Fréttablaðið - 24.04.2013, Side 32
KYNNING − AUGLÝSINGHávaðavarnir MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmaður auglýsinga: Sverr-
ir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.-
„Soundear er mælitæki sem mælir
hávaða í desibelum og sýnir hvenær
hávaðinn er orðinn óæskilega mik-
ill eða hreinlega kominn að hættu-
mörkum,“ útskýrir Bragi Kort hjá
Pfaff.
„Tækið er mjög einfalt í notk-
un, það er einfaldlega hengt upp á
vegg og því stungið í samband við
rafmagn. Þá er það stillt á þau há-
vaðatakmörk sem eiga við en tækið
sýnir með ljósum á hvaða stigi há-
vaðinn er. Um það bil fimm desibel-
um áður en því hávaðamarki sem
tækið er stillt á er náð kviknar gult
ljós og þegar mörkum er náð kvikn-
ar rautt ljós. Gæti ekki verið ein-
faldara,“ segir Bragi en tækið hefur
meðal annars reynst vel í skólum og
leikskólum.
„Krökkunum er kennt að þekkja
merkin frá tækinu, við gula ljósið
þurfi að draga niður í hávaðanum
og að rauða ljósið eigi ekki kvikna,
þá sé hávaðinn orðinn of mikill,“ út-
skýrir Bragi.
Tækið er í raun hugsað á staði
eins og leikskóla, skóla og mat-
sali vinnustaða en það hefur einn-
ig verið notað á skemmtistöðum
og börum. Þá eru einnig fáanlegar
útgáfur af tækinu sem hægt er að
tengja beint við hljóðkerfi þannig að
tækið til dæmis slökkvi á hljóðinu
þegar hávaðinn nær ákveðnu marki
eða stjórni hávaðanum þannig að
hann hækki ekki upp fyrir ákveð-
inn styrk.
„Vinnueftirlitið hefur farið fram
á að slíkur mælibúnaður sé settur
upp víða þar sem hávaði er mikill.
Slík tæki hafa verið á markaðnum
um tíma en við erum eina verslunin
sem selur Soundear. Frá sama fyrir-
tæki má einnig fá hugbúnað sem
mælir hávaða yfir ákveðið tímabil,
til dæmis í opnu skrifstofurými.
Þannig má fá skýrslu í lok dags um
það hvernig hávaðinn hefur verið.“
SoundEar framleiðir einnig
mælitæki sem mælir koltvísýring í
andrúmsloftinu (CO2).
Nánari upplýsingar er að finna á
www.soundear.com.
Rautt ljós í hávaða
Verslunin Pfaff selur sérstakt mælitæki sem metur hávaðann í umhverfinu og
gefur til kynna hvenær hættumörkum er náð. Tækin hafa reynst vel í leikskólum.
Bragi Kort hjá Pfaff með Soundear-mælitækið í leikskólanum Sólbrekku en rautt ljós kviknar á tækinu þegar hávaðinn nær hættu-
mörkum.
Umboðsmaður barna sendi mennta- og menningarmálaráðherra bréf í
desember á síðasta ári þar sem hann lýsti áhyggjum sínum vegna hávaða
í leik- og grunnskólum landsins.
Í bréfi Umboðsmanns kom meðal annars fram að hávaði í leik- og
grunnskólum færi oft yfir 85 desíbel, sem eru viðmiðunarmörk fullorð-
inna til að nota heyrnarhlífar við vinnu. Hann bendir á að eyru barna
séu viðkvæmari en fullorðinna, auk þess sem húsnæði og aðbúnaði í
skólum sé ábótavant hvað hljóðvist snertir. Allt þetta geri það að verk-
um að markmiðum laga um hljóðvist í slíkum stofnunum sé ekki hægt
að ná. Jafnframt spyr hann ráðherra hvernig börn eigi að stunda nám
við slíkar aðstæður.
Varðandi eftirlit og ábyrgð yfirvalda segir umboðsmaður að Heil-
brigðiseftirlitið hafi lítið sem ekkert frumkvæði að því að framkvæma
hávaðamælingar í skólum. Eins er gerð athugasemd við þær mælingar
sem framkvæmdar eru, hve lengi þær séu gerðar og í hvaða hæð mæl-
ingin fari fram.
Svo virðist sem foreldrar séu lítið meðvitaðir um hávaða í náms-
umhverfi barna sinna að mati Umboðsmanns og telur hann brýnt að
bæta þar úr með bættri upplýsingagjöf. Til dæmis með því að birta
niður stöður hávaðamælinga á heimasíðu, hengja upp á vegg og í frétta-
bréfum viðkomandi stofnana. Hann bendir einnig á að almenningur
geti óskað eftir mælingum hjá heilbrigðiseftirliti viðkomandi svæðis.
Að lokum hnykkir Umboðsmaður á því að hávaði geti valdið streitu
og haft verulega neikvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu barna. Þá
telur hann brýnt að setja lög og viðmið um hámarksfjölda nemenda sem
einn kennari megi bera ábyrgð á, en tilhneigingin hjá skólum eftir efna-
hagshrunið hafi verið að fjölga börnum og stækka bekki.
Hávaði í leik- og grunn-
skólum áhyggjuefni
hljóðtækni.is
bætt hljóðvist með íslenskri hönnun
www.hljóðtækni.is
Hljóðdempandi einingar
fyrir heimili og stofnanir
Hávaði skaðar heyrnina
Hlíðasmára 11 - Kópavogi - 534-9600www.heyrn.is
Heyrnarskerðing er varanleg
Verndaðu heyrnina á meðan þú hefur hana.
Tónlistarfólk notar heyrnarsíur sem dempa
hávaða án þess að þær breyti blöndun og tón-
blæ hljóðsins. Bjóðum fjölbreytt úrval bæði af
stöðluðum og sérsmíðuðum heyrnarsíum.
HÁVAÐI ER VARASAMUR
Heyrn er heyrnarþjónusta sem
hefur það að markmiði að allir
landsmenn heyri vel.
Stuðlað er að því með:
● Vandaðri heyrnarþjónustu
þar sem faglegar áherslur skipta
mestu máli. Faglærður heyrnar-
fræðingur með löggildingu.
● Fjölbreyttu úrvali heyrnar-
tækja sem búin eru nýjustu tækni
frá ReSound í Danmörku.
● Fræðslu og ráðgjöf um heyrn-
arvernd og heyrnarskerðingu.
● Góðu úrvali af heyrnarsíum til
að vernda heyrnina.
Talið er að um 16 prósent
jarðarbúa séu heyrnarskert.
Hávaði hefur skemmt heyrnina í
þriðjungi þeirra en hjá því hefði
mátt komast með forvörnum.
Margt bendir til þess að heyrnar-
skertum hafi fjölgað hlutfallslega
vegna vaxandi hávaða í umhverfi
okkar, svo sem frá tónlist, vélum
og umferð.
Eyrnasuð er oft fylgikvilli
heyrnarskerðingar sem hávaði
hefur valdið en það er ýlfur
eða sónn í eyrum eða höfði.
Eyrnasuðið getur horfið, en er
oft sleitulaust eða kemur og fer
tímabundið alla ævi. Oft geta
heyrnartæki hjálpað þeim sem
þjást af eyrnasuði.
Heyrn í Hlíðasmára 11, Kópavogi
hefur verið starfandi frá 2007 og
má nálgast allar nánari upp-
lýsingar í síma 534-9600 eða á
heimasíðunni okkar www.heyrn.