Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 27

Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 27
Kynningarblað Ævintýraleg maraþon, þjálfunarráð, vítamín, ný tækni í skóhönnun, flott föt. HLAUPASKÓR MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 &FATNAÐUR Í Útilífi er hægt að nálgast öll aðal- merkin í hlaupunum. Þar eru bæði stærstu merkin, eins og Nike, Adi- das, ASICS og Under Armor, og einnig gott úrval frá merkjum eins og Puma, Brooks, CW-X, 2XU, Helly Hansen, The North Face, Com- pressport, Seger og Camelbak. „Úrval hlaupavara er mikið í öllum verslunum Útilífs en nú höfum við tekið saman allar hlaupavörurnar okkar á einn stað fremst í verslun okkar í Kringlunni og gert þær þannig enn aðgengi- legri viðskiptavinum,“ segir Svan- hildur Kristjónsdóttir, innkaupa- stjóri Útilífs. „Í hlaupadeildinni leggjum við áherslu á gott úrval og bjóð- um upp á sérhæfingu í vöruúrval- inu. Þar má til dæmis nefna svo- kallaðar Compression-vörur eða aðhaldsvörur fyrir hlaupara. Þær gera þeim kleift að hlaupa leng- ur og halda betur út þar sem Com- pression-fatnaðurinn þrýstir vel að öllum vöðvum og eykur blóðflæðið. Einnig má fá hjá Útilífi hlaupavörur sem eru hugsaðar fyrir utanvega- hlaup, til dæmis frá Helly Hansen og The North Face auk stóru merkj- anna. Við munum einnig bjóða reglu- lega upp á faglega ráðgjöf í hlaupa- horninu, frá fulltrúum birgjanna okkar en við leggjum mikla áherslu á að starfsfólk okkar sé vel þjálfað og þekki vöruna sem það selur,“ segir Svanhildur. „Við leggjum metn- að okkar í að geta veitt sem besta þjónustu. Einkunnarorð okkar eru: Frábært úrval á einum stað og allt í einni ferð fyrir hlauparann.“ Frábært úrval – allt fyrir hlauparann á einum stað Verslunin Útilíf leggur áherslu á góða þjónustu við viðskiptavini. Nú hefur verið sett upp sérstakt hlaupahorn í verslun Útilífs í Kringlunni þar sem hlauparinn getur nálgast allt sem þarf í hlaupin á einum stað í einni ferð. GEFÐU Í GOTT MÁLEFNI OG FÁÐU AFSLÁTT AF NÝJUM SKÓM Næstu daga geta viðskiptavinir komið með gömlu hlaupaskóna sína í verslunina til okkar og fengið tuttugu prósenta afslátt af nýjum hlaupaskóm. Gömlu skónum munum við safna saman og gefa í Rauða Krossinn og þangað til hengjum við þá upp í loft hér í búðinni til að koma fólki í hlaupagírinn. Frábært úrval á einum stað og allt í einni ferð fyrir hlauparann í Útilífi Kringlunni. MYND/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.