Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 36
KYNNING − AUGLÝSINGHlaupaskór & fatnaður MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 20136
HLAUPIÐ Á KÍNAMÚRNUM
Fyrsta maraþonhlaupið á hinum sögufræga
Kínamúr fór fram árið 1999 og hefur verið
haldið árlega síðan, fyrir utan árið 2003
þegar HABL-faraldurinn gekk yfir. Fyrsta
árið tóku tæplega 300 manns þátt en í fyrra,
árið 2012, hlupu tvö þúsund manns á Kína-
múrnum frá fimmtíu þjóðlöndum.
Hægt er að velja um þrjár mismunandi
lengdir, maraþon, hálfmaraþon og 7,5 km
skemmtiskokk. Næsta hlaup verður 18.
maí næstkomandi en löngu er uppselt í það
hlaup. Þeir sem hafa hug á að taka þátt geta
punktað niður dagsetninguna 17. maí 2014.
Allar nánari upplýsingar um Kínamúrs-
maraþonið er að finna á www.great-wall-
marathon.com.
INNAN UM RÁNDÝR SUÐURAFRÍKU
The Big Five Marathon kallast maraþon-
hlaup sem haldið er í Suður-Afríku, nánar
tiltekið í friðlandi veiðidýra. Þar geta hlaup-
arar búist við að sjá fíla, buffalóa, nashyrn-
inga, ljón og hlébarða, þó vonandi í hæfi-
legri fjarlægð. Engar girðingar aðskilja
hlauparana frá afrísku dýralífi og ósnertri
náttúru. Leiðin þykir nokkuð erfið yfirferð-
ar en hlauparar eru líklegir til að gleyma
raunum sínum um stund í ævintýralegu
umhverfi.
Næsta hlaup verður haldið 22. júní næst-
komandi en nánari upplýsingar má finna á
www.big-five-marathon.com.
HLAUPIÐ UM FORN MUSTERI
Bagan er forn borg í Mandaley-héraði í
Búrma. Frá elleftu til þrettándu aldar risu
yfir tíu þúsund búddamusteri, pagóður og
klaustur á sléttum Bagan. Í dag standa yfir
2.200 musteri og pagóður enn og eru mikið
aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
Í Bagan temple-maraþoninu, sem hald-
ið verður í fyrsta sinn 2. nóvember næst-
komandi, verður hlaupið um svæðið, milli
fornra mustera í ótrúlegu landslagi. Raun-
ar er uppselt í hlaupið í ár en vonir standa
til að það verði árlegt.
Nánari upplýsingar á w w w.bagan-
temple-marathon.com.
Í ÍS OG SNJÓ
Grænland er ægifagurt og því ekki amalegt
að fá tækifæri til að spretta úr spori í ósnort-
inni náttúru þess. Þann 19. október fer fram
árlegt maraþon frá bænum Kangerlussuaq
við Syðri-Straumfjörð á vesturströnd Græn-
lands. Hluti hlaupsins fer fram á ísilögðum
jökli en aðrir hlutar verða á malarvegi sem
þó getur verið þakinn snjó á þessum tíma.
Nánari upplýsingar um hlaupið er að
finna á www.polar-circle-marathon.com.
Maraþon á sléttu, í snjó og musterum
Maraþonhlaup er áskorun eitt og sér. Sumir láta sér þó ekki nægja að ná því takmarki heldur sækjast í enn meiri ævintýri.
Maraþonhlaup eru haldin víða um heim og eru sum óvenjulegri en önnur. Nokkur slík eru nefnd hér að neðan.
Snjallsímar eru orðnir æði algengir
og hlauparar nýta þá í æ meiri mæli
til að hjálpa sér við þjálfunina. Hér
má sjá nokkur vinsæl „öpp“ eða smá-
forrit í snjallsíma.
1 RUNKEEPER Android/iOS (frítt)
Kom fyrst til árið 2011 og hefur
verið fínpússað síðan. Kortleggur
hlaupaleiðir, rekur hlaupasöguna,
hraða og vegalengdir og ber saman
við fyrri hlaup og árangur.
www.runkeeper.com
2 ENDOMONDO Android/iOS/Windows
Phone
(frítt og hægt að kaupa)
Með Endomondo er hægt að safna
aragrúa upplýsinga um hlaupaleiðir,
hraða, vegalengdir og slíkt. Einnig
er hægt að merkja myndir og deila
statusum og árangri með vinum á
Facebook og víðar.
www.endomondo.com
3 NIKE+ RUNNING Android/iOS (frítt)
Nike var með þeim fyrstu til að
útbúa hlaupaforrit sem nýst gæti
fjöldanum. Þeir byrjuðu á því að
setja skynjara í hlaupaskó sem gætu
mælt vegalengdir en með tilkomu
snjallsímanna varð til Nike+ appið.
www.nikeplus.nike.com
4 MAPMYRUN Android/iOS (frítt)
Með appinu má meðal annars
hlaða niður hlaupaleiðum sem aðrir
hlauparar hafa hlaðið upp á vefsíðu
MapMyRun.
www.mapmyrun.com
5 STRAVA Android/iOS (frítt)
Auk snjallsíma er hægt að nota
Strava með ýmsum GPS-tækjum.
www.strava.com
6 ISMOOTHRUN Aðeins fyrir iOS
(frítt og hægt að kaupa)
Hægt er að nota appið bæði fyrir
hlaup og einnig aðrar íþróttir.
www.ismoothrun.com
7 COUCHTO5K Android/iOS (frítt)
Ætlað byrjendum í hlaupagreininni.
Býður upp á ýmsar frumlegar
þjálfunarleiðir.
www.active.com/mobile/c25k
8 ZOMBIES, RUN! Android/iOS
(kostar 3,99 dollara)
Til að fá hlaupara til að hlaupa
hraðar fá þeir óhljóð úr uppvakning-
um í eyrun líkt og þeir séu á hælum
hlauparanna.
http://www.zombiesrungame.com/
9 LOSE IT! Android/iOS (frítt)
Fylgist með hitaeiningatapi, þyngd
og almennri heilsu notandans.
www.loseit.com
10 LOOKOUT Android/iOS
(frítt og hægt að kaupa)
Forrit sem hjálpar fólki að finna
símann sinn ef hann týnist.
www.lookout.com
Vinsæl smáforrit hlaupara