar því eina viku í júlí verður gengið á Esjuna alla daga klukkan 18. Þá er ótalið verkefnið Esjan eftir vinnu, sem er sex vikna göngu- verkefni með fararstjórn frá miðjum júní, Esjudagur FÍ seinnipartinn í júní og Esjuhappdrætti FÍ 15. maí þegar allir sem skrifa nafn sitt í gestabækur Ferða- félagsins fara í pott sem dregið verður úr í lok ágúst. „Alls eru 25 gönguleiðir á Esjuna en vinsælastar eru leiðirnar á Þverfells- horn, Kerhólakamb, Gunnlaugsskarð og Kistufell,“ útskýrir Helga. Hún segir Esjuna engan bæjarhól þótt menn taki stundum til orða að þeir ætli „að skreppa á Esjuna“. „Helst ber að varast veður og brött klettabeltin sem oft reynast lofthræddum mikil raun. Til að auka þol láta óvanir sér nægja að ganga upp fyrir læk og síðar upp að Steini. Vanir skjótast upp Esjuna með léttu og sumir setja steina í bakpokann til að auka enn á áreynsluna.“ Helga segir töfra Esjunnar felast í fag- urri náttúru, fjölbreyttum gönguleiðum og stórbrotnu útsýni yfir höfuðborgina og nágrenni. „Esjan er kjörin til útivistar og þegar fólk vill reyna á sig enda útheimtir hún mikla áreynslu. Því er mikilvægt að hver og einn fari á sínum hraða, upp smátt og smátt og lengra næst.“ Að sögn Helgu eykst umferð á Esju hratt með hækkandi sól enda fari þá margir að undirbúa lengri göngur sum- arsins og byggja upp þol. „Á vorin er jarðvegurinn við- kvæmur og því þarf að ganga um með gát. Öruggasta leiðin er upp stíginn á Þverfellshorn og að fara upp að Steini en varhugavert er að fara ofar á meðan snjór er enn í fjallinu vegna bleytu og hálku. Þá skyldi ekki farið á Esjuna í norðanátt og þegar sér í kuldakúf að ofan því þá er ískalt uppi.“ ■ thordis@365.is ESJAN ALLA DAGA SUMARGÖNGUR Sumarið kemur á morgun og á sumrin leggja margir land undir fót. Í túnfæti Reykjavíkur lúrir Esjan há, ein fyrsta ögrun göngufólks. Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands bjóða þriðja árið í röð upp á stuttar og fræðandi gönguferðir undir yfirskriftinni „Með fróð- leik í fararnesti“. Önnur ferðin á þessu vori verður farin á laugardag kl. 10. Gísli Már Gíslason, pró- fessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suður- nesjum, leiða ferð á slóðir kræklingsins í Hvalfirði. Kræklingi verður safnað og fræðst um hann og verkun hans. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. KRÆKLINGAFERÐ Í HVALFJÖRÐ Mælt er með því að þátttakendur taki með sér stígvél og ílát fyrir kræk- ling. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.