Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 30
KYNNING − AUGLÝSINGHlaupaskór & fatnaður MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 20134 Allir geta fundið vítamín við sitt hæfi innan Vitabiotics-línunnar. Vítamínin eru hugsuð á þann veg að fólk geti tekið eina vítamíntöflu sem inniheldur allt sem viðkomandi þarf á að halda. Allar töflurnar eru með sama steinefna- og fjölvítam- íngrunninn, þannig að allir fá nauðsynleg grunn- vítamín sem líkaminn þarfnast, en hver og ein teg- und inniheldur svo alls kyns aukavítamín og bæti- efni sem henta þörfum markhópsins hverju sinni. Til dæmis eru til töflur fyrir konur og karla á öllum aldri, heilann og minnið, íþróttafólk, ófrískar konur, börn, konur á breytingaskeiði og svo mætti lengi telja. Vitabiotics-vítamínin eru þau mest seldu á Bret- landi. Þá hefur fyrirtækið tvisvar sinnum hlotið kon- unglegu verðlaunin „The Queen’s Awards for En- terprise“ í Bretlandi. Einstök vítamín frá Vitabiotics hafa einnig hlotið ýmis verðlaun, til dæmis frá Boots- keðjunni í Bretlandi. Vitabiotics-vítamínin fást í flestum apótekum sem og völdum dagvöruverslunum eins og Krónunni, Hagkaupum og Fjarðarkaupum. Hvaða vítamín hentar þér? Allt í einni töflu Maraþonhlaup er mikil þolraun sem krefst aga og undirbúnings en nauðsynlegt er að byggja líkamann hægt og rólega upp fyrir síaukin átök. Þótt einstaka dæmi séu um það í sögunni að fólk hafi hlaup- ið maraþon án þess að æfa sig sérstaklega er það alls ekki til eftir- breytni. „Almennt er mælt með því að fólk æfi skipulega í sextán vikur eða um það bil fjóra mánuði fyrir maraþonhlaup. Þá er yfirleitt miðað við að fólk sé að hlaupa fjórum til sex sinnum í viku og að eitt hlaup í viku geti talist langhlaup,“ segir Andy Dixon, ritstjóri hlaupatíma- ritsins Runner ś World. „Samhliða hlaupaæfingunum þarf að huga að mataræðinu og auka kolvetnainntöku til að byggja upp glýkógenbirgðir en þær virka eins og bensín fyrir hlauparann. Eins þarf að hvíla vel á milli. Þá þarf að drekka hæfilega af vatni á meðan á hlaup- unum stendur og jafnvel íþróttagel og -drykki með glúkósa sem gefa nauðsynlega orku á lengri hlaupum.“ Ef undirbúningurinn er ekki nægjanlega góður eða ef undirliggjandi vandamál eru til staðar geta hlaupin verið varasöm. Því miður er alltaf eitthvað um að hlauparar fái hjarta- áfall og geta þá falin vandamál eða jafnvel ofdrykkja vatns verið orsökin. Eins er al- gengt að hlauparar þorni upp á leiðinni og er alltaf eitthvað um að þeir þurfi að hætta í miðju hlaupi vegna þess. Margir verða fyrir álagsmeiðslum og eru hælar, hné, ökklar, kálfar, sköflung- ar og mjaðmir þeir líkamspartar sem eru í mestri hættu. Þá kannast margir við að fá krampa vegna þreytu og ofþornunar. Við það stífna vöðvarnir og upplifir hlauparinn þá miklar kvalir. Þá er oft ekki um annað að ræða en að hætta hlaupunum. Með góðum undirbúningi er þó hægt að ná markmiðum sínum og njóta hlaupanna. Þeir sem stefna á að hlaupa 42 kílómetra í Reykja- víkurmaraþoninu 24. ágúst næst- komandi ættu því að fara að stunda markvissar æfingar enda tæpar átján vikur til stefnu. Heimild: www.bbc.co.uk Mælt með fjögurra mánaða undirbúningi WELLWOMAN SPORT&FITNESS WellWoman SPORT er alhliða fjölvítamín formúla fyrir aktívar konur á öllum aldri. Sport&fitness töflurnar innihalda góða samsetningu af mikilvægum næringarefnum sem hjálpa okkur að vernda okkar hefðbundnu næringu svo hún nýtist sem best í kringum æfingar. Vítamínið er sérhannað til að hjálpa konum að ná betri árangri í íþróttum og líkamsrækt jafnt sem daglegu lífi. Það minnkar þreytueinkenni, spornar við stressi og styður við ónæmiskerfið. . WELLMAN SPORT Wellman – vítamín og orka sérstaklega hannað fyrir karlmenn Wellman Sport er fyrir karlmenn sem vilja auka árangur sinn og viðhalda orku í daglegu lífi. Það er kraftmikil blanda af 28 bætiefnum, vísindalega samsettum til að gera karl- mönnum kleift að fullnýta orku sína. Helsti kostur Well- man Sport er að næringargildi þess er einkar öflugt. Það stuðlar að auknum þrótti og eflir ónæmiskerfið. Wellman Sport er þróað á grundvelli nýjustu rann- sókna hóps sérfræð- inga. Mörg atvinnu- mannalið í íþróttum nota Wellman Sport sem þátt í sinni þjálfun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.