Fréttablaðið - 24.04.2013, Side 35
KYNNING − AUGLÝSING Hlaupaskór & fatnaður24. APRÍL 2013 MIÐVIKUDAGUR 5
Nike hefur lagt mikla áherslu á Nike Free Run síðastliðin ár. Skórnir eru afar sveigj-
anlegir, mjúkir og fisléttir. „Það sem
greinir Nike Free Run frá öðrum
hlaupa- og æfingaskóm er sú stað-
reynd að í þeim eru það fæturnir
sem stýra því hvernig niðurstigið
verður en ekki skórnir. Skórnir eru
sérstaklega hannaðir til þess að fæt-
urnir geti hreyfst á frjálsan og nátt-
úrulegan hátt,“ segir Elfa Arnar-
dóttir, markaðsstjóri smásölusviðs
Icepharma, sem er umboðsaðili
Nike á Íslandi.
Fæturnir styrkjast
Í Nike Free skóm er ekki byggt á eig-
inlegum stuðningi hringinn í kring
eins og fólk á kannski að venjast
heldur er tæknin hugsuð þannig að
með tímanum örvi þeir litlu
vöðvana í fótunum sem
gerir það að verkum
að fóturinn styrkist.
„Hlauparar þurfa
hins vegar að gefa
skónum tíma
því að álagið á rist, hæl og il verð-
ur meira en þeir eiga að venjast.
Ávinningurinn er sterkari fætur,“
segir Elfa.
Free Run-skórnir eru allir hugs-
aðir sem hlaupa- og æfingaskór.
„Við mælum hins vegar ekki með
því að fólk sé að hlaupa mikið meira
en tíu kílómetra í þeim í einu enda
eru þeir sem fyrr segir ekki styrktir.
Þeir eru hins vegar mjög slitsterkir.
Elsta parið mitt er þriggja ára og ég
geng enn þá í þeim,“ upplýsir Elfa.
Flottir við gallabuxur
Hún mælir eindregið með Nike Free
Run-skóm fyrir fólk sem stundar
alla almenna líkamsrækt svo sem
krossfit, bootcamp, pallatíma og
dans. Eins í skokk og gönguferðir.
„Það besta við Nike Free Run-skó er
þó það að þeir eru ótrúlega falleg-
ir á fæti og eru margir sem nota þá
við gallabuxur og jafnvel fínni
klæðnað. Þetta er í fyrsta
skipti í lengri tíma sem það
þykir f lott að vera í hlaupa-
skóm við gallabuxur og það
gleður okkur mikið,“ segir
Elfa.
Þrjár gerðir
Nike Free Run-skór
koma í þremur út-
gáfum og er litaúrvalið
að sögn Elfu endalaust. „Um
er að ræða Nike Free 3.0, 4.0
og 5.0. Munurinn liggur í þykkt
og sveigjanleika botnanna. 3.0 er
nettastur á fæti en hann hefur líka
þynnsta botninn. Hann er sömu-
leiðis sveigjanlegastur og er hægt að
beygja skóinn í heilan hring. Hann
er ekki með lausa tungu og minn-
ir svolítið á sokk að því leyti að eig-
andinn smeygir sér ofan í hann.
5.0 er með þykkasta botninn sem
þýðir að hann er mýkstur en hefur
um leið minnsta sveigjanleikann.
Hægt er að beygja hann í um það
bil hálfan hring og tungan er laus
eins og í venjulegum hlaupaskóm.
4.0 er svo millivegurinn. Tungan er
föst öðrum megin en laus hinum
megin. Skórinn er mitt á milli hinna
tveggja í mýkt og sveigjanleika.
Elfa segir mikinn meðbyr með
skónum og að konur sem karlar um
heim allan noti þá við alls kyns til-
efni. „Þeir eru notaðir við æfingar,
til hversdagsnota og jafnvel á klúbb-
unum. Reynsla okkur hér heima er
sú að því litríkari sem skórnir eru
því hraðar rjúka þeir út. Þetta er að
okkar mati æðisleg þróun og hvet ég
alla til að næla sér í par og taka þátt
í þessari þægilegu tískubylgju með
okkur enda þvílíkur munur að fara
úr hælum yfir í einstaklega létta skó
þar sem tilfinningin er nánast eins
og að ganga á tánum.“
Tilboð á morgun
Á morgun, sumardaginn fyrsta,
mun Nike í samstarfi við Intersport
bjóða allar gerðir af Nike Free Run
skóm á aðeins 19.990 krónur. „Við
vorum að taka upp heilan helling
af nýjum skóm í hinum ýmsu litum
og því um að gera að líta við,” segir
Elfa. Tilboðið gildir bæði í Inter-
sport í Lindum og á Höfða.
Skórnir sem
slegið hafa í gegn
Hlaupa- og æfingaskórnir Nike Free Run hafa slegið rækilega í gegn að undanförnu. Þeir eru frábærir til
hlaupa og hvers kyns æfinga en margir nota þá sömuleiðis hversdags. Þeir eru ótrúlega léttir, þykja flottir á
fæti og litaúrvalið er nær óendanlegt.
Elfa mælir með skónum í alla almenna líkamsrækt.
Því litríkari sem skórnir eru því
hraðar rjúka þeir út, að sögn Elfu.
Þótt litríkustu skórnir
rjúki út eru alltaf
einhverjir sem vilja
frekar svarta eða í það
minnsta dökka skó og
þeir fást líka í úrvali.
3.0 er sveigjanlegastur
4.0 er millivegurinn
5.0 eru mýkstur
Skórnir eru ekki síður notaðir
við gallabuxur en við hlaup
og æfingar. Notagildið er því
ótrvírætt.